25.02.1944
Neðri deild: 19. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 55 í B-deild Alþingistíðinda. (146)

1. mál, stjórnarskipunarlög

Frsm. (Eysteinn Jónsson):

Herra forseti. — Verði þetta stjskrfrv. að lögum, þá verður lýðveldi stofnað á Íslandi nú á þessu vori. Mér finnst vel við eigandi að minna hér á hæstv. Alþ. á það nú, að í vor eru liðin 682 ár frá því að Íslendingar gengu á hönd Noregskonungi með setningu Gamla sáttmála, en jafnframt eru liðin í vor 280 ár, frá því að erfðahyllingin átti sér stað í Kópavogi. Gamli sáttmáli, sem gerður var 1262, var samningur milli íslenzku þjóðarinnar og Noregskonungs. Þessi samningur gerði ráð fyrir, að Hákoni gamla Noregskonungi og niðjum hans skyldi sýna fullan trúnað, en á móti átti að koma af konungs hendi m.a., að Noregskonungur skyldi sjá landinu fyrir siglingum, svo sem nánar var tiltekið í sáttmála þessum, enn fremur, að Íslendingar skyldu ná íslenzkum lögum, þ.e.a.s. löggjafarvaldið skyldi vera í höndum Íslendinga. Þetta var sáttmáli við Noregskonung persónulega. En eigi að síður fór svo, að Gamli sáttmáli, sem gerður var með þessum hætti og áskildi réttindi Íslendinga, varð í framkvæmdinni upphaf þess, að úr höndum landsmanna var dregið löggjafarvaldið, framkvæmdavaldið og dómsvaldið, smátt og smátt. Þannig urðu engar efndir á því, sem á móti skyldi koma af hálfu Noregskonungs, þegar landsmenn sóru þeim trúnaðareið. Sá yfirgangur, sem Íslendingum var sýndur, náði tvímælalaust hámarki sínu, þegar Íslendingar voru þvingaðir til þess í Kópavogi 1664 að sverja Danakonungi trúnað sem einvaldskonungi og allsráðanda yfir Íslandi, og hefur réttur Danakonungs til þess að ríkja yfir Íslandi verið rakinn til þess, sem þá fór fram. Að vísu hafa Íslendingar aldrei getað litið svo á, að þessi nauðungareiður væri bindandi fyrir sig, enda með fyrirvara unninn, né heldur Gamli sáttmáli, eftir að hann var rofinn af Noregskonungi. En hvað sem því líður, þá er það víst, að í skjóli þess sambands, sem gert var í öndverðu við Noregskonung

1262 og síðar í skjóli Kópavogsþvingunarinnar, voru Íslendingar sviptir frelsi sínu fullkomlega, og stóð svo um aldir með þeim afleiðingum fyrir Íslendinga, sem þingheimi eru kunnar.

Á öllum öldum hafa beztu menn Íslendinga haldið fast á rétti íslenzku þjóðarinnar og gætt þess í hvívetna að viðurkenna ekki óréttinn, gætt þess að standa á réttinum, þó að þeir yrðu að lúta fyrir erlendu ofurefli. Íslenzka þjóðin stendur í mikilli þakkarskuld við þá menn, sem þannig héldu á málum hennar, þegar verst blés. Þeir stóðu þá í vörn fyrir málstað Íslendinga, sem mörgum virtist vonlaus. En þeir þreyttust ekki. Um margar aldir urðu Íslendingar að láta sér nægja vörnina eina og mótmælin, til þess að réttur þeirra geymdist, en gleymdist eigi. En á öndverðri 18. öldinni hefst nýtt tímabil í sögu Íslendinga. Þá hefst sókn. Þá er vörn snúið í sókn, sem síðan hefur verið haldið sleitulaust.fram á þennan dag.

Það er ekki óviðeigandi nú, þegar við erum að stíga lokasporið til fullkomins sjálfstæðis og frelsis, að við minnumst nokkurra þeirra manna, sem hófu sóknina, þeirra Skúla Magnússonar, Eggerts Ólafssonar, Jóns Eiríkssonar og Baldvins Einarssonar, svo að nokkur nöfn séu nefnd. Það má þó segja, að starf þessara manna væri aðdragandi þess, sem síðar gerðist, eins konar framvarðaskærur, áður en til meginátaka kemur. En meginsóknin hefst með starfi og forustu Jóns Sigurðssonar, og hún hefur haldið áfram fram á þennan dag. Það er ætlunin að leiða þessa sókn til lykta með því að framkvæma nú á þessu ári sambandsslit við Dani og stofnun lýðveldis á Íslandi.

Sjálfstæðisbarátta Íslendinga hefur verið háð til þess að flytja inn í landið það vald, sem hafði verið rænt af Íslendingum, löggjafarvaldið, framkvæmdarvaldið og dómsvaldið. Þetta hefur tekizt smátt og smátt fyrir ötula forustu margra ágætismanna og eindreginn stuðning þjóðarinnar við þá. Annars hefði engu verið hægt að koma áleiðis í þeim málum. Þess mega menn gjarnan minnast einnig.

