28.02.1944
Neðri deild: 21. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 910 í B-deild Alþingistíðinda. (1380)
23. mál, vátryggingarfélög fyrir vélbáta
Frsm. (Jóhann Jósefsson):
Ég get verið stuttorður um þetta mál, það er gamalkunnugt.
Það, sem hér er farið fram á, er að fá heimild handa Bátaábyrgðarfélagi Vestmannaeyja til að starfa áfram framlengda til fjögurra ára. — Sjútvn. kom sér saman um að mæla með, að heimildin yrði framlengd um tvö ár, og þó að mér finnist það stuttur tími, verð ég að sætta mig við þau málalok í bili.