16.11.1944
Neðri deild: 75. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 988 í B-deild Alþingistíðinda. (1789)
52. mál, hafnarlög fyrir Akureyrarkaupstað
Frsm. (Sigurður Kristjánsson):
Þó að málið hafi tafizt, gerði sjútvn. það ekki að sjálfráðu. Það var eigi fyrr en um miðjan okt., nokkru fyrir þinghléið, sem henni barst umsögn vitamálastjóra, en vitamálaskrifstofan þurfti mikinn tíma til að ganga úr skugga um ýmis efnisatriði áætlananna, sem samdar höfðu verið fyrir norðan.