08.03.1944
Neðri deild: 28. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 138 í B-deild Alþingistíðinda. (194)

1. mál, stjórnarskipunarlög

Jakob Möller:

Ekkert sýndi ljóslegar en ræða hv. síðasta ræðumanns, hve n. er komin út í miklar ógöngur vegna breyt. sinna á stjskr. Ekkert í stjskrbreyt. frá 1942 gerir málskot til Sþ. óheimilla en til þjóðarinnar. Þetta er gerbreyt. á lagasetningunni í landinu, það er satt, en þegar komið er inn á þessar breyt., þá hefur n. stigið fyrsta sporið. Það er ekkert fremur í sömu stefnu og mörkuð var 1942 að. láta synjunarvaldið í hendur þjóðinni fremur en Alþ., því að hver er kominn til að segja, að við þjóðaratkvgr. kæmi fram meiri hl. kosningarbærra manna í landinu, í stað þess að fela Alþ. þetta, sem er umbjóðandi þjóðarinnar, en ekki einhverjum meiri hl. við þjóðaratkvgr. Það er ekkert fremur í sömu stefnu en verið hefur.

Hv. frsm. vildi afsanna það, sem ég hafði haldið fram, að slík breyt., sem n. leggur til, sé óheimil samkvæmt stjskrbreyt. frá 1942, með því að hana leiddi af lýðveldisstofnuninni. Uppsögn sambandslagasáttmálans og lýðveldisstofnunin eru einmitt sett þar hlið við hlið til að undirstrika, að eingöngu leyfist fyrirkomulagsbreyt., sem nauðsynlegar séu formsins vegna í sambandi við þetta.

Út af því, sem hv. þm. G.-K. sagði, að ekki hefði vakað fyrir stjskrlöggjafanum, að forseti fengi einn synjunarvaldið, þá væri gott og blessað, ef hægt væri að sýna fram á það. En orðin standa eins og þau eru, og getur enginn fullyrt annað.

Hv. þm. sagði einnig, að væri konungsvaldið flutt óbreytt inn í landið, þá gætu eins deilur risið um það, jafnt og þótt það væri flutt inn breytt. En til hvers var stjskrbreyt. frá 16. des. 1942? Hún var samkomulag um að gera sem allra minnstar breyt. í þessu sambandi, — ekki vegna þess, að meiri hl. þings kunni ekki að telja nauðsyn gagngerra breyt. á sínum tíma. Nú var gert samkomulag um það að gera sem allra minnstar breyt., og hvað sýnist hv. þm. G.-K. um ummæli sósíalista viðvíkjandi öllum þeim breyt., sem þeir telja, að gera þurfi á stjskr.? Ef þetta skal gert, hvar á þá að nema staðar?

Spurningin er um það, hvernig þjóðin vill hafa þetta, um vald forseta skiptir minna, því að hann verður enginn augnakarl, sem ekki er hægt að losna við. Það mun á allan hátt bezt, eins og hv. 2. þm. S.-M. sagði, að gera sem allra minnstar breyt., en ég er hræddur um, að stjskrn. hafi gengið hér heldur langt.