25.09.1944
Neðri deild: 55. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 954 í B-deild Alþingistíðinda. (1624)

99. mál, lendingarbætur á Látrum í Aðalvík

Emil Jónsson:

Það er eingöngu vegna þess, að hv. frsm. er ekki viðstaddur, að ég vil segja um málið örfá orð í hans stað.

Eins og nál. ber með sér, hefur n. lagt til, að frv. yrði samþ. óbreytt eins og það liggur fyrir. Það er að vísu svo, að hér er, eins og í öllum þeim frv. um svipað efni, sem hér eru á dagskrá, farið fram á aðeins mjög óverulegar lendingarbætur,. og þess vegna er nokkur spurning, hvort til þess hefði þurft lagasetningu. En málið mun vera borið fram í þessu formi sérstaklega vegna þess, að á þann hátt einan er hægt að fá heimild til, að ríkissjóður ábyrgist þann hluta kostnaðar, sem ekki fæst sem styrkur úr ríkissjóði. Nokkurt umtal mun hafa átt sér stað um, hvort ekki væri hægt að koma þessu máli og öðrum svipuðum í eitt frv., en einhverra ástæðna vegna hefur þetta ekki verið talið fært að þessu sinni, og þess vegna hefur málið verið látið fara í þennan farveg, þó að hann sé nokkuð fyrirhafnarsamur, þar sem þarf sérstaka lagasetningu um hverjar lendingarbætur. Annars mun þetta mál og þrjú þau næstu á dagskránni vera öll um bráðnauðsynlegar lendingarbætur, þó að spurning sé um formið. Sem sagt, n. mælir með, að þetta sé gert að þessu sinni í þessu formi.