13.12.1944
Efri deild: 87. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1035 í B-deild Alþingistíðinda. (1897)

115. mál, laun háskólakennara Háskóla Íslands

Frsm. meiri hl. (Kristinn Andrésson):

Herra forseti. — Mér datt ekki í hug, þegar ég tók að mér framsögu í þessu máli, að það mundu verða svo miklar umr. í deildinni. Þetta frv. gekk greiðlega gegnum Nd. og var afgr. þaðan með aðeins fjórum mótatkv. Við 2. umr. hér í hv. d. komu fram lítil andmæli gegn frv., og var það afgr. til 3. umr. með talsverðum meiri hl. atkvæða. Við 3. umr. risu svo þm. upp með brtt., hvorki meira né minna en um það að fella niður nokkrar greinar frv., þ.e.a.s. tvær till. eru um að fella niður 2. gr., en ein till. um að fella niður 4. gr. Ég hef hlustað hér á umræður um málið, og mér hefur fundizt aðalrök þeirra, sem ekki vilja samþ. frv. óbreytt, eins og. meiri hl. menntmn. leggur til, vera þessi: Í fyrsta lagi, að menn vilji taka fyrirkomulag háskólans almennt til umræðu í sambandi við þetta frv. og séu ekki ánægðir með það af þeim ástæðum, að það brjóti eitthvað í bága við þær hugmyndir, sem þeir hafa gert sér um framtíðarfyrirkomulag háskólans. Önnur röksemdin er sú, sérstaklega í sambandi við kennaraembætti í norrænudeild, að hér sé fyrst og fremst verið að útvega einstökum mönnum embætti og atvinnu. En það, sem kalla má aðalrök gegn frv., eru þau, að af þessu leiði of mikinn kostnað fyrir ríkissjóð. Og sumir þeirra, sem talað hafa gegn frv. óbreyttu, hafa í raun og veru viðurkennt, að frv. væri gott og blessað, svo framarlega sem ríkissjóður hefur efni á að fjölga svo kennurum sem farið er fram á.

Ég vildi þá víkja aðeins að öllum þessum mótbárum. Í fyrsta lagi er það um fyrirkomulag háskólans almennt, sem hefur sérstaklega komið til umræðu í sambandi við lögfestingu prófessorsembætta í viðskiptafræði. Ég sá, að í Nd. hefur komið frá einum þm. slík mótbára, að ekkert yrði ákveðið um þetta embætti fyrr en mþn. í skólamálum hefði skilað áliti um fyrirkomulag æðri skóla í landinu. Milli umræðna var þess vegna leitað álits þessarar n. Álit hennar er svo hljóðandi, með leyfi hæstv. forseta:

„Háttv. menntmn. neðri deildar Alþingis hefur með bréfi, dags. 12. þ. m., sent hingað til umsagnar frumvarp til laga um breyt. á og viðauka við l. nr. 36 30. júlí 1909, um laun háskólakennara, og um breyt. á l. nr. 21 1. febr. 1936, um Háskóla Íslands.

Milliþinganefndin hefur þ. 14. þ.m. haldið fund um málið. Telur hún frv. (þskj. 308) stefna í rétta átt og mælir með því, að það nái fram að ganga á Alþingi.

