13.12.1944
Efri deild: 87. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1052 í B-deild Alþingistíðinda. (1905)
115. mál, laun háskólakennara Háskóla Íslands
Bjarni Benediktsson:
Herra forseti. — Ég vildi beina þeirri fyrirspurn til hæstv. ríkisstj., hvort ekki sé ótvírætt, ef þetta frv. verður samþ., að skylt sé að hafa skipuð embætti þeirra þriggja prófessora, sem nú gegna störfum í norrænudeildinni, þeirra Sigurðar Nordals, Þorkels Jóhannessonar og Alexanders Jóhannessonar, og hafa til viðbótar skipuð þessi dósentsembætti, sem nú á að stofna, og loks skylt að hafa skipaðan háskólabókavörð. Þetta eru allt lögskipuð embætti, sem ríkisstjórninni ber að hafa fullskipuð og ekki má sameina nema með nýrri lagabreytingu. Og ef ætlunin er að sameina þau, því er þá verið að samþ. þetta frv. nú?