09.03.1944
Efri deild: 25. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 935 í B-deild Alþingistíðinda. (1477)

62. mál, dýrtíðarráðstafanir

Eiríkur Einarsson:

Að nokkru leyti með tilvísun til grg. hv. 6. þm. Reykv. fyrir atkvæði sínu og með sérstakri áherzlu á það, sem farið er fram á með frv., sem raunar er nauðsynleg leiðrétting og byggð á samkomulagi, sem öllum er áhugamál að varðveita, en málið er hér síðla að komið og gæti dagað uppi, ef á því yrðu nú gerðar breyt., þá treystist ég ekki til annars en vera á móti þessari brtt. og segi því nei.

Brtt. 189,2 felld með 10:5 atkv., að viðhöfðu nafnakalli, og sögðu

já: KA, LJóh, PM, BrB, StgrA.

nei: GJ, GÍG, HG, IngP, JJ, PHerm, ÞÞ, BSt, BBen, EE.

2 þm. (HermJ, MJ) fjarstaddir.

Frvgr. samþ. með 11 shlj. atkv.

Fyrirsögn samþ. án atkvgr.

Frv. vísað til 3. umr. með 10 shlj. atkv.