12.10.1944
Neðri deild: 64. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1000 í B-deild Alþingistíðinda. (1855)
115. mál, laun háskólakennara Háskóla Íslands
Frsm. (Gunnar Thoroddsen):
Herra forseti. Menntmn. hefur ekki tekið afstöðu til þessarar brtt. hv. þm. V.-Húnv., hefur ekki haldið fund um það atriði, síðan hún kom fram. Ég tel þó víst, að n. muni leggja gegn henni, en það, sem ég segi hér um þetta mál, er aðeins mín persónulega skoðun.
Þessi brtt. fer fram á, að í stað þess að lögfesta tvö embætti í viðskiptafræði, sem nú eru, bæta við tveimur dósentum í heimspekideild og lögfesta verkfræðideildina þá verði ríkisstjórninni veitt heimild til að ráða fasta kennara við háskólann núna fram til 15. júní 1946, tvo kennara í viðskiptafráeði, tvo kennara í bókmenntum og sögu og þrjá kennara í verkfræði. Að því er snertir fyrsta atriðið, viðskiptafræðina, þá er það um hana að segja, að 1941 var skipaður í henni dósent af þáverandi kennslumálaráðherra, Hermanni Jónassyni, og annar 1942 af þáverandi kennslumálaráðherra, Magnúsi Jónssyni. Viðskiptadeildin er lögfest fyrir þremur árum, og er vitanlega fjarstæða að ætlast til, að hún starfi áfram sameinuð lagadeild háskólans, án þess að ráðnir séu nokkrir fastir kennarar til frambúðar. Það er búið að lögfesta deildina, og það að ætla sér að veita heimild til að ráða kennara til skamms tíma er vitanlega hrein fjarstæða.
Að því er snertir kennslu í bókmenntum og sögu hefur verið sýnt fram á með ljósum rökum í bréfi heimspekideildar til Alþingis, að fullkomin nauðsyn er á að auka kennslu í þessari grein, og hef ég ekki orðið annars var en að allur þorri manna á Alþ. sé sammála um, að það beri að efla fræðslu í þessari grein, svo að háskólinn geti að því leyti orðið miðstöð, einnig miðað við önnur lönd. Væri miklu hreinlegra af hv. flm., ef þeir telja ekki þörf á þessu, að fella till. hreinlega en að ráða kennara til eins eða tveggja ára, sem nær engri átt. Menn verða að gera upp við sig á þessu stigi málsins, hvort menn vilja auka kennslu í íslenzkum fræðum eða ekki. Ef menn álíta það nauðsynlegt, greiða þeir atkv. með þessu ákvæði frv., annars á móti því. Að veita heimild til að ráða kennara til skamms tíma nær vitanlega engri átt.
Um verkfræðideildina er óþarft að fara mörgum orðum, og skýrði ég það við 1. umr. Ég býst við, að það geti orkað nokkuð tvímælis, hvort efla beri verkfræðikennslu til frambúðar, en flestir munu vera sammála um, að æskilegt sé að lögfesta fyrri hluta kennslu til fyrri hluta prófs, þannig að próf við þá deild hljóti viðurkenningu annarra þjóða, en þetta mundi verða til þess að minnka mjög námskostnað stúdenta erlendis. Þeir kennarar í verkfræði, sem hér eru, eru það minnsta, sem hægt er að fara fram á, svo að þessum hluta verkfræðikennslunnar sé fullnægt.
Ég vil ekki fara um þetta fleiri orðum, en vil aðeins taka fram, að þetta frv. er flutt einhuga af menntmn., og var um það enginn ágreiningur í nefndinni. Það er flutt að mjög athuguðu ráði, og vil ég mæla með afgreiðslu þess eins og það liggur fyrir með þeim brtt., sem menntmn. sjálf flytur.