25.09.1944
Efri deild: 49. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1067 í B-deild Alþingistíðinda. (2017)

134. mál, bændaskóli

Flm. (Eiríkur Einarsson):

Við þessa 1. umr. málsins tel ég ekki nauðsyn á að fara mörgum orðum um frv., en vil láta nægja að vísa til nokkurrar grg., sem því fylgir. Mun ég því ekki frekar fara orðum um frv. nú, nema sérstök ástæða gefist til við umr. hér. Legg ég til, að frv. verði vísað til 2. umr. og landbn.