F.h. milliþinganefndar í skólamálum. Ásmundur Guðmundsson. Helgi Elíasson.“ Hv. 6. þm. Reykv. taldi það ekki vera eðlilegt fyrirkomulag, að kennsla í viðskiptafræði væri við háskólann, heldur skildist mér svo sem hann teldi æskilegt, að það væri eins konar framhaldsdeild við verzlunarskólann, og hefði hugsað sér breyt. í þá átt. Nú er það í fyrsta lagi svo, að stofnun viðskiptadeildar við háskólann hefur verið ákveðin. Hv. þm. mun vera betur kunnur hagur þessa viðskiptaháskóla en mér. En þess er fyrst að minnast, að þessi skóli byrjaði sem sérstofnun. En vegna þess að það fyrirkomulag reyndist óhæft, var þess krafizt af nemendum hans og viðurkennt af þeim, sem kennt hafa við skólann, að það væri sjálfsagt, að þessi viðskiptaskóli væri tengdur háskólanum og krafizt til hans stúdentsmenntunar. Þar sem hv. þm. vitnaði til þeirra breytinga, sem síðan hafa verið gerðar á verzlunarskólanum, að hann útskrifi stúdenta, og taldi, að þetta væri eðlileg breyting, vegna þess að það væri óeðlilegt, að menn, sem stundað hafa sérnám í verzlunarfræðum í verzlunarskólanum, skyldu ekki hafa beinan aðgang að framhaldsnámi í viðskiptafræði við háskólann, held ég, að ég megi fullyrða, að þessi breyting á verzlunarskólanum standi ekki í neinu sambandi við stofnun viðskiptadeildar við háskólann. Við þá breytingu, sem gerð var á verzlunarskólanum nýlega, varð hann meira almenns eðlis, eins og menntaskóli, þannig að 2 efstu bekkir verzlunarskólans eru með menntaskólasniði, og stúdentar frá verzlunarskólanum geta því farið í hvaða deild háskólans sem er, ekki frekar viðskiptadeild en aðrar deildir. Verzlunarskólinn er þá orðinn menntaskóli. Ef ætti að breyta þessu á ný og hætta við kennslu í viðskiptafræði við háskólann, þá er í fyrsta lagi að afnema þá deild, sem stofnuð var með lögum í hagfræði og viðskiptafræði við háskólann. Ef ætti að gera slíkt og stofna í staðinn einhvers konar sérskóla í viðskiptafræði, þá er verið að stíga spor aftur á bak, í þá átt, sem áður var og reyndist þá óhæft. Ég tel því ekki þörf á því að fara frekar út í þetta atriði. Ég tel, að það hugsi enginn til þess með alvöru að fella viðskiptadeildina niður. Og úr því að hún hefur verið stofnuð, þá leiðir það af sjálfu sér, að það verða að vera fastir kennarar við hana. Annars eru þessir kennarar skipaðir, og kemur auðvitað ekki annað til mála en að framkvæma svo sjálfsagðan hlut sem lögfestingu þessara embætta, sem ákveðin hafa verið. Aðfinnslur við fyrirkomulagið í háskólanum í sambandi við þessar umr. komu aðallega fram gagnvart viðskiptadeildinni, svo að ég þarf ekki að ræða þetta atriði nánar.

Það var aðallega hv. 6. þm. Reykv., sem taldi, að nokkuð væri hart að sótt frá hálfu heimspekideildarinnar með því að taka það stökk að bæta nú við 2 kennurum þar, og hann virtist þeirrar skoðunar, að í raun og veru kæmi þessi till. ekki fram af því, að fullkomin nauðsyn væri fyrir stækkun deildarinnar, heldur af hinu, að það væru 2 sérstaklega hæfir menn, sem rétt væri að fengju fast starf við háskólann. Ég á nú bágt með að trúa því, að hv. 6. þm. Reykv. meini það í alvöru, að honum finnist norrænudeildin hafa sótt eitthvað fast á um fjölgun kennara. Háskólinn er nú búinn að starfa í 33 ár. Heimspekideildin hefur að vísu vaxið örlítið, hún byrjaði með tveim prófessorum, einum í sögu og einum í bókmenntum, og kenndi prófessorinn í bókmenntum einnig málfræði. Það kom auðvitað fljótlega í ljós, að þetta gat ekki þannig fram farið, og þá var stofnað sérstakt dósentsembætti í málfræði og síðan prófessorsembætti í málfræði, og var þá komið eitt prófessorsembætti í hverri aðalgrein, sem kennd er í norrænudeildinni. Síðan hefur ekki farið fram nokkur fjölgun kennara í norrænudeildinni önnur en sú, að skipaður var lektor fyrir 3 árum í málfræði. Þá var enginn með aðfinnslur, heldur talin full nauðsyn á því að stofna til viðbótar prófessorsembættinu lektorsembætti í þeirri grein, og þetta var þó sú grein, sem upphaflega var lægst metin, þar sem prófessor í bókmenntum átti einnig að gegna þessu starfi upphaflega. Því skil ég það ekki, að síður sé þörf á dósent í sögu og bókmenntum en í málfræði. Og ég tel það ekki neina frekju eða öfgar, að farið sé fram á það, eftir að háskólinn hefur starfað í 33 ár, að fjölgað sé svo í norrænudeildinni, að þar séu tveir kennarar í hverri aðalgrein, einn prófessor og einn dósent.

