24.10.1944
Efri deild: 63. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 971 í B-deild Alþingistíðinda. (1710)

137. mál, lækningaleyfi til handa dr. Karl Kroner

Frsm. (Bjarni Benediktsson):

Herra forseti. Heilbr.- og félmn. hefur haft þetta mál til meðferðar, og urðu allir nm., sem á fundi mættu, en það voru allir nema einn, hv. þm. Str., sammála um að mæla með að samþ. frv. óbreytt.

Þess ber þó að geta, að fyrir n. lágu till. bæði frá landlækni og Læknafélagi Reykjavíkur um það að afgreiða málið á annan veg heldur en hér er gert ráð fyrir. Landlæknir vildi, að breytt væri l. um lækningaleyfi á þann veg, að ráðh. gæti með samþykki landlæknis og læknadeildar Háskólans veitt lækningaleyfi slíkt sem þetta og í öðrum svipuðum tilfellum, en taldi það ranga aðferð að afgreiða málið með sérstakri lagasetningu, eins og hér er gert ráð fyrir. — Læknafélag Reykjavíkur aftur á móti leggur til, að dr. Kroner verði veittur ríkisborgararéttur, því að þá sé eftir gildandi l. ekkert því til fyrirstöðu, að hann geti fengið lækningaleyfi af hálfu ráðh., en telur hættulegt fordæmi að veita honum lækningaleyfi með sérstökum lögum.

Heilbr.- og félmn. lítur nú gerólíkum augum á þetta við Læknafélag Reykjavíkur, vegna þess að samkvæmt till. þess ætti að fara í kringum ákvæðin um lækningaleyfi og þar að auki veita ríkisborgararétt í því tilfelli, þar sem það mundi ekki eiga að gerast sökum þess, að ekki er um næga dvöl í landinu að ræða hjá viðkomandi aðila samkv. l. um ríkisborgararétt. Okkur virðist því, að sú leið, sem Læknafélag Reykjavíkur stingur upp á, sé óþörf og krókaleið og auk þess sé hún í raun og veru miklu hættulegra fordæmi heldur en þetta frv., sem hér liggur fyrir. — Varðandi uppástungu landlæknis vill n. út af fyrir sig taka það til vinsamlegrar athugunar, hvort rétt sé að breyta lækningaleyfislöggjöfinni á þann veg, sem landlæknir stingur upp á. En við höldum, að það sé ástæðulaust að blanda þeirri breyt., sem er almenns eðlis, saman við þetta sérstaka mál, sem hér liggur fyrir. Sú breyt., sem landlæknir stingur upp á, mun að sjálfsögðu orka nokkuð tvímælis og þarfnast frekari athugunar við, og mundi það taka nokkurn tíma að koma þessu máli, sem hér liggur fyrir, fram þannig. Hér liggur fyrir ákaflega einfalt mál, sem ég tel okkur frekar til vansa að hafa ekki afgreitt fyrir löngu, sem sé að láta dr. Karl Kroner fá lækningaleyfi hér á landi. Eins og vikið er að í nál., er dr. Kroner Íslendingum að góðu kunnur frá fornu fari. Hann og kona hans gerðu sér ákaflega mikið far um að veita Íslendingum aðstoð, meðan þau bjuggu í Berlín. Mátti segja, að þau hefðu tekið ástfóstri við alla Íslendinga, og sé ég hér inni a.m.k. okkur tvo, mig og hv. 7. landsk. þm., sem nutum góðs af þeirra gestarisni og umhyggju, meðan við vorum umkomulausir stúdentar í þessari stóru erlendu borg, og þannig mætti fjölda annarra Íslendinga telja. Og það er í sjálfu sér okkur sízt til sæmdar að láta þennan ágæta og nú aldurhnigna mann vera hér án réttinda við að stunda sitt starf, sem hann er mjög vel hæfur til, eftir að hann hefur hrakizt frá föðurlandi sínu fyrir stirfni og yfirgang valdhafanna. Það hefði átt að vera búið að afgreiða þetta mál fyrir löngu. En að svo hefur ekki verið gert, hefur ekki verið af illvilja, heldur hefur málið lent í undandrætti og flækjum. En það er nú kominn tími til þess að höggva á það og samþ. frv. óbreytt eins og það liggur fyrir. Vil ég eindregið mæla með því, að svo verði gert.