En nú kynni einhver að vilja spyrja: Er afnám konungdæmis á Íslandi einn þátturinn í þessari frelsisbaráttu? Snerist ekki barátta þeirra manna, sem nefndir voru, og fjölmargra annarra, sem ástæða væri til að nefna, að allt öðru en því að slíta konungssambandinu? Jú, það er rétt. Barátta þeirra fjallaði um stofnun Alþ., endurheimt framkvæmdarvalds og dómsvalds að fullu. En það má ekki valda misskilningi, og því minnist ég á þetta nú. Róm var ekki byggð á einum degi. Hér varð ekki fremur allt unnið í senn. Margt varð að vinnast, áður en hægt var að hefja lokabaráttuna fyrir stofnun lýðveldis á Íslandi. Taka varð fyrir eitt verkefni í senn, og þegar það var leyst, þá hófst næsti áfangi.

Með þjóðinni hefur alltaf vakað vitundin um það, að konungssambandið var upphaf að óláni landsmanna og áþján. Jafnvel hin ágætasta framkoma sumra Danakonunga hefur ekki náð að má þessa minningu úr hugum Íslendinga. Íslendingar hafa aldrei litið á útlenda konunga sem innlenda þjóðhöfðingja, hversu vel sem þeim hefur farizt í málum landsmanna. Til þess liggja þau rök m.a., sem ég hef ,þegar rakið.

Stofnun lýðveldis er því tvímælalaust í fullu samræmi við alla sjálfstæðisbaráttu Íslendinga.

Ég fullyrði, að fyrir Íslendingum hefur vakað, að stofnun lýðveldis væri hið eina viðeigandi tákn þess, að sjálfstæðisbaráttu landsmanna væri lokið, þótt landsmenn hafi um þetta verið orðfleiri löngum en aðra þætti frelsisbaráttunnar, sem til úrlausnar hafa komið fyrst.

En það eru fleiri en Íslendingar, sem gert hafa ráð fyrir því, að konungssambandinu yrði slitið. Það hefur m. a. komið fram af hálfu Dana, að þeir hafa búizt við því, að svo mundi verða. M.a. kemur þetta fram hjá dönsku nefndarmönnunum, sem fjölluðu um sambandslagasamninginn 1918. Þeir hafa gert ráð fyrir fullkomnum skilnaði landanna, ef sambandsslit yrðu, og með fullkomnum skilnaði milli landanna getur ekki verið átt við annað en slíta konungssambandinu, þar sem gerður er munur á algerum skilnaði og sambandsslitum.

Stofnun lýðveldis á Íslandi eða réttara sagt, endurreisn þjóðveldisins, er blátt áfram söguleg nauðsyn. Íslendingum mundi aldrei finnast þeir hafa endurheimt það, sem þeir töpuðu 1262, ef þeir ættu að hafa yfir sér erlendan konung, hversu mikilhæfur og góður maður sem hann væri. Það er full nauðsyn á því, að Íslendingar stígi þetta skref til þess að taka af allan vafa um það, að Ísland sé fullvalda og sjálfstætt ríki.

Þá má ekki gleyma því, að það er í raun og veru ósamrýmanlegt, að sami maður sé konungur í tveimur ríkjum, sem ekkert málefnalegt samband hafa og ekkert sameiginlegt eiga, annað en að lúta sama konungi. Það getur komið fyrir, að hagsmunir ríkjanna fari ekki ævinlega saman, og þá sjá allir, hver aðstaða þjóðhöfðingjans er orðin.

Þá kemur spurningin: Hver er réttur Íslendinga til þess að slíta konungssambandið og stofna lýðveldi — og það einmitt nú?

Það hlýtur að vera réttur hverrar fullvalda þjóðar að ráða æðstu stjórn landsins. Að nútíma hugsunarhætti hlýtur þetta að vera eitt af höfuðeinkennum hverrar frjálsrar þjóðar. Engin kynslóð getur bundið ókomnar kynslóðir um aldur og ævi við ákveðið stjórnarform. Réttur Íslendinga er því þannig, að þess gerist vart þörf að minna á, með hverjum hætti erfðaréttur sá var til kominn, er Danakonungar hafa byggt á völd sín á Íslandi. En á þeim málum var þannig haldið, að Íslendingar geta ekki talið þær gerðir bindandi fyrir sig, og hef ég lítillega á þetta minnzt. Þá er ekki heldur nauðsynlegt að blanda hér inn í umr. um störf þeirra konunga, sem ríkt hafa, en rétt að taka það fram enn einu sinni, að við höfum ekkert nema gott að segja um skipti okkar við Kristján konung X. og munum meta hann mikils - ekki síður framvegis en hingað til.

Í sambandi við sáttmálann, sem gerður var 1918, var rætt um konungssamband landanna, og þá var samið um það, að konungssambandið skyldi standa til 1944 eða jafnlengi og sáttmálinn. Það er eina skuldbindingin, sem Íslendingar hafa tekið á sig um sambandið við Danakonung, og þegar sá sáttmáli er úr sögunni, þá virðist mér ekkert því til fyrirstöðu, að Íslendingar stofni lýðveldi í stað konungdæmis.

