09.03.1944
Efri deild: 25. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 933 í B-deild Alþingistíðinda. (1473)

62. mál, dýrtíðarráðstafanir

Kristinn Andrésson:

Herra forseti. - Hv. 5. þm. Reykv. hefur svarað skýrt og greinilega þeim andmælum, sem komu fram gegn ræðu minni, og þarf ég ekki að endurtaka það. En það var eitt í ræðu hv. 1. þm. Eyf., sem ég þarf að svara. Hann hefur skilið mig svo, að ég telji, að ríkisstj. hefði enga heimild til niðurgreiðslna á landbúnaðarafurðum. Það er misskilningur, að ég hafi sagt þetta. Ég sagði, að það minnsta, sem ætlazt verði til, sé, að Alþ. veiti þessa heimild. En þessar niðurgreiðslur námu 1/4 af ríkistekjunum á síðasta ári eða fullum 27 millj. kr. Það, sem ég hélt fram, var það, að meiri hl. Alþ. hefði litið svo á, að ríkisstj. hefði ekki heimild samkv. dýrtíðarl. til þessara niðurgreiðslna, nema samþykki Alþ. kæmi til, eftir að ákveðinn frestur er útrunninn. Annað, sem ég færði fram sem rök með því, að nauðsynlegt væri að gera þessi ákvæði dýrtíðarl. skýrari, — að ríkisstj. hefði enga heimild til þessara niðurgreiðslna, nema samþykki Alþ. kæmi til, — var það, að ríkisstj. hefur talið sig eiga þarna lagaheimild. En mér skilst það ekki vera í samræmi við þá samþykkt, sem gerð var á síðasta Alþ. Það er að segja, hv. þm. komu og samþ. handa ríkisstj. heimild til niðurgreiðslna á verði landbúnaðarafurða eða vísitölunni sem nokkurs konar uppbót fyrir þá heimild, sem ríkisstj. telur sig hafa í dýrtíðarl. eða telur meiri hl. Alþ. trú um, að hún eigi til þessara niðurgreiðslna, þó mjög litlum meiri hl. Hins vegar er það ef til vill rétt hjá hv. þm., að Alþ. hafi horfið frá þessum skilningi, sem það hafði á 4. gr. dýrtíðarl., og mætti hin nýja heimild, sem Alþ. gaf ríkisstj., benda til þess. Ég teldi samt mikið í það varið, að engin stoð væri eftir í dýrtíðarl. sjálfum til þessara niðurgreiðslna fyrir ríkisstj.

Mönnum er þetta allt mjög vel ljóst, en það virðist standa óbifanlega fast í kolli hæstv. ríkisstj.; að aðeins eitt eigi að gera hér á landi, að halda niðri vísitölunni með hvaða ráðum, sem er. Hæstv. ríkisstj. virðist hugsa um það eitt að greiða niður vísitöluna. Á síðastliðnu ári sóaði ríkisstj. 1/4 af ríkistekjunum í þessar niðurgreiðslur. Ef til vill verður það 1/3 eða helmingur næst. Mundi hún ekki heldur hætta að greiða laun til allra opinberra starfsmanna en að hætta þessum dæmalausu niðurgreiðslum á vísitölunni? Ég er undrandi yfir því, að hv. alþm. skuli ætla að halda áfram að styðja hana og veita henni heimild til slíks. Það var þetta, sem ég tók fram í fyrri ræðu minni.

Viðvíkjandi 2. lið brtt. er það, að hv. 5. þm. Reykv. hefur svarað svo skorinort þeim andmælum, sem fram komu, að ég hef ekki miklu við að bæta. Aðalatriðið er það, eins og hann tók fram, að í dýrtíðarl. eru engar reglur um störf n., og ef hv. þm. ætla á annað borð að láta n. starfa áfram, þá verða þeir að veita henni heimild til þess. Ef nú á að fresta Alþ. án þess að gefa sex manna n. heimild til þess að reikna út verð á landbúnaðarafurðum á ný, tel ég, að Alþ. hafi þar brugðizt skyldu sinni í mjög stórvægilegu máli.

Mér þykir leitt, að enginn hæstv. ráðh. er hér staddur, svo að maður á ekki kost á að fá neina yfirlýsingu frá hæstv. ríkisstj. um það, hvað hún ætlar sér að gera í þessu máli, hvernig hún ætlar að ákveða verðlag á næsta hausti og hvaða aðila hún ætlar að láta ákveða verðlagið. Ég get ekki skilið slíkt kæruleysi hv. þm. og ríkisstj. í þessu máli. — En úr því að ekki fæst nein yfirlýsing frá hæstv. ríkisstj. og ég veit ekki, hvað hún ætlar sér að gera í þessu máli, þá vil ég ítreka það, að ég tel nauðsynlegt, að d. samþ. þá brtt., sem hér er borin fram, einmitt till., sem tryggir starf sex manna n. áfram og það samkomulag, sem gert var milli tveggja stétta, verkamanna og bænda, svo giftusamlegt samkomulag sem náðist síðastliðið haust.