18.09.1944
Efri deild: 44. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 959 í B-deild Alþingistíðinda. (1643)

97. mál, tilraunastöð

Gísli Jónsson:

Ég vil aðeins þakka hv. landbn. fyrir skjóta og góða afgreiðslu á þessu máli. Út af ræðu hv. 2. þm. Árn. vil ég benda á, að það er í raun og veru með öðrum l. alveg fyrirskipað að reisa tilraunastöð í jarðrækt á Vesturlandi. Það eru l. nr. 64 6. maí 1940. En nauðsyn bar til að bera þetta frv. fram sérstaklega til þess að ákveða það, að þessi jörð skyldi valin og henni skipt. Er það samkv. till. n., sem skipuð var til þess að rannsaka og gera till. um þessi mál.

Eins og sást á frv. til l. um skóla að Reykhólum, er ætlazt til þess, að annað land en það, sem hér er ákveðið, sé lagt til skólans, þegar þess þarf með. Í áðurgreindri n. var Pálmi Einarsson ráðunautur meðal annarra og einnig í mþn. Ég vildi ekki raska þessari skiptingu á þessu stigi málsins. Ef skólinn yrði aldrei settur á stofn, er sjálfsagt hægt síðar meir að taka meira land til ræktunarstöðvarinnar, ef nauðsyn þykir. — Þessa skýringu vildi ég gefa á málinu.