13.12.1944
Neðri deild: 91. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1100 í B-deild Alþingistíðinda. (2038)

134. mál, bændaskóli

Pétur Ottesen:

Ég skal ekki lengja umr. um þetta mál meir en ástæða er til. En þar sem ég hef komið dálítið við sögu við undirbúning þessa máls, þykir mér rétt að mæla hér nokkur orð.

Hv. þm. Mýr. (BÁ) virtist átelja fyrrv. atvmrh. (VÞór) fyrir að hafa ekki í þessu efni farið eftir till. meiri hluta þeirrar n., sem Búnaðarfélag Íslands skipaði til þess að gera till. um skólastað. Ég fyrir mitt leyti get ekki tekið undir það, að fyrrv. atvmrh. sé ámælisverðus fyrir þetta. Það kann að vera af því, að ég taldi fyrir mitt leyti heppilegast að velja þann skólastað, sem minni hl. n. hefur gert till. um, en ég byggi þetta álit á því, að hæstv. fyrrv. atvmrh. er ekki ámælisverður vegna þessa, þar eð hann hafði fullan rétt til þess að skera úr um það fyrir sitt leyti, hvar hann vildi, að skólanum yrði valinn staður. Og þótt hann hafi kannske ekki sérstaklega kynnt sér aðstæðurnar á þessum tveimur stöðum, þá var sú álitsgerð, sem þessi n. gerði sameiginlega, og auk þess sá rökstuðningur, sem báðir hl. n. gerðu fyrir sínu máli, svo skilmerkilegur, að hægt var að draga sínar ályktanir út frá þeim forsendum. Ég vil þess vegna ekki taka undir það, að hæstv. fyrrv. ráðh. sé ámælisverður fyrir þetta. Annað atriði, sem einnig hefur verið deilt á hæstv. fyrrv. atvmrh. fyrir, er það, að hann skyldi ekki hlíta till. annars hl. n., heldur velja skólanum annan stað. Mér finnst, að í þeim ádeilum, sem fyrrv. atvmrh. hefur orðið fyrir af þessum sökum, hafi verið gengið fram hjá því, sem ég ætla, að sé aðalástæðan til þess, að ráðh. valdi þennan stað, sem sé sú, að hann hafi litið svo á, að með þessu yrði mest og bezt flýtt fyrir því, að komið yrði upp bændaskóla á Suðurlandsundirlendinu. Það hefur mjög borið á því, sérstaklega af hendi þeirra manna, sem hér á Alþ. eru fyrir það fólk, sem á Suðurlandsundirlendinu býr, að mjög ríkjandi áhugi væri fyrir því, að skólanum yrði komið upp sem allra fyrst. Ég tel þess vegna ástæðu til þess, í tilefni af þeim umr., sem fram hafa farið um þennan þátt málsins, að þakka, að það voru einmitt þessar ástæður, sem vöktu fyrir fyrrv. atvmrh., að einmitt með þessum hætti verði hægt fyrr en ella að hrinda í framkvæmd þessu áhugamáli þeirra manna, sem búa á Suðurlandsundirlendinu.

