12.10.1944
Neðri deild: 64. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 999 í B-deild Alþingistíðinda. (1854)
115. mál, laun háskólakennara Háskóla Íslands
Skúli Guðmundsson:
Herra forseti. Með þessu frv. er lagt til, að stofnuð verði nokkur ný embætti við Háskóla Íslands. Þó skilst mér, að þeir kennarar, sem ráðgert er að ákveða með lögum, að starfi við skólann eftirleiðis, séu nú þegar orðnir kennarar við háskólann, en bara án þess að nokkur lagafyrirmæli séu um störf þeirra.
Ég leyfi mér að flytja hér brtt. við frv., á þskj. 407, þess efnis, að í stað þess, að því verði nú þegar slegið föstu, að þessi embætti skuli stofnuð, verði þessir kennarar ráðnir til bráðabirgða til 15. júní 1946, en tímamark þetta er sett af því, að þá eru lok skólaárs. Fleiri en ein ástæða eru til þess, að ég tel það ekki vera heppilegt að ákveða nú, að þessi embætti skuli stofnuð til frambúðar, þó að vel mætti svo fara, að það álítist réttmætt síðar. Vil ég þá fyrst nefna það, að nú er starfandi mþn. í skólamálum. Hér á hæstv. Alþ. var samþ. þál. um skipun mþn. í skólamálum 16. -júní 1941, og hljóðar hún svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Alþ. ályktar að fela ríkisstjórninni að skipa milliþinganefnd skólafróðra manna, til þess að rannsaka kennslu- og uppeldismál þjóðarinnar og gera tillögur um skipun þeirra, þar sem stefnt sé að því að gera skólana sem hagfelldasta, samræma skólakerfið, ákveða betur en nú er starfssvið hinna ýmsu skóla og sambandið þeirra á milli.“
Þessi n. hefur enn ekki lokið störfum, og er einn af prófessorum háskólans í þessari milliþinganefnd. Þó að ekki kæmi fleira til, fyndist mér það ærin ástæða til að fresta því nokkuð að taka endanlega ákvörðun um þessi embætti, að þessi n. hefur ekki enn lokið störfum. En fleira mætti vitanlega nefna, t.d. það, að búast má við, að viðhorf manna í þessum efnum breytist, þegar stríðinu lýkur. Það hafa verið meiri örðugleikar en áður fyrir íslenzka stúdenta að stunda nám erlendis, og væntum við, að það breytist áður en langt um líður. Ég vænti, að hv. d. geri sér ljóst, að ef brtt. mín verður samþ., hefur hún enga aðra röskun í för með sér á frv. en þá, að þessir kennarar verða ráðnir fyrst um sinn til 15. júní 1946 og fyrir þann tíma yrði að sjálfsögðu tekin ákvörðun um, hvernig á að hafa þetta í framtíðinni.