09.03.1944
Efri deild: 26. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 940 í B-deild Alþingistíðinda. (1503)
66. mál, barnaspítali
Magnús Jónsson:
Herra forseti. — Ég skal ekki fjölyrða mikið um þetta, og er rétt, að atkv. skeri úr um það. En það kom í ljós við 1. umr. um þetta mál í dag, að það hafði mjög eindregið fylgi þessarar hv. deildar í því formi, sem það var þá, með ótakmarkaðri heimild til skattaundanþágu. Ég tók nú ekki þá til máls, en vildi standa hér upp til að segja, að ekkert einstakt fordæmi er gefið, þótt þetta mál verði samþ. Ef eitthvað er, sem þykir óheppilegt við að samþ. slíkar undanþágur, þá var fordæmið gefið á síðasta þingi. Þá lá einnig fyrir frv., sem gekk í þá átt að gefa almenna heimild til skattafrádráttar, ef um gjafir til nytjafyrirtækja var að ræða. En það frv. fékk ekki náð fyrir augum þingsins, hefur sennilega þótt of óákveðið. Hins vegar var þá heimilað að undanþiggja gjafir til vinnuheimilis berklasjúklinga skatti, og sér víst enginn þm. eftir því. Nú er hér um annað nytjafyrirtæki að ræða, engu minna aðkallandi, og er farið fram á svipaða undanþágu. Ég þarf ekki að mæla með því máli, fyrir því er sýnilega eindreginn þingvilji. Aftur á móti vildi ég leyfa mér að andmæla brtt. hæstv. fjmrh. Ég ætla nú, að það verði fáir, sem gefa yfir 25 þús. kr., svo að litlu skipti í rauninni, þótt till. þessi yrði samþ. En það er óþarfi að gera þessa takmörkun. Ef einhver hefði sérstakan áhuga fyrir þessu máli og vildi gefa meira, þá sé ég ekki ástæðu til að láta hann gjalda þess í skatti. Að taka dæmi af svo háum gjafaupphæðum, að gefandinn gefi raunverulega ekki nema 10%, en 90% hefðu annars gengið í ríkiskassann, það gefur nú bara dálítið meinlega mynd af skattalögunum eins og þau eru. Þetta dæmi er líka mjög sjaldgæft, að menn séu í svo háum skattstiga. Það er svo sem ekki heldur eins og um eitthvað óviðkomandi ríkinu sé hér að ræða. Það er svo fjarri því, að fyrirtæki sem þetta mundi alltaf að mestu vera borið uppi af bæ og ríki. Því hefur verið hreyft þessu til andsvara, að Alþ. ætti sjálft að ráðstafa tekjum þeim, sem koma ættu í ríkissjóðinn. En þingið er hér alls ekki að sleppa þessu úr hendi sér, heldur aðeins að heimila þessi fríðindi. Þau eru heimiluð til ákveðins fyrirtækis, barnaspítala, og hefur Alþ. ekki sleppt neinu úr sinni hendi með því. Það hefur aðeins gert tilraun til að gera framlag sitt drýgra með því að gefa þessa heimild og láta duglegar konur gangast fyrir samskotum málefninu til stuðnings, sem að langmestum hluta eru auðvitað eingöngu frá gefendunum sjálfum, en ekki aðeins 10% frá þeim.
Ég skal ekki mæla með því, að slíkar undanþágur sem þessi yrðu gerðar að almennri reglu. Ef menn óttast, að með þessu sé verið að losa um skriðu, þá er sjálfsagt að setja almennar reglur um þessi efni og setja takmörk þar, sem þurfa þykir. Ég held, að ég hafi verið einn þm. í fjhn. á síðasta þingi, sem vildi gefa gaum að frv. hæstv. fjmrh., sem fór einmitt í þessa átt. En ég vildi fastlega vænta þess, að þetta frv. yrði nú ekki ónáðað með því að höggva skarð í fríðindi þau, er það á að veita, auk þess sem málið væri sett í nokkra hættu á síðustu stundu. Ég legg því til, að frv. verði samþ. óbreytt.