Við vitum, að hv. 6. þm. Reykv. er vel kunnugur háskólanum, og það hefur verið tekið fram við þessar umr. og einnig viðurkennt, að þessi hv. þm. hafi verið mjög vinveittur háskólanum og öllu starfi þar. Þess vegna kemur mér ókunnuglega fyrir, hvað lítinn skilning mér finnst hann hafa á starfi og hlutverki norrænudeildarinnar. Fram til þess að ísl. háskólinn var stofnaður, fóru allar rannsóknir á norrænum fræðum, og höfðu gert um langt skeið, fram erlendis. Það voru erlendir vísindamenn, sem rannsökuðu hin norrænu og ísl. fræði, en þessir menn höfðu engan hug á öðru en fornöldinni, þeir höfðu ekki áhuga fyrir neinu í íslenzkum efnum, sem gerðist eftir árið 1200. Vitanlega var það svo, að hinir erlendu fræðimenn, sem hlutu að hafa mjög takmarkaðan skilning og óíslenzk sjónarmið á norrænum fræðigreinum, misskildu margt hrapallega.

Þegar norrænudeildin var stofnuð, var það svo, að engin rannsókn hafði farið fram, hvorki á sögu né bókmenntum, frá því árið 1200 fram til okkar daga, og þrátt fyrir starf kennara við norrænudeildina, starf, sem allir vita, að er mjög mikið verk, í sögu, málfræði og norrænu, er það svo, að fram til þessa tíma hefur þessum mönnum ekki unnizt tími til að rannsaka svo frumheimildir, að við höfum enn þá viðunandi handbók í íslenzkri sögu né bókmenntum. Og í þessum tveimur greinum stöndum við verr að vígi en í málfræði, þar sem nú eru komnir tveir kennarar. Mér er vel kunnugt, hvað mikið starf kennarar í norrænum fræðum hafa lagt á sig. Mér er það kunnugt, að samtímis því, að prófessor Sigurður Nordal varð að kenna bókmenntasögu í háskólanum varð hann sjálfur að rannsaka allar frumheimildir, skrifa sjálfur fyrir nemendur sína bókmenntasögu frá 1300 og eins langt og hann hefur komizt, sem mun vera allt fram til okkar daga. Þó finnst prófessor Sigurði Nordal, að það sé ekki svo vel unnið, að það sé undirbúið til prentunar, þannig að rétt sé að semja handbók í þessum fræðum, og verður það vitanlega að vera hlutverk þeirra, sem eftir hann koma, og hugsar hann sér að láta allt, sem hann hefur gert í þessum efnum, ganga til þeirra, sem starfa eftir hann við norrænudeildina.

Í sögukennslu er sama máli að gegna. Þrátt fyrir það að viðurkenndir afkastamiklir menn hafa verið í starfinu, svo sem Páll E. Ólason, er það svo, að allan tímann, sem Íslandssaga hefur verið kennd við háskólann, hafa kennarar ekki komizt yfir með nemendum sínum nema f,ram til ársins 1600. Þetta ætti að sýna dm. glögglega, hve mikil þörf er á því, að verkaskipting sé þannig, að það séu minnst tveir kennarar í hverri grein við háskólann. Hv. þm. verða að forðast að líta á þetta sem kennarastörf eingöngu. Það má segja, að það sé ekki mikið að kenna nemendum tvisvar í viku. En starf kennara er fyrst og fremst rannsóknarog vísindastarf, sérstaklega þegar svo stendur á sem í ísl. fræðum, að allt er órannsakað. Það er bókstaflega hneykslanlegt, að engin almenn Íslandssaga skuli vera til og engin handhæg kennslubók í Íslandssögu, hvorki til kennslu víð barnaskóla né aðra skóla. Ég álít því, að það séu síður en svo miklar kröfur, sem norrænudeildin gerir til fjölgunar kennara. Í raun og veru þyrfti miklu fleiri menn til rannsóknar á þeim efnum en hér er farið fram á. Það er ekki einungis hlutverk þeirra, sem starfa víð norrænudeildina, að rannsaka og búa út kennslubækur í ísl. fræðum fyrir skóla í landinu, heldur er það margs konar annað hlutverk, sem þeir hafa að gegna.

Það geta verið skiptar skoðanir um það, hver deildin sé veigamest í háskólanum. En allir eru sammála um það, að háskólinn í heild sé bókstaflega lífæð íslenzkrar menningar. Það er hégómlegt af okkur að vera að deila um það, hver deildin sé mest virði, en þó vil ég segja fyrir mig, að ég er þeirrar skoðunar, að við getum einna mestu afkastað í norrænum og íslenzkum fræðum og að það hlutverk, sem háskólinn eigi fyrst og fremst að vinna að, sé að rannsaka allt íslenzkri sögu, bókmenntum og málfræði viðvíkjandi og koma upp kennslu í þeim greinum, sem séu viðurkenndar, ekki þó eingöngu innan lands, heldur einnig erlendis frá.