Ég hef nú fært fram, hvern ég tel rétt Íslendinga í þessu efni og hvers vegna ég tel viðeigandi, að Íslendingar endurreisi þjóðveldið einmitt nú í sambandi við sambandsslitin við Danmörku. Skal ég nú ekki fara fleiri orðum um málið almennt, en víkja í þess stað að frv. því, sem hér liggur fyrir, og aðdraganda þess, að frv. kom fram nú.

Alþ. Íslendinga ákvað 1941 að stofna lýðveldi, um leið og sambandsslitin við Dani ættu sér stað. Þegar sú ákvörðun hafði verið tekin, þurfti að undirbúa breyt. á stjórnskipunarlögum landsins í samræmi við hana. Þáv. stjórn, þjóðstjórnin, lét þá þegar gera nokkurn undirbúning, en síðar var skipuð sérstök mþn. í málið 1942, og skilaði hún áliti sínu á árinu 1943. Frv. það, sem hér liggur fyrir, er frá þessari mþn. komið og flutt hér á Alþ. af hæstv. ríkisstj. Áður en mþn. skilaði áliti sínu, hafði verið gerð ákvörðun hér á Alþ., sem tiltók nánar, hvernig lýðveldisstofnunin skyldi fara fram. Var ákveðið með sérstakri stjskrbreyt. 1942, að einfalt samþykki Alþingis um stofnun lýðveldis skyldi nægja, enda kæmi samþykki þjóðarinnar til við sérstaka atkvæðagreiðslu. Jafnframt var áskilið, að í þeirri lýðveldisstjórnarskrá væru ekki önnur ákvæði en þau, sem nauðsynleg væru til þess að ráðstafa æðsta valdinu, er flutt yrði inn í landið. Er Alþ. nú bundið af takmörkunum þessum, ef stofna á lýðveldið án þess að almennar alþingiskosningar fari fram. Allir hv. þm. munu vera á þeirri skoðun að halda sig innan þessara takmarka. En utan þings hafa heyrzt raddir um, að setja þurfi hinu nýja lýðveldi nú þegar í öndverðu aðra stjórnarskrá en hægt er með þessu máli. Þessari stefnu verður Alþ. að standa gegn sem einn maður. Við vitum vel, að ef þannig væri á málum haldið, þá hlytu að dragast inn í stjórnarskrármálið deilur um viðkvæm atriði, bæði um kjördæmaskipun landsins, vald þingsins, vald forsetans o.s.frv. Ef lýðveldisstofnunin ætti að bíða úrslita í þeim málum öllum og alþingiskosninga í því sambandi, þá er öllu málinu stefnt í óefni. Það verður að samþ. stofnun lýðveldisins eina út af fyrir sig, en taka síðar upp endurskoðun stjskr.

Ég fullyrði, að stefna Alþingis í þessu máli er sú eina, sem leitt getur málið til farsællegra lykta, en hitt væri hið mesta óráð að blanda allsherjarendurskoðun stjskr. inn í afgreiðslu lýðveldismálsins.

Ég vona, að allir landsmenn geti nú fallizt á, að stefna þingsins sé rétt, og að menn sameinist nú um aðalatriði málsins, stofnun lýðveldisins. Og þess sjást nú glögg merki, að svo muni fara.

Þá vildi ég víkja þessu næst að frv. sjálfu. N. leggur til einróma, að frv. verði samþ., en með nokkrum breyt., sumum allveigamiklum. Ekki er þó samkomulag innan n. um allar brtt. Einkum er ósamkomulag um eina þeirra, varðandi gildistöku stjskr. Eigi að síður er það sameiginleg áskorun nm. til alþingismanna, að þeir standi einhuga um stjskr., hvað sem líður afdrifum einstakra brtt. Þá væntir n. þess fastlega, að þjóðin öll fylki sér um málið eins og Alþ. afgreiðir það.

Þessar áskoranir n. byggjast á þeirri skoðun. allra nm., að mál þetta sé svo mikilsvert fyrir þjóðina, að nauðsyn beri til, að fullkomin þjóðareining komi fram á Alþ. og utan þess við meðferð þess og að ágreiningsatriði verði að hverfa úr hugum manna, jafnskjótt og úr þeim hefur verið skorið hér á Alþingi. Allir verða að sameinast um stofnun lýðveldisins.

Brtt. þær, sem n. flytur á þskj. 71, snerta sumar nokkur meginatriði. Mun ég víkja að þeim brtt., sem efnisbreytingar geta talizt, en eigi að hinum, sem annaðhvort eru orðabreyt. einar eða lítið annað.

Þá er fyrst brtt. n. við 2. gr. frv. Hún fjallar um að breyta heiti forsetans frá því, sem gert er ráð fyrir í frv. hæstv. ríkisstj. Vill n., að embættisheiti forsetans verði „forseti Íslands“, en ekki aðeins „forseti“ eða „forseti lýðveldisins“. Þykir n. betur fara, að forsetinn verði kenndur við landið og gleggra til aðgreiningar frá forsetum einstakra félaga eða stofnana.

