13.12.1944
Efri deild: 87. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1052 í B-deild Alþingistíðinda. (1904)

115. mál, laun háskólakennara Háskóla Íslands

Gísli Jónsson:

Herra forseti. — Ég vildi aðeins gera eina aths. í tilefni af ræðu hæstv. fjmrh.

Ég álít, að það sé á misskilningi byggt, að ekki sé skylda að veita embætti Sigurðar Nordals fyrir utan þessi tvö dósentsembætti, ef þetta nær fram að ganga. Mér skilst, að ef hann lætur af störfum, þá yrði hans embætti laust og yrði þá að veita eitt prófessorsembætti, auk þeirra tveggja dósentsembætta, sem hér um ræðir. Að vísu getur framkvæmdin hjá ráðuneytunum orðið þannig, að þeir bæti ekki við nema einum manni, en eins og lögin liggja fyrir, mundi ég telja það skyldu, að þessi þrjú embætti yrðu stofnuð.