Við vitum, að til norrænudeildarinnar hafa komið allinargir erlendir námsmenn til náms í norrænum fræðum. Þetta álít ég spor í þá átt að gera norrænudeildina að miðstöð í norrænum fræðum, sem hingað til hefur hvergi verið til nema þá helzt í Danmörku. Það, sem þyrfti að gera, er að fá hingað heim þá krafta, sem eru í Kaupmannahöfn. Við vitum, að í Kaupmannahöfn er einn helzti fræðimaður í íslenzkum fræðum, en hann er nátengdur Árnasafninu. Það er stórt mál að fá það safn heim aftur til háskólans. Ef það tekst, er það öruggt, að norrænudeildin væri orðin að miðstöð allra íslenzkra og norrænna fræða.

Við höfum á þessu ári stofnað lýðveldi á Íslandi, og við höfum allir verið með mikið þjóðernistal á vörum, en það má ekki þar við sitja, við verðum líka að sýna það í verki, að við viljum efla íslenzka tungu, bókmenntir og sögu og gera engan greinarmun á. Mér finnst það væri mjög óviðkunnanlegt, ef við á sama árinu og við stofnum lýðveldi, komum heim, eins og það hefur verið orðað, fellum að auka við íslenzk fræði við háskólann, ekki meira en farið er þó fram á í þessu frv. Þó að ég hafi komið hér alveg óundirbúinn, hef ég fært rök fyrir því, að við fjölgum kennurum við norrænudeildina og eflum hana. Það má telja jafnmörg rök fyrir því og við getum talið fram fyrir tilveru Íslendinga.

Hv. 6. þm. Reykv. vildi telja til fjölgunar við starfsmenn norrænudeildarinnar, að stofnað hefur verið starf háskólabókavarðar. Mér er óskiljanlegt, hvernig hann fer að því að blanda þessum tveimur óskyldu störfum saman Háskólinn er svo heppinn að eiga mikið og gott bókasafn, mikið af því er gjöf, og er það mjög .erðmætt safn. Og leiðir þá ekki af sjálfu sér, að það þurfi mann til þess að gæta þessa safns? Og er það frekar fyrir norrænudeildina en aðrar deildir Háskólans? Vitanlega ekki. Mér skildist, að hann ætlaðist til þess, að bókavörður kenndi við norrænudeildina og hann væri gerður að starfsmanni deildarinnar og fengist við rannsóknir á íslenzkum fræðum. Það vill svo til, að sá maður, sem er háskólabókavörður, er norrænufræðingur og hefur mikinn áhuga fyrir norrænum fræðum og fyrir að fást við rannsóknir á þessum sviðum. Ég er fullviss um, að þetta er óskylt starfi háskólabókavarðar. Við höfum á undanförnum árum gert mörg glappaskot með því að blanda saman störfum við söfnin og fræðimannastörfum. Í landsbókavarðarstarfið hafa t.d. verið valdir menn, sem áttu ekki einungis að vera safnsverðir, heldur einnig að fást við ritstörf. Hver er svo afleiðingin? Þeim hefur ekki tekizt sem skyldi að sinna störfum við söfnin, sem heimta þó fulla starfskrafta, heldur hafa þeir fengizt við ritstörf. Afleiðingin hefur því orðið sú, að þeir hafa orðið að vinna þau á söfnunum. Við ættum ekki að láta þau glappaskot henda oss enn á ný, að sem safnaverðir séu settir fræðimenn. Þeir menn, sem hafa áhuga fyrir fræðum, eiga ekki að vera safnaverðir, heldur að sinna vísindastörfum.

Ég hef orðið allfjölorður um norrænudeildina, en þá hefur að minnsta kosti einn þm. gert atrennu að verkfræðingadeildinni. Hæstv. menntmrh. hefur skýrt og greinilega tekið fram í útvarpsræðu, sem hann hélt 1. des., og einnig við umr. hér í d., að okkur væri lífsnauðsyn að fá verkfræðinga, og þá vantar strax. Og við að framkvæma þá nýsköpun, sem ríkisstjórnin ætlar að gera, vantar 15–20 verkfræðinga.