Næsta brtt. er við 3. gr., og er meginbrtt. n.brtt. ráðgerir, að forsetinn verði þjóðkjörinn, en ekki þingkjörinn, eins og frv. stj. gerir ráð fyrir. N. hefur orðið þess vör, að mjög mikið fylgi er meðal þjóðarinnar fyrir því, að forsetinn verði þjóðkjörinn. Mun ekki vafi á því leika, að meiri hluti þjóðarinnar óskar eftir því, að svo verði. Ýmsir nm. voru einnig ákveðið þeirrar skoðunar, að þetta væri heppilegast. Aðrir voru meira á báðum áttum, en vilja taka til greina þann þjóðarvilja, sem menn telja sig hafa orðið vara við. Þannig varð í n. nær einhuga fylgi fyrir því, að forsetinn yrði þjóðkjörinn. Þessi breyt. á frv. hafði það í för með sér, að n. varð að leggja mikla vinnu í athugun á því, hversu réttast væri, að þjóðkjör færi fram, og athugun um önnur atriði í sambandi við þessa breyt.

Næsta brtt. er við 5. gr. og er alger efnisbreyt. Gr. fjallaði um það, hversu kjósa skyldi forseta á Alþ., en nú fjallar gr. um það, hversu forseti skuli kjörinn af þjóðinni. N. athugaði margar leiðir til þess að kjósa forseta. Mönnum kann að virðast það einfalt mál að kveða á um það, hversu forseti skuli kjörinn af þjóðinni. En n. reyndist það ekki svo og þá ekki sízt fyrir það, að fljótt komu raddir í n. fram um, að áríðandi væri að setja ákvæði til tryggingar því, að forseti yrði ekki kjörinn með mjög litlum meiri hluta atkv. þeirra, er tækju þátt í forsetakjöri. Væri slíkt ekki viðeigandi og sízt styrkur þeim manni, sem slíku trúnaðarstarfi ætti að gegna. Voru athugaðar leiðir til að tryggja það, að forseti væri kjörinn með meiri hluta atkv. þeirra, sem þátt tækju í kosningunni. Komu fram till. um, að kosið yrði oftar en einu sinni, ef með þyrfti, og þá bundinni kosningu hin síðari sinn, og enn fremur var því hreyft, að Alþ. yrði falið kjörið, ef þjóðin dreifði mjög atkvæðum sínum við kjörið. En eftir að þær leiðir, sem nefndar voru, höfðu verið athugaðar mjög nákvæmlega innan nefndarinnar, hvernig tryggja skyldi meirihlutakjör, varð niðurstaðan sú, að engin þeirra náði samþykki í n. Meiri hl. nm. hallaðist að því, að sá yrði rétt kjörinn forseti, sem fengi flest atkv. við forsetakjör. — Ég fer nú ekki út í að rekja nánar þær till., sem fram komu um þetta í n., né skýra frá kostum þeirra og göllum. Mér er ekki kunnugt um, hvort einhver þessara till. kann að koma fram hér í hv. deild, en ekki hefur verið ákveðið af neinum, svo að mér sé kunnugt, að hreyfa nokkurri þeirra. Ef þær koma fram, — sem mér þykir ósennilegt, — þá verða þær ræddar.

N. vill taka það sérstaklega fram, að hún leggur til, að sá verði kosinn forseti, sem flest hefur atkv., í trausti þess, að þjóðin hafi þroska til þess að dreifa ekki úr hófi fram atkv. sínum við forsetakjör. Ég fyrir mitt leyti lít svo á, að þegar menn vita fyrir fram, að aðeins eitt kjör á sér stað, aðeins einu sinni kosið, — og að sá, sem flest fær atkv., verður rétt kjörinn, þá ætti að mega gera ráð fyrir því, að landsmenn sameinuðu sig fyrir fram í fáa hópa um frambjóðendur til forsetakjörs, en teldu, sér ekki hag né sóma í því að dreifa atkvæðum á menn, sem litlar líkur væru til, að kæmust að. Það bæri ekki vott um mikinn þroska hjá þjóðinni, ef þannig væri á málum haldið. Hitt væri virðulegra, að menn reyndu fyrir fram að gera sér grein fyrir kosningalíkum og fylktu sér um þá frambjóðendur, sem vitanlega hefðu verulegt traust með þjóðinni.

N. þótti rétt að gera nokkuð strangar kröfur um meðmælendafjölda forsetaefna og leggur til í 3. brtt. sinni, að forsetaefni þurfi að hafa meðmæli minnst 1500 kosningarbærra manna og mest 3000, eftir því sem ákveðið verður í lögum. N. setu það ákvæði í þessa brtt., að heimilt sé að ákveða með l., að tiltekin tala meðmælenda skuli vera úr landsfjórðungi hverjum, í hlutfalli við kjósendatölu þar. Með því mætti tryggja, að forsetaefni kæmi ekki til greina, nema það hefði nokkurt fylgi um land allt. Þykir það eðlilegra en hitt, að meðmælendur séu sóttir á örfáa staði í landinu.

