13.12.1944
Efri deild: 87. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1040 í B-deild Alþingistíðinda. (1898)

115. mál, laun háskólakennara Háskóla Íslands

Þorsteinn Þorsteinsson:

Ég var áður búinn að tala í þessu máli og skal ekki marg-endurtaka það, sem ég hef sagt. Það, sem kom mér til að standa upp, var dálítill misskilningur hjá mínum ágæta nágranna, hv. þm. Barð., sem kom fram í ræðu hans í þessu máli. Hann vildi fá það út úr því, sem ég hef sagt, að þarna væru á ferðinni menn, sem vantaði embætti, og væri verið að gera þetta fyrir þá, og átti hann eingöngu þar við stofnun dósentsembætta í norrænu.

Þetta er svo alveg þveröfugt við það, sem ég sagði, því að einmitt vantar enn þá nokkuð af góðum mönnum í viðbót, svo að vel fari. Ég verð að segja, hvað snertir sögu okkar, þá er opið skarð í henni, 14. og 15. öldin, sem er ekki lítið verk að rannsaka, ef vel á að vera, eftir því sem efni standa til. Og einmitt til þessa verks þarf ungan mann, ættfróðan og efnilegan. Ég verð að segja, að það er eitthvað hið mesta þjóðnytjaverk að reyna að ganga frá þeim tímum, svo að það verði skýrt, sem nú er myrkri hulið. Það tel ég líklegt, að verði núna, ef þessum mönnum gefst aldur og tækifæri til að starfa að sínum hugðarefnum í norrænudeild. En það skulum við ekki telja okkur trú um, að verið sé að gera gustuk á þessum mönnum. Það er alveg eins gustuk á sjálfum okkur að fá sem bezta menn í þá d., sem á að halda uppi heiðri háskóla vors og auka álit hans út á við meðal umheimsins.

Hv. þm. Barð. hélt, að það mundi, þegar til kæmi, ekki síður vera hróður út á við, sem kæmi frá verkfræðideildinni en norrænudeildinni. Ég er ekki á sama máli, ég held, að vanti flest tæki nema kannske hávaða og hamarshögg í verkfræðideildina, og ef byggja á á viti og verðleikum, þá held ég vafalaust, að það verði einmitt norrænudeildin, sem verður til þess að halda mest uppi okkar sóma.

Ég tek upp aftur það, sem ég sagði áðan, að ég tel sjálfsagt, að bíða megi með þessi 3 embætti í verkfræðideild í eitt ár eða svo, þangað til verkfræðingar vorir koma heim, sem hafa lært utanlands. Þá getum við valið úr þeim mönnum, sem nú eru við erlenda háskóla, og fengið beztu og lærðustu mennina og þá, sem hafa mesta kynningu af nýrri tækni, til háskólans sem verkfræðinga. Þess vegna stafar afstaða mín alls ekki af andúð gegn verkfræðideildinni í háskólanum, heldur af hinu, að mér finnst ekki nauðsynlegt að hraða því svo ákaft, eins og virðist vera gert með þessu frv., að lögfesta þessa 3 prófessora í sínum embættum.