07.03.1944
Neðri deild: 27. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 926 í B-deild Alþingistíðinda. (1456)

62. mál, dýrtíðarráðstafanir

Jón Pálmason:

Herra forseti. — Mér þykja undarlegar þær ræður, sem komið hafa fram hjá hv. þm., að það þurfi endilega að steypa því frv., sem mér finnst allir vera sammála um, ef samþ. er í sambandi við það breyt., sem einnig er skýring og alveg nauðsynleg.

Ég get ekki séð, hvernig á að framkvæma það að reikna út þá sjálfsögðu breyt., sem gera á á þessum verðlagsmálum, sem gert er ráð fyrir í l., ef ekki eiga að vera nein ákvæði um það. Hér er ekki farið fram á annað en það, að ákveðið sé, að sex manna n. starfi áfram til þess að rækja sama hlutverk og kauplagsn. rækir á þjóðmálasviðinu, að reikna út, hvaða verðlagsbreyt. eigi sér stað vegna þeirra breytinga, sem orðið hafa í landinu.

Ég er mjög undrandi yfir því, að menn skuli koma hér hver á fætur öðrum og halda því fram, að þetta hljóti að verða frv. að falli. Þegar þessi till. kom fyrir í vetur, kom hér heill hópur manna og greiddi atkv. á móti henni. Það var raunar eðlilegt, af því að þeir voru á móti frv., sem hún var við. Ég get því ekki fallizt á að taka þessa brtt. aftur, og menn verða að eiga það við sjálfa sig, hvort þeir fella hana eða ekki. En hvaða aðferð vilja þeir hafa til þess að reikna út þessa breyt., úr því að þeir vilja ekki samþ. brtt. í þessu sambandi?