Við 6. gr. flytur n. þá brtt., að kjörtímabil forseta verði frá 1. ágúst til 31. júlí að 4 árum liðnum. Breyt. er aðeins sú, að til er tekinn mánaðardagur við byrjun og endi kjörtímabilsins, en í frv. er ekki fastákveðið, hvenær á árinu það skuli byrja eða enda. Þótti nauðsynlegt vegna þjóðkjörsins að tiltaka mánaðardaga. Þessi tími er valinn með tilliti til þess, að heppilegast þykir að láta almennar kosningar fara fram að vori til. Við höfum reynslu fyrir því, sem n. tekur tillit til.

Við 7. gr. er brtt. um það, að þegar kjósa þarf nýjan forseta í stað annars, sem fellur frá, skuli kjörtímabil nýja forsetans að vísu miðast við 4 ár, en þó sé dreginn frá sá tími, sem liðinn er af því ári, sem hann er kosinn á. Verður þetta til þess, að kjörtímabil forseta, sem kosinn er í staðinn fyrir annan, sem frá hefur fallið, verður styttra nokkuð en forseta, sem kosinn er reglulegri kosningu.

Við 11. gr. er brtt., sem einnig er afleiðing þjóðkjörsins. Í frv. eru ákvæði um, að Alþ. geti vikið forseta frá, áður en kjörtímabili er lokið. Nú á þetta ekki alls kostar við þjóðkjörið. Gerir n. ráð fyrir, að þjóðaratkvgr. þurfi til þess, að forseta verði vikið frá. Þó er frumkvæðið lagt í hendur Alþ. í brtt. n., en gert ráð fyrir, að samþykki 3/4 hluta þingheims þurfi til þess að krafa um frávikningu forseta verði lögð undir þjóðaratkvæðagreiðslu. Ef þjóðaratkvgr. gengur á móti þinginu, þá telst kjörtímabil forseta hefjast af nýju frá þeim tíma, sem atkvgr. fór fram, en Alþingi rofið og efnt til nýrra kosninga. Eru þessi ákvæði sett svo ströng til þess að koma í veg fyrir, að stjakað verði við forseta að ófyrirsynju. Það er ekki rétt, að hægt sé af stjórnmálaástæðum að víkja forseta frá. Búa verður svo um, að honum verði ekki vikið frá, nema brýn nauðsyn beri til svo að segja að allra dómi. Þó verður að vera hægt að koma slíku við, ef forsetanum verður eitthvað það á, sem að flestra dómi gerir það að verkum, að hann geti ekki setið áfram að völdum, eða eitthvað það kemur fyrir forsetann, sem gerir hann óhæfan til þess að gegna starfi, án þess að hann geri sér grein fyrir því sjálfur. Þessi ákvæði eru sett til öryggis, en vonandi þarf aldrei til þeirra að grípa. N. virtist, að í stjskr. flestra lýðvelda væru einhver ákvæði um, að hægt væri að víkja forseta frá, en alls staðar mjög ströng, og valdið til þess að víkja honum frá ýmist lagt í hendur þjóðþinga eða þjóðanna sjálfra, eftir því, hvernig forseti er kjörinn.

Við 14. gr. er brtt., sem í raun réttri er aðeins orðabreyt. Og það sama má segja um tvær aðrar brtt., þ.e.a.s. við 20. gr. og að nokkru leyti brtt. við 23. gr. Þær eru lítið annað en orðabreyt., en þó vil ég minnast þeirra, af því að þær eru sérstaks eðlis. — Ég gat áðan um það, hver stakkur sniðinn hefði verið fyrir þetta stjskrfrv., þ.e.a.s., að ekkert ætti að vera í því annað en ákvæði, sem væri í sambandi við lýðveldisstofnun og sambandsslit við Danmörku. N. athugaði frv. gaumgæfilega með tilliti til þess, að ekki væri farið út fyrir þessi takmörk. Til þess að tryggja það fullkomlega hefur n. þótt rétt að gera þessar brtt. við 14., 20. og 23. gr. frv. Eru þær brtt. til þess að færa ákvæði þessara gr. til sama orðalags og í gildandi stjskr. En það vill n. taka fram, að þessar brtt. eru aðeins gerðar til þess að útiloka allt tal um óeðlilegar breytingar, en ekki vegna þess, að n. vilji halda því fram, að mþn. í stjskrmálinu hafi farið út fyrir þau takmörk, sem tilskilin voru, þegar hún samdi þetta frv. — Ýmsir utan þings hafa verið að minnast á það, að farið væri í þessum atriðum út fyrir þau takmörk, sem þessi stjskrbreyt. skyldi markast af. Þykir n. rétt að breyta orðalaginu, til þess að þetta tal falli niður.

