08.02.1944
Neðri deild: 11. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 914 í B-deild Alþingistíðinda. (1418)
25. mál, hafnarlög fyrir Bolungavík
Flm. (Sigurður Bjarnason):
Herra forseti. Í sambandi við frv. þetta, sem ég flyt ásamt hv. 5. landsk., tel ég rétt að geta lítils háttar um sögu hafnargerðar þessa staðar og þá einkum að því, er sú saga viðkemur Alþ.
Upp úr síðustu aldamótum var stofnaður sjóður til hafnarbóta í Bolungavík, og lögðu útgerðarmenn ákveðinn hluta af afla sínum til sjóðsins.
Af opinberu fé mun fyrst hafa verið veitt til hafnarbóta 1909 og síðar 1911 og 1913. Var þá hafist handa um byggingu öldubrjóts. Síðan hefur stöðugt verið unnið að þessu. En í þessu langa starfi hafa mörg mistök átt sér stað, og er það að vonum, því að hér er í rauninni um að ræða eitthvert hið fyrsta hafnarmannvirki hér á landi. Þess vegna ber ekki að líta á mistökin, heldur á brautryðjendastarfið og alla þá örðugleika, sem því eru samfara, og dæma þetta sem slíkt.
Það var engin hending, að hafizt var handa um þetta verk í Bolungarvík, því að þar hefur frá ómunatíð verið ein hin helzta verstöð á landi hér. Það mun ekki hafa verið fyrr en fjórum árum seinna, að hafizt var handa í Reykjavík um hafnargerð, og 10 árum síðar í Vestmannaeyjum.
Ríkissjóður mun nú hafa greitt um 1/2 millj. kr. til þessa verks gegn jafnmiklu úr sveitarsjóði og hafnarsjóði, en hann hefur ekki aðrar tekjur en hlutatolla. Verður þetta því að teljast mikið átak hjá jafnfámennum hreppi. En nú er svo komið, að verði verkinu ekki haldið áfram, verður ekki komizt h já því, að staðurinn dragist aftur úr, en hann er hins vegar að allra dómi, sem til þekkja, talinn vel settur til sjávarútvegs. Þess vegna flutti ég á þingi 1942 þáltill. um hafnarbætur í Bolungavík, og var hún samþ.
Nú hefur vitamálastjóri lokið undirbúningi þessa máls, og er frv. byggt á þeim niðurstöðum. Enn fremur er það flutt í samráði við hreppsnefnd Óshrepps. Að öðru leyti vil ég vísa til grg. um nánari atriði.
Eins og er, er ekki unnt að gera út stærri báta en 10 smálesta frá Bolungavík, og útheimtir sú stærð þó mikið erfiði og þjálfun þeirra manna, sem að útgerðinni starfa. Það virðist auðsætt í landi, sem byggir framtíð sína fyrst og fremst á sjávarútvegi, að hlúð sé að stöðum sem Bolungavík. — Gert er ráð fyrir, að helmingur kostnaðarins verði greiddur úr ríkissjóði, og enda þótt þetta framlag sé með nokkuð öðrum hætti en annars staðar, þá liggja til þess allgildar ástæður, og vísa ég þar til grg. fyrir frv.
Ég vil svo að lokum segja það, að enda þótt brýna nauðsyn beri til þess fyrir þennan stað að fá þessar hafnarbætur, sem gert er ráð fyrir í frv., þá er það skoðun mín, að verulegar hafnarbætur í Bolungavík hafi ekki einungis þýðingu fyrir þann stað, heldur einnig þjóðfélagslega þýðingu. Það er eindregið skoðun mín, að í hafnarmálum okkar beri framvegis að líta meir á hin þjóðfélagslegu sjónarmið en gert hefur verið og hversu hægt sé að auka heildarframleiðslumagn sjávarafurða , þar með og leggja aukinn skerf í þjóðarbúið. Ég er alveg viss um, að með því að skapa góð skilyrði á þessum stað til sjósóknar skapast stórkostlega aukin skilyrði til þess að auka framleiðsluna þar.
Það er mikið atriði í þessu sambandi, að þessi staður liggur við fiskimið, þar sem fiskur bregzt varla allt árið. Á miðin við Ísafjarðardjúp og við norðanverða Vestfirði er róið árið um kring. Þess vegna er auðsær hagur að því, að á þessum stað séu sem allra bezt hafnarskilyrði. Enn fremur má benda á það, að í Bolungavík eru skilyrði til landsins einnig ágæt. Þar eru mikil upplönd, grösug svæði, þar sem mikil og góð skilyrði eru til landbúnaðar, sem mikinn stuðning getur veitt atvinnulífi og afkomu þorpsbúa. — Um þetta vil ég svo ekki fara frekari orðum, en vil vænta þess, að þetta frv. fái góðar undirtektir og sem skjótasta afgreiðslu, því að það er ætlun Bolvíkinga að hefjast þegar handa að undirbúningi framkvæmda í þessum efnum.
Ég vil svo leyfa mér að óska þess, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og sjútvn.