12.10.1944
Neðri deild: 64. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1006 í B-deild Alþingistíðinda. (1868)
115. mál, laun háskólakennara Háskóla Íslands
Eysteinn Jónsson:
Frv. þm. Snæf. sneri sér til mín með þjósti og kvað það undarlegt, að ég skyldi vera að malda hér í móinn. Ég held, að hv. þm. hafi ekki tekið vel eftir því, sem ég sagði, en ég tók fram, að með 1. gr. frv. væri gert ráð fyrir, að lögfest væri það ástand, sem nú er. Við þetta hef ég ekkert að athuga. En ég sagði, að það væri álitamál, hvort skynsamlegt væri að setja l. um, að verkfræðideild starfaði til frambúðar og yrði efld frekar, eða hvort réttara væri að treysta á menntun íslenzkra verkfræðinga utan lands. Um stofnun tveggja dósentsembætta sagði ég ekkert annað en að ég áliti, að það atriði ætti að koma fyrir milliþn. eins og hitt með verkfræðideildina, en á þetta lagði ég annars engan dóm. Það er sitt hvað að stuðla að því, að verkfræðinemar geti fengið kennslu hér heima, á meðan þeir komast ekki annað, eða stofna hér verkfræðideild til frambúðar. Annars er langt frá því, að ég sé á móti því, að hér sé stofnuð verkfræðideild, þó að ég álíti sjálfsagt, að málið verði athugað í milliþn. Ég get bætt því við, að ef því fengist ekki framgengt, að þetta yrði athugað í n., mundi ég sjá mig knúinn til að fylgja till. hv. þm. V.-Húnv. En það er rétt hjá hv. þm. Snæf., að sú till. þarf lagfæringar við varðandi dósentsembættin við viðskiptadeildina, og ég skal játa, að ég hafði ekki tekið eftir því, þegar ég lét í ljós skoðun mína.
Ég vona svo, að málið gangi til milliþn. og að frá henni komi rökstutt álit, og vil ég láta í ljós ánægju mína með þá yfirlýsingu hv. 8. þm. Reykv., að n. muni láta slíkt álit frá sér fara, en það er allt annað en mér hefur áður skilizt á honum.