Þá er brtt. við 24. gr. frv., sem fjallar um þingrof og þingrofskosningar. Þá gr. hafði mþn. orðað af nýju í frv. sínu, og átti hún að koma í staðinn fyrir 20. gr. í gildandi stjskr. Þessi gr. hljóðar svo í gildandi stjskr., með leyfi hæstv. forseta:

„Konungur getur rofið Alþingi, og skal þá stofnað til nýrra kosninga, áður en tveir mánuðir séu liðnir, frá því er það var rofið, en Alþingi stefnt saman eigi síðar en átta mánuðum eftir, að það var rofið.“

En hjá mþn. eða réttara sagt í frv. er þetta orðað á þessa lund:

„Forseti lýðveldisins getur rofið Alþingi. Skal þá láta nýjar kosningar fara fram svo fljótt sem föng eru á, enda komi Alþingi saman eigi síðar en átta mánuðum eftir þingrof.“

Sú grein var gerð fyrir þessari breyt. af hálfu mþn., að greinin í frv. væri í fullu samræmi við framkvæmd gömlu greinarinnar í stjskr., en greinilegar orðuð. Þetta er ekki dregið í efa af stjskr.-nefndum beggja d. nú. Eigi að síður fannst stjskrn. rétt, í samræmi við brtt., sem gerðar eru við 14., 20. og 23. gr., að færa þetta ákvæði í sama horf og í gildandi stjskr., en vill jafnframt, að greinilega sé fram tekið, að ákvæði 24. gr. frv.. ef till. n. verður samþ., beri að framkvæma á sama hátt og ákvæði 20. gr. gildandi stjskr. hafa verið framkvæmd. — Rétt er að geta þess, að í þessari brtt. n. er látin haldast frá gildandi stjskr. ein efnisbreyt., sem var í 24. gr. frv. Hún er í því fólgin, að í frv. er ákveðið, að Alþ. komi saman innan tiltekins tíma, þ.e.a.s., það er gert ráð fyrir því, að Alþ. geti komið saman, án þess að það sé kvatt saman af forseta. En í gildandi stjskr. stendur, að Alþ. skuli kvatt saman af konungi. Þessa breyt. þótti sameinuðum stjskrn. deildanna heimilt að gera, vegna þess að hún snertir starfssvið konungsins áður og forsetans nú.

18. brtt. er við 80. gr. Hún fjallar aðeins um. að taka inn í þetta frv., samræmis vegna, að stjskrbreyt. frá 15. des. 1942 sé numin úr gildi með samþykkt þessa frv. ásamt þeim stjórnskipunarlögum, sem í gr. eru upp talin.

Þá er ég kominn að 19. brtt., við 81. gr. Hún er sú eina, sem verulegum ágreiningi olli í n., og hlýt ég að taka fram um hana, að það, sem ég segi um efni hennar, getur ekki orðið fyrir hönd n. allrar, heldur meiri hl. n., þ.e.a.s. allra nm. nema hv. annars þm. Sósfl. í n. og að nokkru leyti einnig hv. 4. þm. Reykv. Ég geri ráð fyrir, að þeir geri grein fyrir afstöðu sinni sérstaklega til þessarar brtt. En brtt. fjallar um að breyta 81. gr. frv. þannig, að hún orðist svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Stjórnskipunarlög þessi öðlast gildi, þegar Alþingi gerir um það ályktun, enda hafi meiri hluti allra kosningarbærra manna í landinu með leynilegri atkvæðagreiðslu samþykkt þau.“ En í frv. er ákveðið, að stjórnskipunarlögin öðlist gildi 17. júní 1944, að afstaðinni þjóðaratkvgr. — Um þessa brtt, var talsverður ágreiningur í n., eins og raunar kemur fram í nál., og er þar nokkuð vikið að þeim rökum, sem hver aðili um sig færði fyrir sínu máli. En ég ætla að minnast með örfáum orðum á afstöðu þm. Framsfl. og Sjálfstfl. í n., sem voru alveg sammála um það, hvernig á þessu atriði skyldi haldið.

Það er nú öllum hv. þingheimi ljóst, að bæði hér í þinginu og utan þings hefur verið nokkur ágreiningur um það, hvenær stofna skuli lýðveldi á Íslandi. Sérstaklega hefur þó ágreiningur verið um það, hvort ákveða skyldi nú þegar stofndag lýðveldisins. Okkur virðist hins vegar augljóst, að mjög mikill meiri hl. á Alþ. og vafalaust einnig mjög mikill meiri hl. allra landsmanna hefur verið og er þeirrar skoðunar, að stofna beri lýðveldi 17. júní 1944. Töldum við því og teljum viðeigandi, að ákvæði um þetta standi í stjskr., sem nú verður samþ. Þessi ágreiningur um gildistökudag stjskr. blandaðist svo saman við ágreining, sem gerður var af nokkurra manna hálfu um það, hversu og jafnvel hvenær framkvæma skyldi sambandsslitin. Þegar þessi mál voru hér til 1. umr. og þessi ágreiningur var ræddur, horfði svo sem hér mundu verða deilur framvegis í landinu um skilnaðinn og stofnun lýðveldis og að þjóðinni mundi ekki auðnast að standa saman sem einn maður. Hins vegar hefur það fram að þessu, — síðan þál. um stofnun lýðveldis á Íslandi var samþ. 17. maí 1941, — verið svo, að þingheimur allur hefur staðið saman og við hvert skref í málinu haft fylgi að heita má allrar þjóðarinnar. Í augum margra nm. var það svo mikils virði, að hægt væri að fá fullkomið samkomulag bæði þingsins og þjóðarinnar um þetta. mál, að þeir vildu leggja sig alla fram um að ná samkomulagi. Þó kom ekki til mála af þeirra hálfu að gera nokkurt það samkomulag, sem yrði til. þess, að skilnaður við Dani og lýðveldisstofnun færi ekki fram 17. júní í vor, svo sem áformað hefur verið. Það kom einnig í ljós eftir allmikla fyrirhöfn, að hægt var að ná samkomulagi við andófsmenn í málinu, án þess að nokkuð væri vikið frá þeim ásetningi. Þetta var hægt með því að taka út úr stjskrfrv. ákvæðið um gildistökudaginn, 17. júní, en setja í þess stað ákvæði um, að Alþ. hefði í hendi sér með einfaldri samþykkt að ákveða, hvenær lýðveldisstjskr. gengi í gildi. Ágreiningnum er þannig eytt á þessu Alþ. og allir geta staðið saman við þjóðaratkvgr.

