05.12.1944
Efri deild: 82. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1017 í B-deild Alþingistíðinda. (1884)

115. mál, laun háskólakennara Háskóla Íslands

Menntmrh. (Brynjólfur Bjarnason):

Herra forseti. Það hefur komið fram nokkur misskilningur í sambandi við þetta frv. Þeir hv. þm., sem talað hafa, virðast sammála um, að rétt sé að lögfesta 2 dósentsembætti við heimspekideildina. En þeir virðast vera í vafa um, að rétt sé að stofna verkfræðideild með 3 prófessorum. Ég álít, að aðalefni þessa frv. sé stofnun verkfræðideildar. Ég álít það alveg óhjákvæmilega nauðsyn. Ég er sammála um myndun dósentsembættanna við heimspekideildina og um dósenta í viðskiptafræðum. Hér er ekki um neina nýja starfsemi að ræða.

Frv. gerir ráð fyrir 3 prófessorum, sem annist kennslu undir fyrri hluta próf í verkfræði. Háskólinn getur nú útskrifað byggingarverkfræðinga og er þegar byrjaður á því. En spurningin er, hvort við eigum að leggja niður kennslu í verkfræði.

Það er sýnt fram á í greinargerðinni af háskólaráði, að kostnaðarauki við stofnun hinna þriggja prófessorsembætta er aðeins 3000 krónur, borið saman við þá stundakennslu, sem farið hefur þar fram. Ef hv. þm. vildu gera sér það ómak, gætu þeir sannfærzt um, að ekki eru mikil líkindi til, að hægt verði að halda kennslu áfram í þessum greinum, ef það ástand, sem nú ríkir, verður látið haldast áfram.

Hv. þm. Dal. sagði, að sér fyndist þetta stórt stökk og ekki væri ástæða til að gera alla þessa menn að prófessorum. En hér kemur í fyrsta lagi ekki til greina dósentsembætti, því að kennsla sú, er um ræðir, er við hæfi prófessorsembættis. Verkfræðilega menntaðir menn eru svo eftirsóttir í okkar þjóðfélagi, að ekki er hægt að fá þá til kennslu fyrir minna en prófessorslaun. Ég á erfitt með að skilja, að nokkur hv. þm. vilji láta leggja þessa kennslu niður. Verkfræðinga vantar okkur, og helzt nú, þegar mjög er takmarkað, sem menn geta stundað þetta nám erlendis vegna styrjaldarinnar. Það þarf því að komast í fast horf, til þess að fyrri hluta próf í þessari grein fáist tekið , gilt erlendis. Það er þegar tekið gilt í Ameríku. Ég get varla skilið, að menn geti ekki verið á eitt sáttir um, að þessi kennsla eigi að halda áfram, en það er ekki hægt nema þessi embætti séu stofnuð. Hitt er hægt að deila um, hvort halda eigi áfram að kenna byggingarverkfræði. Ég geri ráð fyrir, að ef til vill verði hægt að útskrifa þá, sem nú stunda nám, án þeirra breytinga á kennslukröftum, sem um ræðir í þessu frv. En til þess að hægt verði að halda þessari kennslu áfram þarf fimm kennara í verkfræði. Ég hygg, að flestir verkfræðingar séu þeirrar skoðunar, að halda beri kennslunni áfram og heppilegt sé fyrir íslenzka verkfræðinga að hafa stundað nám hér heima. Hér hafa þeir tækifæri til að kynnast íslenzkum verkefnum. Hitt er annað mál, að nauðsynlegt mundi vera fyrir þessa verkfræðinga að fullkomna sig erlendis, eins og t.d. lækna.

Ég vil hins vegar ekki leggja til, að tekin verði fleiri embætti inn í þetta frv., því að á þessu stigi gæti það orðið til þess að spilla fyrir málinu og að frv. næði ekki fram að ganga.

Hv. þm. S.-Þ. hefur borið fram brtt. um að hækka tölu kennaranna úr 3 í 4. Þessi hækkun mundi ekki verða fullnægjandi, ef þessir föstu kennarar ættu að annast alla kennslu. Sé ég því ekki ástæðu til, að þessi brtt. verði samþ. Áður en afráðið verður að setja fastakennara í byggingarverkfræði, þarf að fara fram frekari athugun og frekari reynsla að fást í þessum efnum, til þess að menn verði sammála um það, eins og nauðsyn þess að halda áfram kennslu undir fyrri hluta próf.