Við, sem störfum í fjhn. að launamálum, vitum, hvernig t.d. vegamálastjóri og fleiri starfsmenn ríkisins telja sig vanhaga mjög um verkfræðinga, og þarf ekki að bera brigður á það. Í rauninni vantar verkfræðinga í alla bæi og kaupstaði á landinu. Það nær vitanlega engri átt að gera ekki allt til þess að fá sem mest lærðra manna í verklegum efnum. Sameiginlegt álit verkfræðinga í háskólaráði taldi það rétta stefnu að taka upp kennslu í, fyrri hluta verkfræðináms hér við háskólann. Ágreiningur er enn um það, hvort framhaldsnám eigi að fara fram hér á landi eða erlendis. Með þessu frv. er ekki farið fram á annað en að tryggja, að fyrri hluti námsins fari hér fram. Það nær ekki nokkurri átt að fella þessa grein úr frv. Þá er ein mótbáran, sem ekki vegur minnst, hún er um kostnaðinn, sem af því hlytist. Hv. 6. þm. Reykv. tók það fram í ræðu sinni, að hann væri í raun og veru langt frá á móti því, að þessi embætti verði lögfest og stofnuð, og það væri ágætt að gera það, ef við hefðum efni á því. Hver er þessi gífurlegi kostnaður? Hv. 6. þm. Reykv., sem talaði mikið um þennan kostnað, viðurkenndi, að raunverulega væru aðeins stofnuð tvö ný embætti. Um hin embættin, sem á að lögfesta, er það svo, að kennslu hefur verið haldið uppi í þessum greinum í háskólanum, og aukakostnaður af því að hafa fasta kennara í stað stundakennara mun vera sáralítill. Í viðskiptaháskólanum er ekki annað en að lögfesta það, sem verið hefur undanfarin ár. Þessi kostnaður er þá laun tveggja dósenta, 10200 kr. til hvors, eða um 20000 kr. samtals.

Annars er háskólinn dýrmætasta stofnun þjóðinnar, sem á og verður að vaxa, og Alþ. verður að stuðla að því, að hann fái að vaxa eðlilega. Menn eru farnir að kvíða fyrir því, að það komi sömu tímar og voru eftir fyrra stríðið, og þó að við höfum efni á því nú, sé ekki víst, að við höfum efni á því að nokkrum árum liðnum. En á hverju höfum við þá efni, ef við höfum ekki efni á því að efla íslenzka menningu í landinu? Og hvaða upphæð er það, sem hér er um að ræða? Ekki nema hégómleg upphæð í samanburði við þá nauðsyn, sem er hér annars vegar. Og eins og hæstv. menntmrh. benti á, skyldi ekki vera hægt að spara á öðrum liðum frekar en þessu?

Halda þeir virkilega í alvöru, að þjóðin verði svo fátæk á næstu árum, að það sé lífsspursmál, að háskólinn sé látinn vaxa sem nemur 2 dósentsembættum, og stafi af hætta fyrir fjárhag þjóðarinnar, þótt stofnuð séu 2 ný dósentsembætti við haskólann?

Þegar ég tek saman þau rök, sem fram hafa komið gegn þessu frv., þá finnast mér þau satt að segja öll til samans mjög léttvæg, og ég skil satt að segja ekki, að þessir hv. þm. meini það í raun og veru í alvöru, sem þeir hafa sagt, og ætli virkilega að setja fótinn fyrir þetta frv. Þetta frv. hefur, eins og ég vék að í byrjun, fengið mjög góðar undirtektir í hv. Nd. Nú er það komið til okkar og til 3. umr. í þessari d. Þau rök, sem hér eru höfð á móti frv., finnast mér ákaflega lítilfjörleg, og mér finnst satt að segja, að það væri mjög mikil minnkun fyrir d., ef við færum að fella nokkuð út úr þessu frv. Mér finnst, að það sé sómi d. að samþ. þetta frv. óbreytt, eins og það er komið hér frá meiri hluta menntmn., og afgr. það sem fyrst sem l. frá Alþ. og vera alls ekki lengur að deila um svona hluti. Mér hefði þótt miklu skemmtilegra, að málið hefði farið greiðlega í gegn, og mér finnst þær umr. og aðfinnslur, sem hér hafa komið fram, svo lítilvægar að það hefði verið betra að vera án þeirra, án þess að ég hafi nokkuð á móti því, að málið sé rætt, en mér hefði þótt skemmtilegra fyrir hv. d., að það hefði komið fram, að henni hefði verið ljúft að afgr. þetta mál, en ekki hitt, að hún geri þetta með einhverjum dræmingi.