Það hafa verið færð fram rök fyrir því, hvers vegna framkvæmdir allar séu greiðari og opnari á þessum stað en hvorum hinna, sem valdir höfðu verið, og það liggur vitanlega í þeim mikla aðstöðumun, sem nú er á Sámsstöðum í Fljótshlíð eftir það mikla átak, sem þar hefur verið gert á undanförnum árum, aukinn húsakostur og stórfelldar umbætur gerðar á jörðinni, en á hvorugri hinni jörðinni hafa neinar slíkar umbætur farið fram, hvorki í húsagerð né ræktun. Þegar þetta mál kom fyrir búnaðarfélagsstjórnina á síðasta búnaðarþingi og hæstv. fyrrv. ráðh. var að taka þessa ákvörðun, þá var það, eins og hv. þm. Mýr. skýrði frá, að búnaðarfélagsstjórnin leit nokkuð mismunandi á þetta mál. Ég fyrir mitt leyti lýsti því yfir, að þrátt fyrir það að ég liti svo á, að Kálfholt væri mikil jörð og góð fyrir skólastað, gæti ég á það fallizt, að Sámsstaðir yrðu valdir fyri,r skólastað, með tilliti til þess, að með því yrði fyrr hrundið í framkvæmd þessu mikla áhugamáli allra á þessu svæði og þá líka áhugamáli allrar þjóðarinnar, að geta búið bændaefnin sem bezt undir það lífsstarf, sem þeir takast á hendur, þegar þeir tileinka sér bóndastöðuna. Það hefur verið deilt á fyrrv. atvmrh. í sambandi við þetta mál með tvennum hætti, og skal ég geta þess. Það er fyrst, að hann hafi tekið þessa ákvörðun, eftir að ríkisstjórnin sagði af sér, og er þetta talið vera allámælisvert. Ég ætla, að þessi ákvörðun hafi verið tekin, áður en ríkisstjórnin sagði af sér, þótt svo tækist til, að fullnaðarafgreiðsla þessa máls í stjórnarráðinu hafi máske dregizt fram á þann tíma, sem stjórnin beið þess, að ný ríkisstjórn tæki við völdum. Annað er það, sem hefur verið deilt á hæstv. fyrrv. atvmrh. fyrir, og það er það, að sú jörð, sem valin var til skólaseturs, hafi ekki nægilegt landrými. Ég vil í þessu sambandi benda á það, að jafnframt því sem Sámsstaðir voru valdir sem skólastaður, voru gerðar ráðstafanir til þess að auka landrými jarðarinnar, eins og skýrt hefur verið frá í þessum umr. Svo að með þeim viðauka landrýmis, sem er að nokkru leyti ræktað land, þá ætla ég, að þessi jörð uppfylli nú orðið líka þau skilyrði, sem helzt má setja um skólastað. En það má benda á eitt enn í sambandi við þessa jörð, sem hæstv. fyrrv. atvmrh. hefur kannske komið auga á. Nú er hafið mikið verk á þessu svæði, sem er fyrirhleðsla austur á söndunum, þannig að því vatni, sem nú fellur í Þverá, verður bægt austur á bóginn og valinn sameiginlegur farvegur fyrir bæði Þverá og Markarfljót. Með þeirri tækni, sem við höfum nú, er það ekki talið neinum vandkvæðum bundið að hrinda þessu verki í framkvæmd. Það hefur orðið nokkurt hlé á framkvæmd þessa verks á undanförnum árum, sem stafar af breyttum atvinnuskilyrðum í landinu undanfarin ár, þannig að ekki hefur verið hægt að fá næga starfsorku til verksins. Við þessar framkvæmdir kemur þarna geysilegt landflæmi, sem á skömmum tíma verður grasi gróið land. Þetta land mun að mestu leyti tilheyra þeim jörðum á þessu svæði, sem ríkið á og hefur þess vegna fullan umráðarétt yfir og getur úthlutað væntanlegum bændaskóla svo mikið sem þörf þykir. Ég býst við því, að auk þess sem hæstv. fyrrv. atvmrh. bjó í haginn fyrir þennan skólastað, með því að leggja honum til aukið landrými, hafi hann af framsýni sinni komið auga á hina miklu landaukamöguleika, sem við áðurnefndar framkvæmdir eru bundnir. Ég tel mjög mikils virði í sambandi við ákvörðunina um stað fyrir bændaskólann, að slíkir möguleikar skuli vera fyrir hendi. Með þeirri tilhögun, sem nú er í búnaðarskólum, er allmikill hluti námsins verklegur. Það rekur vitanlega brátt að því, að það verður tekið til rækilegrar ræktunar mikið af því landi, sem skólanum er úthlutað, en ákaflega mikils virði að hafa í námi við skólann mikið og stórt land, sem hægt er að taka til ræktunar og þá einmitt í því augnamiði að skapa skilyrði fyrir nýbýli. Með þeim hætti er hægt að sameina hina verklegu kennslu því mikla uppbyggingarstarfi, sem okkar bíður, að rækta landið og endurskapa byggð og býli. Það voru þessar aðstæður, sem ég lagði svo mikið upp úr í sambandi víð það, að Kálfholt yrði valið fyrir skólastað, því að af því grasi gróna landi, sem ég hef farið um í byggðum þessa lands, ætla ég einmitt, að í Holtunum í Rangárvallasýslu sé sú mesta grózka í jörð, sem til er í þessu landi. Það sýnir, hversu mikill frjóefnisforði er í þessari mold, sem grasið spratt upp úr, án þess að nokkuð væri gert til þess að auka eða efla þann gróður. Ég vildi aðeins láta þetta koma hér fram, um leið og ég segi mína skoðun, að með því að fara nú að breyta til frá þeirri ákvörðun, sem nú er tekin, er það alveg vitað, að það verður til þess, að mjög verulegur dráttur verður á því, að þessu mikla áhugamáli, að koma upp bændaskóla á Suðurlandi, verði hrundið í framkvæmd.