12.09.1944
Efri deild: 41. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 975 í B-deild Alþingistíðinda. (1723)

94. mál, byggingarmálefni Reykjavíkur

Gísli Jónsson:

Herra forseti. — Ég sé, að hv. flm. hefur misskilið aths. mína. Ég hef ekki ætlazt til, að leyft verði að halda áfram byggingu, heldur að fretað verði að rífa hana niður, þar til úrskurður er fallinn. Ég vænti, að með þeirri skýringu taki allshn. þetta til athugunar. Að vísu er það rétt, að það eru sum l., sem ákveða að láta úrskurði koma til framkvæmda strax, en þetta mál er ekki þess eðlis, að það sé nauðsynlegt.

Í 7. gr. er ákveðið, að það sé á valdi bæjarstj. að láta rífa niður byggingar, sem þegar eru reistar, en það er tekið fram, að ákvæði 6. gr. skuli einnig gilda um þær byggingar. Ég sé ekki, að það sé Rvíkurbæ til skaða, að ekki sé rifið niður, fyrr en úrskurður er fallinn.