20.11.1944
Neðri deild: 77. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1111 í B-deild Alþingistíðinda. (2056)

130. mál, jarðræktar- og húsagerðarsamþykktir í sveitum

Ásmundur Sigurðsson:

Herra forseti. — Þessi breytingartill., sem hér liggur fyrir á þskj. 494 og flutt er af mér og öðrum þingmanni, er komin fram vegna þess, að okkur virðist, þó að ýmis ákvæði þessa frv. horfi til bóta, að þá sé það þó gallað og vanti í það ákvæði, sem ekki mega vanta, þegar um þetta mál er að ræða.

Það er alkunnugt öllum hv. þm., að landbúnaðurinn á Íslandi hefur verið rekinn öðruvísi en þyrfti að vera. Og þótt hann hafi tekið nokkrum breytingum á síðustu áratugum, þá er langt frá því, að það sé svo vel sem vera þarf. Hann hefur um margar aldir verið aðalatvinnuvegur þjóðarinnar. En um aldamótin síðustu fór að verða breyting á þessu. Þá var farið að auka fjármagn til atvinnuveganna, m.a. með stofnun banka, og annar atvinnuvegur fór að verða meira gildandi. Aukning sjávarútvegsins leiddi til þess, að bæir mynduðust og fjármagnið streymdi þangað. Og fólkið tók að flytja sig þangað, sem ný atvinnutæki voru notuð. Það leiddi til þess, að þéttbýli myndaðist á ýmsum stöðum, en það leiddi til þess, að hlutverk landbúnaðarins varð annað hin seinni ár en hin fyrri. Áður fyrr hlaut landbúnaðurinn sem aðalatvinnuvegur ekki aðeins að hafa það hlutverk að framleiða til innanlandsneyzlu, heldur einnig til útflutnings, til þess að greiða innfluttar vörur. Nú er það viðurkennt af öllum, sem til þekkja, að þetta hlutverk sé komið í hendur annars atvinnuvegar. Þar með á hlutverk landbúnaðarins nú að vera að framleiða vörur til innanlandsneyzlu í landinu sjálfu.

Þegar atvinnuvegir einnar þjóðar taka svo miklum stakkaskiptum á jafnstuttum tíma og atvinnuvegir okkar Íslendinga hafa gert á síðustu 3–4 áratugum, þá hlýtur það að hafa geysimikil áhrif á þjóðlífið í heild. Þær framfarir, sem orðið hafa á þessum áratugum, hafa beinlínis krafizt þess, að fólkið hætti að búa að mestu leyti í dreifbýli og flytti sig meira saman.

Það er staðreynd, að þegar á að færa nýtízku framfarir til allrar þjóðarinnar, þá rekur maður sig alls staðar á dreifbýlið. Ég vil benda hér á eitt atriði. Það kannast allir við, að það er óhemju dýrt að leggja akfæra vegi hér á landi. Og það getur orðið svo dýrt, að vegur að einstöku býli, sem afskekkt er, sé svo dýr, að það svari ekki kostnaði að leggja hann. Meira að segja getur borgað sig betur að leggja býlið niður og byggja annað í staðinn þar, sem skilyrði eru betri.

Nú er mjög á döfinni sú hugmynd að leiða rafmagn um landið og helzt þannig, að öll þjóðin geti notið þess. En það er vitanlegt, að rafmagnsleiðslur til afskekktra bæja og lítilla, afskekktra byggðarlaga eru svo dýrar, að hæpið er, að því verði komið í framkvæmd. Þegar maður lítur á skólamálin, leiðir dreifbýlið þar til sömu vandræða. Og síðan fólki fór að fækka í sveitunum, hefur viða verið svo erfitt að fá kennara, að sums staðar hefur orðið að láta sitja við það að halda uppi kennslu hálfan veturinn. Þetta er eitt helzta vandamál fræðslumálastjórnarinnar í sambandi við skólamál dreifbýlisins.

Nú er mikið um það rætt að taka alls konar vélar í þjónustu landbúnaðarins, enda ekki að ástæðulausu, því að án miklu meiri vélanotkunar en nokkurn tíma hefur þekkzt hér á landi, verður landbúnaðurinn ekki rekinn svo að í lagi sé. Þá er eftir að athuga það, að allar þær landbúnaðarvélar, sem þurfa að vera á einu býli til þess að búskapurinn sé rekinn með virkilegu menningarsniði, eru svo dýrar, að þær eru beinlínis ofviða búrekstri á einu afskekktu býli, en mundu aftur á móti reynast hentugar annars staðar, þar sem skilyrði væru góð fyrir hendi og þéttbýli. Þess vegna er þessi breytingartillaga fram komin. Hún á að miða að því, að gert verði meira af því að færa byggðina saman, að rannsakað verði ávallt, áður en framkvæmdir eru hafnar, hvaða sveitir eða býli séu svo afskekkt, að sýnilegt er, að það kostar meira að færa öll þægindi þangað, sem þurfa að koma, en að færa byggðina. Þess vegna álítum við flm. brtt., að þetta atriði megi ekki vanta í frv:, og þess vegna er þessi brtt. fram komin.

Ég veit, að ýmsir halda því fram, að hér sé um að ræða órétt gagnvart þeim, sem í till. er gert ráð fyrir, að ekki fái að njóta styrks samkv. gildandi lögum. Ég vil benda á í þessu sambandi, að fyrir þinginu liggur annað frv. um byggðahverfi. Og það er svo til ætlazt, að ef það verður að lögum, verði þar með séð fyrir hagsmunum þeirra, sem ekki fá notið ákvæða þessa frv., ef brtt. verður samþ.