07.03.1944
Neðri deild: 27. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 922 í B-deild Alþingistíðinda. (1448)

62. mál, dýrtíðarráðstafanir

Frsm. meiri hl. (Skúli Guðmundsson):

Í þessu frv., sem liggur hér fyrir, eru ákvæði um, að það verð á landbúnaðarvörum, sem ákveðið var af þeirri vísitölunefnd landbúnaðarins, sem starfaði á s.l. sumri, skuli teljast meðalverð, og ekki raskað ákvörðuninni um mismunandi verð til framleiðenda innan mjólkursölusvæðanna skv. mjólkurl. og breyt., sem á þeim hafa verið gerðar, né heldur ákvæðum bæði þeirra l. og annarra um misjafnt verð hinna einstöku vöruflokka eftir vörugæðum. Í l. um meðferð og sölu mjólkur og rjóma frá 1935 og þeim breyt., sem síðar hafa verið á þeim gerðar, eru ákvæði bæði um verðjöfnun og einnig um mismunandi verð eftir vörugæðum. Í 13. gr. þessara l. frá 1935 segir svo, með leyfi forseta:

„Öll mjólk, sem viðurkennd mjólkurbú taka á móti til sölu eða vinnslu, skal metin eftir gæðum við móttöku og flokkuð til verðs. Við flokkunina skal m.a. taka tillit til fitumagns mjólkurinnar og gerlagróðurs í henni. Nánari ákvæði um þetta skal setja í reglugerð.“

Meiri hl. fjhn., sem hafði athugað þetta mál, leggur til, að frv. verði samþ. með þeirri breyt., sem er á þskj. 154, að í stað mjólkursölusvæða í frvgr. komi verðjöfnunarsvæða. — Einn nm., hv. þm. Siglf., skilar hér sérstöku áliti og flytur brtt. um víðtækar breyt. á l. um dýrtíðarráðstafanir. Meiri hl. fjhn. telur sjálfsagt, að haldin verði. sú venja, sem gilt hefur, að greiða mismunandi verð fyrir vörurnar eftir gæðum, og hefur það komið fram, að það er skýring þeirra manna, sem störfuðu í vísitölunefnd landbúnaðarins, að það verð, sem ákveðið var af þeim í n., skyldi skoðast sem meðalverð fyrir hverja framleiðsluvörutegund.

Ég sé svo ekki ástæðu til að fara um þetta fleiri orðum, en vona, að d. fallist á, að rétt sé að ákveða um þetta, svo að eigi verði um villzt, og að slík ákvæði í l. og reglugerðum um mismunandi verð fyrir hina ýmsu vöruflokka séu haldin.