05.12.1944
Efri deild: 82. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1012 í B-deild Alþingistíðinda. (1881)
115. mál, laun háskólakennara Háskóla Íslands
Magnús Jónsson:
Hv. þm. S.–Þ. (JJ) er ekki viðstaddur hér nú. Það gerir að vísu ekki mikið til, því að fátt er það, sem þarf að svara honum hér. Býst ég líka við, að frsm. meiri hl. (KA) sé miklu meira en fær um það.
Hv. þm. S.-Þ. var að skopast að því, að háskólaráð vissi ekki, hvað margar deildir væru í háskólanum, því að í mörg ár hefði staðið í háskólalögunum deild, sem ekki væri til, atvinnudeildin.
Ég vil benda hv. þm. á, að í 14. gr. laga um atvinnudeildina stendur, að með tíð og tíma skuli hún taka upp kennslu í ýmsu því, sem þar er tekið til meðferðar, og þá skyldu þeir, sem þar starfa, vera kennarar. Þar myndast því sérstök kennsludeild, sem lýtur almennum fyrirmælum og sömu skipulagningu og aðrar kennsludeildir háskólans. Og þó að í svipinn þætti rétt að setja á stofn rannsóknarstofnun, þá var gert ráð fyrir því, að á sínum tíma yrði þetta deild við háskólann. Því var eðlilegt að setja þessa deild inn í háskólalögin, þegar hún tæki til starfa, sem gert er ráð fyrir að verði á sínum tíma, og því er gert ráð fyrir því í l., að deildirnar væru fimm.
Það er undarlegt, að maður, sem vill vera að kenna háskólanum, skuli ekki vita deili á því, að það kemur enginn rektor frá þessari deild; það er rektor fyrir háskólaráði, en hins vegar deildarforsetar fyrir deildunum.
Ég vil svo segja það, út af till. hv. þm. um fjóra kennara í verkfræðideild, sem hann hefur nú að vísu tekið aftur, að mér virðist það mjög eðlilegt, að Alþ. haldi sér í þessum efnum að þeim till., sem frá háskólaráði koma. Eins og vitað er, eru uppi till. um miklu fleiri kennara við deildina, en eftir því sem mér er kunnugt, mælir háskólaráð með því, að þrír kennarar verði skipaðir við deildina, og þess vegna er rétt að halda sér að því.
Ég vil svo aðeins taka það fram, út af ræðu hv. þm. Dal., að ég er honum sammála um, að rétt sé að taka þessi háskólamál í áföngum, en mér finnst, að með þessu frv. séu þau einmitt tekin í áföngum, og gæti þessi hv. þm. samþ. frv. a.f þeim ástæðum. Því fer svo fjarri, að hér sé um sjö ný embætti að ræða, því að eins og frsm. menntmn. lýsti yfir og eins og frv. ber með sér, er ekki í raun og veru nema um tvö ný embætti að ræða. Hitt atriðið er um það, að lögfesta skuli starfsemi, sem þegar hefur verið tekin upp, og ég held naumast, að nokkrir hv. þm. þurfi að láta sér koma til hugar, að þeirri starfsemi, sem þegar er hafin í verkfræðideild, verði hætt. Þeir, sem að þessari d. standa, hafa óskað eftir því, eins og ég held, að hv. frsm. menntmn. hafi einnig tekið fram, að fleiri kennarar verði settir við verkfræðideildina, en hér er einmitt farið fram á að taka þessi mál í áföngum, sem sé að lögfesta nú til bráðabirgða það, sem þegar er byrjað á, að búa menn undir byrjunarnám í verkfræði. Hins vegar álít ég, að rannsaka þurfi betur en gert hefur verið, hvort ástæða er til þess í náinni framtíð að taka upp við háskólann meira en fyrrihlutanám í verkfræði. Ég er enginn verkfræðingur, en maður getur sagt sér það sjálfur, að það muni verða erfitt að hafa hér því á að skipa, sem með þarf, ekki aðeins hvað viðvíkur kennurum, heldur og öllum þeim rannsóknarstofum og öllum þeim mannvirkjum, sem nauðsynlegt væri, að verkfræðingar kynntust, áður en þeir yrðu fullgildir verkfræðingar. Mér þykir einmitt ástæða til þess, að sem flest verkfræðingaefni fari utan og fái tækifæri til þess að kynnast ýmsu í þessum greinum, sem aðrar þjóðir standa okkur miklu framar í. Það sýnir einmitt, hversu mikil hófsemi er í þessu frv., að háskólaráð fer ekki fram á annað en byrjunarkennslu í þessari deild, og er heldur ekkert vit í að hætta við hana. Við vöðum nú í erlendum gjaldeyri, en þeir tímar geta komið aftur, að það þyki mikils virði, að sparaður hafi verið erlendur gjaldeyrir, og eitt ráð til þess að spara hann og jafnframt til þess að auka menntun þjóðarinnar er að kenna innan lands eins mikið og unnt er. Við ættum ekki aðeins að lögsetja þessa undirbúningskennslu í verkfræði, heldur og í ýmsum öðrum greinum, svo sem málfræði, náttúruvísindum o.fl., þannig að unnt verði hér heima að afla þjóðinni menntunar og jafnframt að spara að senda menn til útlanda fyrr en á síðasta áfanganum. Auk þessa hefur þessi undirbúningsfræðsla þann kost í för með sér, að það verður margfalt auðveldara að velja úr menn, sem styrkja á til náms í útlöndum, eftir að búið er að reyna þá hér við skólann í tvö ár. Menn hafa hingað til runnið nokkuð blint út í að styrkja nýja stúdenta til náms í útlöndum, en á þennan hátt verður auðveldara að velja þá stúdenta úr, sem skara fram úr, til þess að styrkja þá til útlanda, þannig að þeir verði fullkomnir í sinni grein.
