07.03.1944
Neðri deild: 27. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 924 í B-deild Alþingistíðinda. (1451)
62. mál, dýrtíðarráðstafanir
Fjmrh. (Björn Ólafsson):
Herra forseti. — Ég vildi aðeins segja hér nokkur orð út af því, sem hv. þm. Siglf. sagði, að ríkisstj. hefði komið til þingflokkanna og spurt, hvort hún mætti greiða niður verð innlendra afurða; flokkarnir hafi neitað, og þá hafi stj. gefið út brbl. til þess að gera það. Ég kannast ekki við, að stj. hafi gert þetta, því að hún hefur alltaf haldið fram, síðan álit sex manna n. kom fram, að hún hefði heimild til þessa í l., svo að hér er um misskilning að ræða hjá hv. þm. Annars undrar mig að sjá þær till., sem hann kemur hér með, eftir að þingið veitti stj. fyrir nokkru sérstaka heimild til þess að annast þessar greiðslur.