05.12.1944
Efri deild: 82. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1019 í B-deild Alþingistíðinda. (1885)

115. mál, laun háskólakennara Háskóla Íslands

Eiríkur Einarsson:

Herra forseti. Ég skal taka það fram, að allt, sem ég ætla að segja, er í fullu samræmi við það, sem sagt hefur verið fyrr um þetta mál. En af því að þetta er stórt mál, vil ég láta það heyrast, að ég hef ekki fylgt því með hangandi hendi, heldur af miklum áhuga.

Þegar talað er um, að þetta sé stórt spor, það þurfi að taka þetta í áföngum, flýgur mér í hug atvik úr sögu háskólamálsins, þegar stórt spor var stigið, en það er ekki með þessu frv., heldur með stofnun háskólans. Það var stórt og djarft spor. Það er þegar fyrir löngu orðið ljóst, að ekki er hægt að einskorða háskólanám við guðfræði, læknisfræði og lögfræði. Þessar greinar komu fyrst. Síðar kom viðskiptafræði og svo verkfræðideildin. Hún var stofnuð af nauðsyn, vegna ófriðarins.

Ég verð að taka undir það með þeim hv. ræðumönnum, sem hér hafa talað á undan mér, að það er sjálfsagt að efla norrænudeildina, efla sjálfa fræðadeildina sem allra mest. En þann hugsunarhátt, að ekki sé nauðsynlegt að stofna hér fullkomna verkfræðideild, skil ég ekki. Þróun síðustu ára heimtar stöðugt meiri verklega þekkingu, og við verðum því að koma á fót fullkominni verkfræðideild, sem getur útskrifað þá verkfræðinga, sem þjóðfélagið þarfnast. Menntun þeirra þarf að fara fram hér á landi. Staðhættir landsins krefjast þess, að þeir fái sérstaka íslenzka þekkingu í þessum efnum. Hana fá þeir bezta hér heima á Íslandi, og hún á bezt heima hér á landi.

Ég vil geta þess til samanburðar, að til þess að geta haft marga kennara í norrænum fræðum þurfa undirstöðurnar að vera lagðar á vettvangi raunveruleikans.

Svo er það eitt, sem veldur því, að ég held, að rétt sé að fylgja frv., en það eru meðmæli háskólaráðs. Ef ekki er hægt að taka tillit til þeirra, er líka hægt að véfengja starf háskólans. Mér dettur ekki í hug, að þessir menn vilji baka ríkissjóði aukin útgjöld nema fyllsta nauðsyn sé til þess. Meðal þessara manna eru prófessorar í læknisfræði. Ef við getum trúað þeim fyrir að krukka í okkar vesæla kropp, getum við eins treyst þeim í þessu efni. Það liggur skýlaust fyrir, að framgangur þessa frv. er hin mesta nauðsyn, og vil ég ekki leggja stein í götu þess með því að flytja brtt. við það, með því líka að þingtíminn styttist nú óðum.