Um það atriði, hvort þrír prófessorar eða tveir prófessorar og einn dósent skuli verða í verkfræðideild, skal ég ekki dæma, en vil geta þess, að dósentsembætti við háskólann hér mun ekkert eiga skylt við það, sem kallað er dósentsembætti við erlenda háskóla. Þetta embætti hér er fullkomin námsgrein, og ég býst við, að svo verði einnig um verkfræðideildina hér, þannig að þessir menn verði allir að vera fullkomnir kennarar í sinni kennslugrein, þar sem með þessu er verið að taka upp nýja og frumlega starfsemi hér á landi. Ég skal svo ekki fjölyrða um þetta atriði, en mér virðist, að menn séu sammála um að fjölga kennurum háskólans, og þó sérstaklega í vísindastörfum við norrænudeildina. Ég held, að við verðum að hafa það fyrir reglu að efla þessa deild svo, að enginn vafi leiki á því, að hér sé miðstöð norrænna fræða, — að ekki stundi aðeins nám við hana Íslendingar, heldur komi hingað til háskólans allir þeir menn, sem vilja nema þessi fræði til fullnustu, og að þeir fái að njóta hér hinnar beztu kennslu. Það er enginn vafi á því, að þessir tveir menn, sem þessi tvö dósentsembætti eru ætluð, eru hvor um sig ákaflega hæfir menn til þess að taka þessi störf að sér. Þessir menn eru báðir doktorar, og ég held, að ég fari rétt með það, að sá, sem ætlað er dósentsembættið í bókmenntum, hafi tekið magisterspróf með ágætiseinkunn, og í raun og veru var svo litið á, að aðalritgerð hans mætti taka sem doktorsritgerð, sem ekki er vanalegt, og hefur hann nú haldið áfram störfum síðan og sýnt frábæran dugnað. Hinn maðurinn, sem ætlað er dósentsembættið í sögu, er einnig talinn óvenjulegum gáfum gæddur og mjög vel að sér í mannfræði og í öðrum fræðum, og ætti því einnig að tengja hann við háskólann nú þegar.
Mér þykir vænt um, að þetta frv. hefur fengið hér sæmilegan byr, og vonast til þess, að það verði samþ., en það þýðir hins vegar ekki að láta sér detta í hug annað en að það, sem þetta frv. fer fram á, sé aðeins áfangi. Við verðum að búa vel að háskólanum, okkar æðstu menntastofnun, ef við ætlum lífi að halda, og nota okkur hina frámunalegu bókhneigð þjóðar vorrar til þess að gera hana fremsta allra þjóða í því að vera vel að sér. Menn, sem hafa verklegar framkvæmdir með höndum, verða þess fljótt varir, hvort vel menntaður maður er í hverju rúmi eða ekki, og oft hef ég heyrt verkstjóra tala um, að ólíkt sé að kenna þeim manni verk, sem er vel menntaður, eða þeim, sem er fáfróður. En þótt það sé ágætt, að ekki sé horft í kostnað við að mennta almenning, ber okkur ekki að gleyma því, að hátindur menningar og vísinda verður einnig að vera áberandi og vel til hans vandað, og verður því háskóli vor að uppfylla þau skilyrði.
Ég sakna þess einna mest í þessu frv., að mér finnst óþarflega fátt fram tekið í því, en það er eins og hv. þm. Dal. sagði og ég get tekið undir, að bezt er að taka þessi mál í áföngum. Ég held, að við háskólann þurfi að vera fleiri tegundir af kennurum; ég held t.d., að í háskólalögunum sé alls ekki gert ráð fyrir lektorsembætti. Það væri hins vegar mjög eðlilegt, að slíkt embætti væri hér við háskólann, og gæti sá maður, sem því gegndi, verið öðrum kennurum til styrktar og kennt nokkuð, þannig að gagn yrði að hans fróðleik, en gæti auk þess búið sig undir frekara embætti. (ÞÞ: Er ekki dr. Björn Guðfinnsson lektor við Háskólann?) Ég held, að það embætti sé ekki í háskólalögunum. Það væri mjög hentugt að hafa slíkt embætti í norrænudeildinni, sem gerði þeim manni mögulegt að stunda sín fræðistörf, jafnframt því, sem skólinn gæti notið fróðleiks hans með kennslu. Einnig væri hugsanlegt að setja inn í háskólalögin ákvæði um „extraordinaire“ kennara, þegar um er að ræða einstaka menn, sem kæra sig ekki um fast embætti við stofnunina, heldur gert ráð fyrir að skapa slíkum mönnum aðstöðu til þess að vera tengdir við háskólann á þennan hátt. Mundu þeir auka hróður stofnunarinnar fyrir fræði- og vísindastörf sín og um leið verða nemendum að gagni. Mætti t.d. nefna Bjarna Sæmundsson og dr. Hannes Þorsteinsson. — Er það því von mín, að hæstv. Alþ. og háskólaráð verði samhent um að greiða veg þessarar stofnunar sem bezt.