28.09.1944
Neðri deild: 57. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1107 í B-deild Alþingistíðinda. (2049)

130. mál, jarðræktar- og húsagerðarsamþykktir í sveitum

Flm. (Jón Sigurðsson):

Herra forseti. — Þetta frv., sem hér liggur fyrir, er samið af milliþn. búnaðarþings, eins og tekið er fram í grg. þess. Og þar sem því fylgir talsverð grg., sé ég ekki ástæðu til að fara ýtarlega út í efni frv., en vil þó fara um frv. nokkrum orðum.

Það, sem fyrir okkur flm. frv. vakti, var fyrst og fremst það að skapa grundvöll fyrir gagngerðari breyt. á búnaðarháttum okkar hér á landi. Þetta frv. byggist á þeirri skoðun, að það sé höfuðnauðsyn fyrir landbúnaðinn að þoka framleiðslukostnaðinum niður, svo að framleiðslukostnaður hjá okkur verði ekki öllu hærri en framleiðslukostnaður nágrannaþjóða okkar á þeim vörum, sem við þurfum á erlendum markaði að keppa við þær um sölu á. En á því er orðinn mikill misbrestur, að framleiðslukostnaður okkar sé ekki hærri en h já þeim í þessum greinum, eins og öllum er kunnugt. En til þess að þetta geti orðið, verða að fara fram gagngerðar breyt. að ýmsu leyti á okkar búnaðarskilyrðum, breyt., sem bændur kostar miklu meira en ýmsa aðra, sem hafa verið að breyta sínum atvinnuvegum. T.d. má benda á, að á sjávarútveginum hafa verið gerðar stórbreytingar. Fyrir hann hefur þetta verið miklu léttara, vegna þess að sjórinn er hinn sami, hvort sem er hér við land eða á höfunum kringum Bretland eða hvar annars staðar sem er, og þar af leiðandi getur útgerðarmaðurinn og sjómaðurinn notað tæki, sem notuð eru af öðrum þjóðum, hann getur þannig flutt þau hingað heim og notfært sér þau til fulls. Sama máli gegnir um iðnaðinn. Ef hráefni eru fyrir hendi, sem henta vélum, sem fáanlegar eru erlendis, þá er líka hægt að flytja vélarnar hingað og nota þær óbreyttar. Hvorugt þetta gildir hér um landbúnaðinn. Okkar landshættir eru þannig, að við getum ekki notað þær vélar, sem aðrir nota, nema með því að vinna stórkostlegt undirbúningsstarf. Við þurfum að slétta tún og engjar, áður en við getum notað tæki annarra þjóða við landbúnaðinn.

Það, sem stefnt er að í þessu frv., er, að með sameiginlegum átökum verði þessi undirbúningur unninn og málinu þokað þannig áfram í stórum skrefum. Það er ekki þannig, að í þessu frv. sé um jarðræktina eina að ræða. Hér er tekið annað líka inn í þetta frv., mikilsvert viðfangsefni, húsagerð í sveitum landsins. En mikill misbrestur hefur verið á því, að góður húsakostur væri til sveita, og erfiðleikar hafa verið á að byggja upp eins og þurft hefði að gera. Hér er þess vegna lagt til, að félagsskapur bænda, fyrst og fremst búnaðarsamböndin, taki þessi verkefni að sér og noti til þess fullkomnustu tæki, sem tök eru á, hvort heldur er til ræktunar eða til húsbygginga. Á þennan hátt, með því að heil héruð eða stór svæði slái sér saman, þá er fjárhagsleg geta og líka starf fyrir stórvirkari vélar og tæki, sem ekki er, ef hver einstaklingur er að bauka í sínu horni.

Í þessu frv. er lögð mikil áherzla á, að þessu sé þannig fyrir komið, að það þurfi í raun og veru enginn að vera út undan, en öllum sé gefinn kostur á að koma á umbótum hjá sér í þessum efnum, sem frv. tekur til. Og á hinn bóginn er líka reynt að stuðla að því, að þetta verði ekki bútað niður í of smáar heildir, sem gæti orðið til þess, að þeir, sem fá vélarnar, enda þótt þeir gætu keypt þær, hefðu ekki bolmagn til að reka þær til lengdar og þetta félli svo niður og yrði aðeins til tjóns, og þá yrði auðvitað skotið fram hjá markinu.

