22.11.1944
Neðri deild: 80. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1065 í B-deild Alþingistíðinda. (2000)

161. mál, hafnarlög fyrir Neskaupstað

Frsm. (Lúðvík Jósefsson):

Herra forseti. — Ég þarf ekki að hafa um þetta mál nema aðeins örfá orð. Sjútvn. hefur haft málið til athugunar og sent það til umsagnar vitamálastjóra, sem hefur mælt með, að frv. yrði samþ. óbreytt. Og öll sjútvn. hefur einnig mælt með frv. óbreyttu. Svo vil ég vænta þess, að frv. fái greiða afgreiðslu hér í hv. d. og verði vísað til 3. umr.