12.09.1944
Neðri deild: 48. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1053 í B-deild Alþingistíðinda. (1911)

101. mál, lendingarbætur í Djúpavogi

Flm. (Eysteinn Jónsson):

Það er nokkur grein gerð fyrir nauðsyn þessa máls í grg., þótt hún sé stutt. Aðalatriðið er það, að mjög er erfið aðstaða til að ferma og afferma skip þarna, og svo hitt, að aðstaða til útgerðar er miklu lakari en verið gæti, ef betur væri búið að við landið. Nú hef ég ráðizt í að flytja frv. til l. um lendingarbætur á þessum stað, og eru þær fólgnar í bryggjugerð aðallega. Ég geri mér von um, að hv. d. samþ. þetta frv., þar sem það mun vera mjög hliðstætt öðrum slíkum, sem undanfarið hafa verið afgr. Vil ég svo leyfa mér að óska, að frv. verði vísað til 2. umr. og sjútvn.