22.11.1944
Efri deild: 73. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1057 í B-deild Alþingistíðinda. (1951)

190. mál, hafnarlög fyrir Ólafsfjörð

Gísli Jónsson:

Mér þykir rétt þegar á þessu stigi málsins að koma fram með nokkrar fyrirspurnir í sambandi við afgr. þessa máls, vegna þess að hv. flm. á ekki sæti í þeirri n., sem þetta mál fer til.

Þegar rætt var um það hér að breyta Ólafsfirði í bæjarfélag, þá er það alveg rétt, að það var að nokkru leyti vegna ábyrgðar sýslufélagsins. Þó lýsti hv. flm. yfir þá, að ekki væri farið inn á þessa braut af því, að þetta mál væri svo mjög aðkallandi, því að það þyrfti að gera Ólafsfjörð að bæjarfélagi hvort sem væri af öðrum ástæðum. En það var þá a.m.k. af mér skilið svo, að nægilegt væri að fá breytt hafnarl. fyrir Ólafsfjörð eins og hv. frsm. minntist á. Ég vil því spyrja hv. frsm., hvort hann mundi ekki geta fellt sig við, að í staðinn fyrir, að hér á að samþ. nýja breyt. á hafnarl., þá væri þeim breytt eins og rætt var um á því stigi málsins. Ég skal koma að, hvers vegna ég vil fara inn á það. Ég hef tilkynnt hv. flm., að ef hafnarl. er breytt þannig, að ábyrgð sýslusjóðs fellur niður, sem nú er nauðsynlegt, þá mundi ég bera fram brtt. um, að breytt yrði 10. gr. 2. f., að í staðinn fyrir 1% kæmi 6%, vegna þess að hér er ríkissjóður settur í miklu meiri áhættu, vegna þess að ábyrgðinni er kippt burt, og er þess vegna rétt, að heimilt verði að leggja 6% á andvirði afla, er þar kemur á land. Þetta er venjulegt ákvæði í hafnarl., þar sem ríkissjóður hefur enga ábyrgð nema hreppsfélags eða bæjarfélags, nema í Reykjavík og Hafnarfirði, af því að talið er, að fjárhagur þessara bæja sé svo traustur, að þess þurfi ekki með. Ég mun því bera fram brtt. um, að heimilt sé að taka allt að 6% af andvirði þess afla, er þarna kemur á land. Það mun ekki þurfa að nota þessa heimild, nema kaupstaðurinn sé í fjárþröng, og mun þá koma krafa frá ríkissjóði að nota þessa heimild til fulls, ef þess þarf með.

Að ég vil heldur fara þessa leið, stafar af því, að ég lít svo á, að ef farið er að setja nýjan lagabálk, þá sé um leið gefið vilyrði fyrir því, að áframhaldandi sé veitt til þessarar hafnar úr ríkissjóði, en ekki 1/3 eins og venjulega til kaupstaða, og mundi slíkt valda miklum glundroða í hafnarl. almennt, því að það væri algerlega á móti þeirri reglu, sem hefur verið algild um fjárveitingar til hafnargerða. Þetta er sú stefna, sem ég mun fylgja í n., og mun ég þá líkast til leggja til, að frv. verði afgr. með rökst. dagskrá, því að ég veit ekki, hvort hægt er að gera þá breyt. á frv., sem ég hef nú minnzt á.