Við nm. vonum, að þessi málsmeðferð leiði til þess, að sams konar eining verði aftur í vor, þegar endanlega á að ganga frá þessu máli. Þá von byggjum við á því, að þjóðaratkvgr. verði svo skýlaus, að ekki þurfi að efast um, að þjóðin sé því fylgjandi, að skilnaður og lýðveldisstofnun fari nú fram í vor hinn 17. júní. Það er augljóst mál, að með því að halda á málum eins og meiri hl. nm. vill nú, þá eru sterkar líkur til þess, að allir standi saman, þangað til málið er komið í höfn. Hefði þetta samkomulag hins vegar ekki verið gert, þá var það alveg víst, að ágreiningur um málið hefði haldið áfram. Þá er þess að geta, að ef það eitt væri gert að taka út ákvæðið um gildistökudaginn, án þess að nokkrar yfirlýsingar fylgdu, þá gæti litið svo út, að þeir, sem 1. des. s.l. bundust samkomulagi um stofnun lýðveldis eigi síðar en 17. júní n.k., hefðu horfið frá þeirri stefnu. En til þess að taka af allan vafa um þetta og gera þingheimi og þjóðinni ljóst, að hér er ekki um stefnubreyt. að ræða af þeirra hálfu, sem gera þetta samkomulag um afgreiðslu málsins nú, hafa fulltrúar Framsfl. og Sjálfstfl. í n. tekið fram í nál., að þeir teldu sig eftir sem áður bundna órjúfandi samtökum um að stofna lýðveldið eigi síðar en 17. júní. Þessi brtt. við 81. gr. frv. er gerð aðeins til þess að skapa einingu á þ. og þá um leið við þjóðaratkvgr., en ekki til þess að breyta nokkru efnislega frá því, sem áður hefur verið ákveðið.

Af hálfu þeirra, sem voru á móti þessu samkomulagi í n., fulltrúa Sósfl., er því haldið fram, að málinu sé stefnt í hættu með þessari breyt. á frv. Þessu er ekki hægt að finna neina stoð. Í fyrsta lagi liggur það fyrir manni, að 45 þm. eru bundnir samtökum um stofnun lýðveldis á Íslandi 17. júní, og sú yfirlýsing er endurnýjuð nú af þeim, sem fallizt hafa á að taka „17. júní“ út úr stjskrfrv. Þá liggur fyrir, að það eru sömu þm. og nú sitja á þingi, sem eiga að ákveða gildistökudaginn að lokinni þjóðaratkvgr., þar sem engar alþingiskosningar fara fram fyrir þann tíma, — og þessir sömu 45 menn, sem bundust samtökum um 17. júní, hafa málið á valdi sínu.

Því hefur verið borið við, að eitthvað gæti komið fyrir, sem kæmi í veg fyrir samþykkt gildistökunnar 17. júní. Ég vil taka það fram fyrir hönd Framsfl., að þau samtök, sem við höfum bundizt um að stofna lýðveldið 17. júní í vor, eru alveg bindandi í okkar augum, og frá þeim verður ekki fremur hvikað en þótt ákvæðin um gildistökuna stæðu í stjskr. Ég veit ekki, við hvað þeir eiga, sem gera ráð fyrir hindrunum. En ef þeir óttast íhlutun annarra þjóða, þá sýnist slíkt ástæðulaust. Ef einhver þjóð ætlaði sér að leggja stein í götu þess, sem við ætlumst fyrir í þessum málum, þá væri það fram komið. Það mundi ekki vera beðið eftir því, að fram kæmi sú þjóðareining, sem verða mun, um þetta mál. Það eru hinar verstu getsakir að ætla nokkurri þjóð slík afskipti, enda allt gengið í gagnstæða átt, sem frá öðrum nálægum þjóðum hefur komið varðandi þá málsmeðferð, sem fyrirhuguð er nú.

Út af því, sem rætt er um hættur, þá vil ég bæta því við, að sú eina hætta, sem við Íslendingar þurfum að forðast, er hættan á sundrung okkar sjálfra um málið. Samkomulag það, sem gert hefur verið, er einmitt gert til þess að koma í veg fyrir slíka sundrung, girða fyrir einu hættuna, sem fyrir hendi er.

Þá er sú ástæða færð fram gegn því að gera þetta samkomulag, að með því sé þjóðinni sjálfri ekki gefinn kostur á að segja neitt um gildistökudaginn.

