12.12.1944
Efri deild: 86. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1028 í B-deild Alþingistíðinda. (1893)
115. mál, laun háskólakennara Háskóla Íslands
Jónas Jónsson:
Út af ræðu hv. 6. þm.. Reykv. vildi ég benda á það, að ástæðan til þess, að svo mjög er sótt á um fjölgun embætta við háskólann sem raun ber vitni um, er vafalaust hið almenna viðhorf í peningamálum. Röksemdir hans um þetta hygg ég séu réttar, og einnig hygg ég, að sá spádómur hans sé réttur, að í þessum efnum færi að verða lítið um peninga til þess að standa undir því, sem nú þykir létt, þegar frá líður núverandi góðæristímabili. En þegar þess er gætt, að nú hefur verið mynduð stj. með það sem eitt af aðalstefnumálunum að festa embættislaun ríkisins um alla framtíð, búa til föst launalög, sem eru svo gífurleg, miðuð við núverandi ástand, að ofan á þá miklu hækkun, sem sérstaklega er getið 1942, þegar verkalaun hækkuðu mikið, þá á að bæta við það, þannig að það skipti nokkrum millj., sem ríkið verður eftir þessum væntanlegu launalögum að greiða meira en nú er, — þá er þetta í sjálfu sér ekkert undarlegt.
Frá mínu sjónarmiði eru öll þau rök, sem hv. 6. þm. Reykv. kom með viðvíkjandi háskólanum, að öllu jöfnu rétt varðandi launamálin. Ástæðan til þess, að ég hef leyft mér að bera fram till. um að bæta einum prófessor við, er sú, að það er engin ástæða til annars en að fylgjast með straumnum eins og hann er, það er sífellt verið að leita á þingið, eins og kom fram í ræðu hv. 6. þm. Reykv., og tel ég því rétt að prófa nú, hvort þeir þm. ætlast til, að framhaldsnám verði í verkfræði, og hvort þeir treysta sér til þess að taka afleiðingunum af ákvörðun sinni að festa við verkfræðideildina lágmark þeirra kennslukrafta, sem þarf til þess, að þessi kennsla geti orðið annað og meira en bráðabirgðakennsla. Þess vegna er það, að þessar ráðagerðir allar um launalögin og hin mikla viðbót við háskólann verða að skoðast í ljósi þess andlega ástands, sem er í landinu, og engar líkur er til annars en að að því komi, að endurtekin verði sagan frá því eftir fyrra stríð, þegar verið var að braska við að halda uppi háskólanum með því að leggja niður sum embættin, sem stofnuð höfðu verið áður. Meira að segja, eins og hv. 6. þm. Reykv. vék að, var horfið að því að fækka í hæstarétti, því að þá þótti of mikið að hafa 5 menn í honum. Annars vildi ég nota tækifærið til þess að benda á það, þar sem sumir menn hafa mælt, að það þyrfti að fjölga aftur í hæstarétti, að það mun á hverjum tíma fullerfitt að fá, ekki aðeins prófessora í lögum við háskólann, heldur líka þessa 3 menn í hæstarétt, það hefur verið erfitt að fylla þessa tölu, þótt hér sé margt vaskra manna í þeim efnum, og þá er bent á það, að það sé svo lítill áhugi hjá lögfræðingum landsins fyrir fræðilegum rannsóknum, að það sé stór hnignun frá því, sem var, þegar Páll Briem, amtmaður, fyrir aldamót gat gefið út lögfræði- og hagfræðitímarit. Nú er ekki hægt, þrátt fyrir mikinn fjölda lærðra lögfræðinga, að gefa út eitt einasta slíkt rit. Hugsunarháttur þessara manna snýst eingöngu um það praktíska efni, svo sem málfærslu o.fl., en þessi merkilega grein íslenzkrar fræðimennsku hefur fengið einna minnstan stuðning af öllum okkar fræðigreinum síðasta mannsaldurinn. Þess vegna hygg ég, að það hafi verið réttur hugsanagangur hjá stj. að bæta ekki við í hæstarétt, þó að það hafi verið hægt samkvæmt l., og alveg sérstaklega vil ég nota þetta tækifæri til þess að benda hæstv. stj. á það, að hæstiréttur hefur frá byrjun verið settur svo hörmulega með húsnæði, að það er til skaða og minnkunar fyrir stofnunina og fyrir landið sjálft og fyrir allar þær ríkisstj., sem hafa verið hér áður, og tek ég engan þar undan, því að það er skemmst af að segja, að þetta húsnæði er ekki mönnum bjóðandi og hefur stórspillandi áhrif á menn. Eitt af því, sem var mjög óheppilegt, þegar háskólinn var byggður, var það, að ætla ekki hæstarétti sæmilegt rúm í byggingunni fyrst um sinn. En það var ekki gert, og er það að nokkru leyti hæstaréttardómurunum sjálfum að kenna, því að þeir hafa ekki með neinum eðlilegum hætti borið upp sína kveinstafi. En engu að síður er þetta atriði, sem nú er knýjandi fyrir hæstv. stj. að reyna að ráða fram úr. Mér er kunnugt um það, að einn merkur lögfræðingur hér í bænum hefur bent á það, að það væri eðlilegt að stækka skrifstofur Arnarhvols og koma þar fyrir meðal annars þolanlegum bráðabirgðahúsakynnum fyrir hæstarétt. En ég álít, að á meðan landið hefur ekki efni á því að búa betur en svona að hæstarétti, þá sé ekki afsakanlegt að fjölga mikið prófessorum við háskólann. Ég álít, að ræða hv. 6. þm. Reykv. sé merkileg að því leyti, að þar kemur í fyrsta skipti fram frá manni, sem starfað hefur við háskólann, það, sem kalla mætti heilbrigða dómgreind. Það kom hvað eftir annað fram í ræðu hans, að hann finnur það, að Alþ. hefur sótt málið með ofurkappi fyrir stofnunina, hefur barizt fast fyrir stækkun hennar, án þess að gætt hafi verið skynsamlegra úrræða.
