20.11.1944
Neðri deild: 77. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1110 í B-deild Alþingistíðinda. (2055)
130. mál, jarðræktar- og húsagerðarsamþykktir í sveitum
Frsm. (Jón Sigurðsson):
Herra forseti. — Frv., sem hér liggur fyrir, er nokkuð kunnugt hv. dm. af grg. þeirri, er frsm. flutti við fyrstu umr. Frv. stefnir í fyrsta lagi að því að veita félagslegum samtökum aðstöðu til þess að hefja stórfelldar ræktunar- og byggingarframkvæmdir. Í öðru lagi að tryggja það, að framkvæmdir þessar séu vel gerðar og haganlegar. Í þriðja lagi að gera framkvæmdir ódýrari en ella mundi verða og loks að tryggja, að það fé, sem ríkissjóður leggur til þessa, verði ekki eyðslufé, heldur eins konar stofnfé, sem varðveitist í sveitunum af sjálfu sér til áframhaldandi framkvæmda.
Nefndin var á einu máli um það, að frv. þetta stefni í rétta átt og það geti orðið mikilsverður þáttur í ræktun og endurbyggingu sveitanna. En við það að fara í gegnum frv., sem nefndin gerði mjög rækilega, komst hún að því, að það voru ýmis smáatriði, sem fara máttu betur. Ekkert þeirra var þó neitt aðalatriði, það má segja, að það séu allt saman smáatriði, sem ganga í þá átt að tryggja enn betur þær framkvæmdir, sem gert er ráð fyrir í frv. T.d. við 9. gr. lagði n. til, að bætt sé við, að styrkir veitist aðeins til kaupa á nýjum og vönduðum vélum .og tækjum. Og við 10. gr. bætist: „Nú eru vélar ekki notaðar einhvern tíma, og ber þá hlutaðeigandi sambandi eða ræktunarfélagi að greiða fyrningargjaldið fyrir þann tíma.“ Enn fremur bætist aftan við 11. gr.: „Vanræki búnaðarsamband eða ræktunarfélag viðhald véla þessara að dómi verkfæranefndar eða neiti að hlíta fyrirmælum hennar þar að lútandi, skal það varða sektum eða endurgreiðslu styrksins, ef um miklar sakir er að ræða.“
Ég sé svo ekki ástæðu til að telja þetta upp frekar. Um hinar breytingartillögurnar má segja það sama. Þær miða allar í þá átt að gera ákvæði þessa frv. fyllri og gera það tryggara, að þessar samþykktir komi að tilætluðum notum og að löggjöfin í heild komi að sem beztum notum fyrir viðkomandi byggðarlög, sem samþykktin gildir fyrir.
Ég sé svo ekki ástæðu til að orðlengja þetta frekar. Það liggja að vísu hér fyrir breytingartill., en ég mun ekki ræða þær á þessu stigi málsins og skal láta máli mínu lokið að sinni.