Þegar þetta mál verður lagt fyrir þjóðina, liggur einnig fyrir yfirlýsing 45 manna um, að lýðveldið verði stofnað 17. júní, og getur þjóðin því ekki verið í neinum vafa um það, að verði stjskr. samþ. af þjóðinni, þá verður gildistaka hennar ákveðin 17. júní í vor. Frá þessu sjónarmiði hefur það því ekkert gildi, hvort dagsetningin stendur í frv. eða ekki.

Þá hefur því verið haldið fram af þeim, sem vilja ekki samkomulagið, að sú málsmeðferð, sem hér er viðhöfð, samrýmist ekki samkomulaginu milli þriggja þingflokka, sem gert var 1. des., og eru okkur, sem höfum unnið að einingu um málið, borin samningsrof á brýn. Þetta samkomulag samrýmist vissulega yfirlýsingu þriggja flokka frá 1. des., sem var um það, að þeir stæðu saman að stofnun lýðveldis á Íslandi eigi síðar en 17. júní 1944 og um að bera fram stjskrfrv. mþn.

Þeir, sem standa saman um að stuðla nú að einingu um málið með því að taka ákvæðið um 17. júní út úr frv., standa eftir sem áður jafnfast á þeim grundvelli að stofna lýðveldið 17. júní í vor, eins og yfirlýsing sú, sem ég lýsti áðan, ber með sér. Þegar einhver skerst úr leik, er nógur tími til þess að tala um samningsrof. Ég veit, að það mun steini hafa létt af þjóðinni, þegar hún frétti um það samkomulag, sem gert hefur verið í stjskrn. þingsins og nú hefur verið frá skýrt. Læt ég svo útrætt um það atriði.

Þá flytur nefndin aðra brtt. við síðari hl. 81. gr., og hljóðar hún þannig, með leyfi hæstv. forseta:

„Er stjórnarskrá þessi hefur öðlazt gildi, kýs sameinað þing forseta fyrsta sinni eftir reglum um kjör forseta sameinaðs þings, og nær kjörtímabil hans til 31. júlí 1945.“

N. athugaði gaumgæfilega, hvort hægt mundi að koma því svo fyrir, að þjóðkjör forseta færi fram jafnskjótt og lýðveldið væri stofnað. N. var ljóst, að skemmtilegast hefði verið, að forsetakjör færi einnig fram af þjóðarinnar hálfu að heita má um leið, en henni virtist ekki hægt að koma því í framkvæmd. N. tók því það ráð að ætla Alþ. að kjósa forseta, sem gegndi starfinu til 31. júlí 1945. Er gert ráð fyrir, að þjóðkjör forseta hafi þá farið fram.

Ég hef þá minnzt á brtt. þær, sem fyrir liggja og skipta einhverju efnislega. Einstakir nm. munu gera gr. fyrir sínum skoðunum að því leyti, sem þær samrýmast ekki nál. Ég vonast eftir því, og það er eindregin áskorun n. allrar, að hv. alþm. fylki sér einhuga um stjskrfrv., hvernig sem fer um einstakar brtt. n. eða einstakra hv. þm.

Ég enda þessa framsögu með því að lesa upp úr nál. örfá orð, sem skýra bezt afstöðu nm. til málsins í heild. — Þar segir, með leyfi hæstv. forseta:

„Nefndin hefur athugað gaumgæfilega stjórnarskrárfrumvarpið, og er hún einhuga um, að nú sé tímabært að samþykkja lýðveldisstjórnarskrá, og mælir eindregið með því, að Alþingi sameinist nú um samþykkt stjórnarskrárfrumvarpsins, og skorar jafnframt á þjóðina að fylkja sér samhuga um málið við þjóðaratkvæðagreiðslu þá, sem ákveðin hefur verið.

Nefndin flytur nokkrar breytingartillögur við frumvarpið. Þótt þessar breytingartillögur séu fluttar af nefndinni, þá hafa einstakir nefndarmenn óbundnar hendur um sumar tillögurnar, eins og koma mun fram við meðferð málsins á Alþingi og í þessu nefndaráliti. Þessi fyrirvari nefndarmanna um einstök atriði í tillögunum raskar hins vegar í engu fylgi þeirra við frumvarpið sjálft, þótt tillögur nefndarinnar verði samþykktar, né dregur úr áskorun nefndarmanna allra til Alþingis og þjóðarinnar um að fylkja sér einhuga um lýðveldisstjórnarskrána. Byggist þessi afstaða nefndarmanna á þeirri sameiginlegu skoðun, að ágreiningur um einstök atriði verði að víkja fyrir þeirri höfuðnauðsyn, að þing og þjóð sameinist um stofnun lýðveldisins og setningu lýðveldisstjórnarskrár. Leggur nefndin á það mikla áherzlu, að þannig verði á þessu stórmáli haldið á Alþingi og við þjóðaratkvæðagreiðslu þá, sem fram undan er.“

Þetta er ósk okkar allra, og þannig viljum við starfa að þessu stærsta máli, sem við höfum nokkru sinni haft með höndum á Alþingi Íslendinga.