Það þurfti endilega að bæta því við að framlengja happdrætti háskólans dálítið. Þá var tekið fram, að þegar búið væri að byggja aðalbyggingu háskólans, ætti að nota happdrættið til að efla aðrar byggingar. Það vita allir, að t.d. stjórnarráðshúsið er alveg óviðunandi bygging fyrir jafnvirðulega stofnun, og stafar það af því, að það vantar blátt áfram peninga til þess. Menn vita, að þetta hús er ekki einu sinni frambærilegt fyrir Alþ. til lengdar, og er þó stjórnarráðshúsið miklu verr sett. Alþ. gat unnað háskólanum þess að fá mjög myndarlega byggingu yfir sig. En hvað gerði þá háskólinn? Hann notfærði sér þá grunnhyggni ýmissa manna hér til þess að koma því fram, að hann megi hafa þessar tekjur, sem nauðsynlega þurfti, m.a. til að endurbyggja stjórnarráðshúsið, — til að leika sér, því að ég kalla það að leika sér, þegar sumir forráðamenn háskólans komu hér á s.l. sumri með skipulagningu um leikhöll, sem átti að kosta 5 millj. kr., badmintonhöll o.fl. Ég gæti meira að segja trúað, að búið væri að leyfa þetta. Þ. á m. voru nokkrir menn í þingmannsaðstöðu, sem undanfarin ár hafa getað leikið sér að Alþ. og ríkisstj. og gert hvað, sem þeim sýndist, þannig að einn af þeim mönnum, sem bezt þekkir til og veit hvert stefnir, bendir nú á, að hér hafi verið of langt gengið.
Það er þess vegna ekki ósennilegt, að þessi fyrsta rödd frá manni, sem þekkir háskóla landsins og bæinn, geti orðið upphaf þess, að smátt og smátt verði tekin upp um þetta önnur stefna, en það mun þó ekki verða fyrr en kominn er sá tími, að bæði bæ og ríki er farið að skorta peninga áþreifanlegar en nú er og , meira vit komið til skjalanna en sýnt hefur verið í þessum efnum.
Ég vil víkja að einu atriði í ræðu hv. 6. þm. Reykv., sem var ekki nema eitt af þessum ofurkappsmálum háskólans, þ.e. innlimun viðskiptadeildarinnar. Mál þetta var tekið upp sem íslenzk í undirbúningi Íslands til þess að gera, eins og gert var í ár, fullkominn skilnað við Danmörku, af hálfu ráðamanna þriggja flokka í landinu, að ala upp unga menn til þess að vinna erlendis að verzlunarmálum landsins sem væntanlegir konsúlar o.s.frv. Þetta mál var á eðlilegu tilraunastigi og eitt af þeim fáu málum, þar sem Alþ. og ríkisstjórn hafði tekizt að hefja svo náið samstarf við ýmis atvinnufyrirtæki, að þau lögðu á sig ekki svo litlar byrðar til að greiða fyrir lánum, sem áttu að koma þjóðinni að gagni. Hefði þessu verið haldið áfram, hefði þjóðin eignazt menn, sem hefðu fengið allt aðra undirbúningsmenntun til viðskipta en áður. — En þegar þetta var á góðu þróunarstigi, kom krafa frá háskólanum um, að þetta skyldi verða innlimað í háskólann sem víðskiptadeild til þess að bæta úr erfiðleikum stúdenta, sem ekki vissu, hvað þeir ættu að gera. Þessi deild er því hreinasta atvinnubótadeild fyrir íslenzka stúdenta, og þar með slitinn sundur sá þráður, sem tekinn var milli framleiðenda og hinnar væntanlegu stofnunar. — Síðan er þessi leið algerlega lokuð, þar sem tilgangurinn var sá með þessari stofnun að geta fengið þangað unga menn úr verzlunarstétt, er sýnt höfðu í verzlunar- og viðskiptastörfum, að þeir væru álitlegir til náms: Nú veltast inni í þessari deild piltar, sem hafa byrjað nám oft fyrir metnað foreldra sinna, til þess að komast gegnum menntaskólann og fá eitthvað að gera. Eftir sem áður er óleyst það vandamál að geta látið duglega unga menn úr verzlunarstétt fá þróttmikinn undirbúning til sinna starfa. En ekki hef ég orðið þess var, að þeir piltar, sem koma úr þessari deild, séu taldir líklegir að hafa slíka menntun til að bera. Og ég vil benda á, að hvort sem litið er á sögu kaupfélaga eða kaupmanna hér á landi frá 1877, má heita, að það séu annaðhvort lítt eða með öllu óskólagengnir menn, sem hafa gert verzlunina frjálsa.
En nú mun ekki þýða fyrir menn, þótt þeir hafi þekkingu á háskólanum, eins og hv. 6. þm. Reykv., að benda á, að rétt sé að fara gætilega. Allar þessar till. munu ná fram að ganga um fjölgun embætta, og sett munu verða launalög, sem bæta nokkrum millj. við það, sem fyrir er. Og þessu mun ekki linna, fyrr en neyðin kennir Íslendingum, að þeir hafakað um efni fram.