12.10.1944
Neðri deild: 64. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1004 í B-deild Alþingistíðinda. (1862)

115. mál, laun háskólakennara Háskóla Íslands

Sigfús Sigurhjartarson:

Mér virðist það alveg rétt, að nógur tími verði til að afgreiða málið á þessu þingi, þótt því verði nú vísað til milliþn. til umsagnar, enda vonazt eftir mjög tafarlítilli afgreiðslu þar.

Hv. 2. þm. S.–M. hefur ekki skilið það, sem ég sagði um, að milliþn. hikaði við að semja framhaldstillögur að svo stöddu. Hér er verið að leggja grundvöll að allsherjarskólakerfi. Þar sem byggja verður ofan á lægri skólunum með þeim umbótum og aukningum, sem tilteknar eru í till. n., væri gagnslaust, að n. byggði á þessum hugsaða grundvelli sínum, meðan ekki er tryggt, að hann verði meira en pappírsgagn í meðförum Alþingis. Það er ekki heldur hægt að byggja yfirbygginguna nú á öðrum grunni, allt öðrum grunni en það hús á að standa á. Þetta ætti ekki að þurfa að skýra frekar. Og verði Alþ. algerlega á móti n., býst ég ekki við, að það óski eftir fleiri og meiri till. í sömu átt frá henni, né heimti af henni tillögur, sem ganga ættu í öfuga átt.

Lítils háttar ummæli hjá hv. þm. V.-Sk. (SvbH) get ég drepið á stuttlega. Í fyrstu ræðu sinni taldi hann ófært að samþ. frv. eins og nú stæði fjárhagur ríkisins, en þó vill hann samþ. frv. með brtt. þm. V.-Húnv., en með því móti yrðu útgjöld ríkisins á næsta ári jöfn að kalla og er eftir frv. Þetta kalla ég samkvæmni. Hann hafði það eftir mér, að milliþn. kæmi málið ekki við og hún léti sig það engu skipta. Það er varla hægt að deila við andstæðinga, sem þannig vitna í ræður manna nýfluttar, og það er sama, hvort þessi hv. þm. talar um mjólkurmál eða skólamál, sífelldar rangfærslur.

Þá vildi ég spyrja hv. þm., hvenær hann bar fram þetta frv. og á hvaða þingi. — — Nú, svo að hv. þm. hefur ekki hug á að svara þessu. En ég get sagt honum, að milliþn. í skólamálum tók til starfa í júlí síðastliðið sumar. Ég ætla því, að öll þau mörgu orð hv. þm. um hirðuleysi þessarar n. séu að ófyrirsynju mælt. Ég veit ekki til, að n. hafi reynt að bregða fæti fyrir það, að komið yrði upp menntaskóla í sveitum. Hitt veit ég, að n. taldi rétt að snúa sér til þessa hv. þm. varðandi þetta mál. Honum var skrifað bréf um að láta n. í té þær upplýsingar, sem hann kynni að hafa á takteinum, og er mér ekki kunnugt um, að hann hafi gefið sér tíma til að svara n., og er það ásamt þeirri ræðu, sem hann hélt hér áðan, út af fyrir sig nokkur lýsing á þessum hv. þm.

Ég ætla ekki að eyða í þetta meiri tíma og mun ekki þreyta orðasennu við hv. þm. V.-Sk. um þetta mál, en mér fyndist eðlilegt, að umr. yrði frestað og óskað yrði eftir umsögn mþn. um málið.