20.10.1944
Neðri deild: 68. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1007 í B-deild Alþingistíðinda. (1870)
115. mál, laun háskólakennara Háskóla Íslands
Frsm. (Gunnar Thoroddsen):
Herra forseti. Þegar mál þetta var til umr. hér í síðustu viku, komu fram raddir um, að æskilegt væri að leita umsagnar mþn. í skólamálum um þetta frv. Samkomulag varð um, að svo skyldi gert, og sendi menntmn. Nd., sem frv. þetta flytur, málið þessari mþn. til umsagnar. Menntmn. hefur nú borizt svar mþn., dags. 16. okt. 1944, sem ég vildi leyfa mér að lesa upp, með leyfi hæstv. forseta:
„Háttvirt menntamálanefnd neðri deildar Alþingis hefur með bréfi, dags. 12. þ.m., sent hingað til umsagnar frumvarp til laga um breyting á og viðauka við lög nr. 36 30. júlí 1909, um laun háskólakennara, og um breyting á lögum nr. 21 1. febr. 1936, um Háskóla Íslands.
Milliþinganefndin hefur þ. 14. þ.m. haldið fund um málið. Telur hún frumvarpið (þingskj. 308) stefna í rétta átt og mælir með því, að það nái fram að ganga á Alþingi.
F.h. milliþinganefndar í skólamálum. Ásmundur Guðmundsson. Helgi Elíasson.“ Þar sem nú umsögn mþn. er komin, vænti ég þess, að betra samkomulag geti náðst um afgreiðslu þessa mals, því að svo virtist við 3. umr. hér um daginn, sem mönnum þætti það helzt á skorta, að álit mþn. væri ekki komið.