12.10.1944
Neðri deild: 64. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1005 í B-deild Alþingistíðinda. (1864)

115. mál, laun háskólakennara Háskóla Íslands

Eysteinn Jónsson:

Ég vil aðeins geta þess, að ég get ekki fallizt á skoðanir hv. 8. þm. Reykv. um það, hvernig milliþn. í skólamálum eigi að starfa. Ég álít brýna nauðsyn, að milliþn. í skólamálum láti fara frá sér heildaráætlun þegar í öndverðu, svo að hægt sé að sjá, hvernig hún vill láta haga náminu. Það er erfitt fyrir þm. og aðra að taka afstöðu um þetta mál, nema þeir geti gert sér grein fyrir, hvernig haga eigi framhaldsnáminu, þannig að byrjunarnámið verði athugað í nánu sambandi við það, og ég vil skora á hv. 8. þm. Reykv. að beita sér fyrir því í milliþn., að heildarálit komi frá henni í öndverðu.