27.09.1944
Neðri deild: 56. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 969 í B-deild Alþingistíðinda. (1698)

137. mál, lækningaleyfi til handa dr. Karl Kroner

Flm. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. forsrh. og hv. 1. þm. Rang. fyrir það, að þeir hafa báðir tekið vel á efni málsins. Ég vil undirstrika þann skilning, sem hæstv. forsrh. lagði áherzlu á, að tilgangurinn er aðeins sá að veita honum undanþágu frá ríkisborgararéttarákvæðinu, en ekki, að Alþ. færi að dæma um kunnáttu þessa manns, enda liggur þegar fyrir umsögn læknadeildar, sem telur allt vera í bezta lagi með þá hluti. Ég vil einnig undirstrika þann skilning hæstv. forsrh., að hér sé ekki um fordæmi að ræða, heldur einstakt tilfelli. Hv. 1. þm. Rang. sagði, að hann teldi frv. óþarft. Ég ætla, að flestir muni vera þeirrar skoðunar, að sá skilningur sé rangur. Í 2. gr. l. stendur, að þeir menn eigi rétt á að heita læknar, er lokið hafa prófi við Háskóla Íslands og eru íslenzkir ríkisborgarar. Í 3. gr. er svo gert ráð fyrir, að ráðh. sé heimilt að veita undanþágu frá prófskilyrðum við læknadeild Háskólans, og tel ég allvafasamt að leggja það mikið í þá undanþágu, að sleppa megi öllum hinum skilyrðunum. Hugsum okkur t.d. mann, sem ekki væri íslenzkur ríkisborgari og jafnvel hefði ekki óflekkað mannorð, að honum gæti ráðh. veitt slíkt leyfi. Þeir lögfræðingar, sem ég hef talað við, og hæstv. forsrh. lítur eins á það mál, álíta, að þessi undanþága í 3. gr. miðist eingöngu við undanþágu frá prófskilyrðum, og því hef ég litið svo á, að ekki væri hægt að koma þessu í kring, nema með sérstakri löggjöf. Annars þarf ekki að fara að deila um þetta, því að allir eru víst sammála um efnishlið málsins. Hv. 1. þm. Rang. sagði, að læknadeild Háskólans og landlæknir mundu hafa mælt með þessu, en eftir því, sem mér hefur verið skýrt frá, hefur landlæknir sagt, að dr. Karl Kroner hafi nóga þekkingu og próf, en ekki talið sér fært að mæla með honum, af því að hann vantaði ríkisborgararéttinn. Ég ætla svo ekki að fjölyrða meir um þetta, en tel rétt, að málinu verði vísað til nefndar.