Í þessu frv. er enn fremur gert ráð fyrir því, að ríkið leggi fram allmikla upphæð þessu til stuðnings. Það er lagt hér til, að framkvæmdasjóður ríkisins, sem talið er, að hafi til umráða um 11 millj. króna, greiði til þessara framkvæmda nokkurt fé. Á síðasta þingi var ákveðið að verja af þessu fé 5 millj. kr. til styrktar bátakaupum, svo að útgerðin gæti komið sér upp nýtízku veiðiskipum. Þá munu vera eftir, eftir því sem mér er frekast kunnugt, 6 millj. kr. í framkvæmdasjóði. Og í þessu frv. er lagt til, að 3 millj. kr. af þessari upphæð gangi til kaupa á nýtízku vélknúnum jarðvinnslutækjum: Og ég held, að ekki sé hægt annað að segja en að þörf landbúnaðarins fyrir nýtízku vélknúin tæki til jarðræktar sé í alla staði sambærileg við þörf sjávarútvegsins fyrir aukningu og endurbætur á skipaflotanum.

Í þessu frv. er enn fremur lögð mikil áherzla á það, að það fé, sem hér er lagt til, að það opinbera leggi fram, - og eftir frv. eiga félagsheildir bænda að leggja líka mikið fé fram á móti —, verði ekki eyðslueyrir, heldur nokkurs konar stofnfé, sem bændur eigi, með því að gert er hér ráð fyrir, að jafnframt því sem unnið er með vélum, þá sé lagt í fyrningarsjóð, sem Búnaðarfélag Íslands varðveiti, og verja skuli þessum sjóði til þess að endurnýja vélarnar, þegar þær eru orðnar svo úr sér gengnar, að þær eru ekki lengur nothæfar. Með þessu hugsum við okkur að koma á fót vélastofni, sem endurnýjast af sjálfu sér og sveitir landsins nota í framtíðinni. Því að þótt miklu gæti orðið áorkað á næstu árum í þessum efnum, sem við vonum allir að verði, þá vitum við, að verkefnin eru í þessum efnum ótæmandi hér á landi, og það er ekki ástæða til að ætla annað en að þetta verði áframhaldandi starf, þannig að jarðræktarframkvæmdir miði að því í framtíðinni, að fleira fólk geti lifað af því, sem landið gefur af sér, og því líði betur.

Þá skal ég benda á, að í frv. er veigamikið atriði, þar sem lagt er til, að eftirlit verði haft með viðhaldi vélanna, til þess að það sé í lagi.

Það er nauðsynlegt, að eftirlit verði haft með því, að vélarnar séu í lagi, en á því hefur viljað vera nokkur misbrestur undanfarin ár. Í öðru lagi, að ekki hafi aðrir leyfi til að fara með þessar vélar en þeir, sem kunna með þær að fara. Á því hefur einnig verið nokkur skortur, og þótti því ástæða til að slá þar ýmsa varnagla, því að þetta framtak nýtur að nokkru leyti styrks af almannafé.

Þær hugmyndir, sem liggja á bak við fyrri kafla þessa frv., hygg ég að hafi fyrst komið fram á Alþ. 1931, þá bornar fram af Halldóri Stefánssyni og Ásgeiri Ásgeirssyni. Það var ekki útrætt og var svo borin fram á haustþinginu brtt. við jarðræktarlögin, sem gekk nokkuð í sömu átt og var vísað til nefndar. Í þessum kafla frv. er stuðzt við þessa till. og sumt tekið upp lítið breytt, þótt miklu sé vikið við og aukið og gert að sjáifstæðu frv. Um síðari kaflann er öðru máli að gegna. Þar er nýmæli, gert ráð fyrir, að húsabyggingar í sveitum séu teknar tilsvarandi tökum og búnaðarsamböndin afli sér eins fullkominna tækja og véla og tök eru á við vinnuna, sem sérstaklega henta til þeirra hluta, og okkur hefur verið sagt, að slíka mótora verði mjög auðvelt að fá frá Ameríku að stríðinu loknu. Þetta hugsum við okkur að verði unnið á þann veg, að búnaðarsamböndin hafi kunnáttumenn, sem fara með þessi tæki og byggja fyrir bændur, eftir þeim teikningum, sem eru framkvæmdar af teiknistofu landbúnaðarins. Hygg ég, að ekki verði á móti því mælt, að með þessu skipulagi vinnist ýmislegt á og að það hafi marga kosti fram yfir þær aðferðir, sem áður hafa tíðkazt. Víst er um það, að þetta ýtir við bændum um allt land að hefjast handa um ræktun og byggingar, þegar tök eru á. Þetta ætti að leiða til þess, að betur yrði ræktað og betur byggt og með auðveldari hætti, jafnframt því sem bændur eiga að geta fengið ódýrari framkvæmdir og ódýrari byggingar en með öðru móti. Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða öllu frekar um þetta, því að málið liggur nokkuð ljóst fyrir, og læt því máli mínu lokið að sinni. Legg ég til, að málinu verði vísað til 2. umr. og landbn. að þessari umr. lokinni.