20.11.1944
Neðri deild: 77. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1114 í B-deild Alþingistíðinda. (2058)
130. mál, jarðræktar- og húsagerðarsamþykktir í sveitum
Ásmundur Sigurðsson:
Ég sé ástæðu til að víkja fáeinum orðum að ræðu hv. 2. þm. Skagf., vegna þess að mér virðist sem í ræðu hans gæti misskilnings á því, sem vakir fyrir okkur flm. brtt. og Sósfl. yfirleitt.
Hann sagði fyrst, að ef ætti að fara eftir óskum till., þá ætti að leggja Austur-Skaftafellssýslu í auðn. Þetta byggir hann á því, að við ætlumst til þess, að fólkið flytji úr flestum sveitum á aðeins litla bletti kringum stærstu kaupstaðina. Þetta er ekki rétt. Meining okkar er sú, að hafin verði ákveðin rannsókn á byggðarkerfinu til þess að fá úr því skorið, hvort ekki sé allmargt býla og e.t.v. allmargir sveitahlutar, sem séu það illa settir, að það réttasta væri, að fólkið flytti þaðan. Það er meðal annars víst, að nú sem stendur stefnir þróunin í þá átt.
Þegar jarðræktarlögin voru sett 1923, var það áreiðanlega hugmynd þeirra, sem að þeim stóðu, að þau ættu að verða til þess að koma sveitabúskapnum í verulega gott horf. Svo liðu 11 ár, þar til 1934, þá eru þessi mál athuguð nánar, sérstaklega af Skipulagsnefnd atvinnumála. Hún safnaði skýrslum, og kom þá í ljós, að ekki hefði nema kringum ég held einn fimmti hluti jarða verið verulega bættur á þessu tímabili. Þróunin hefur á þessum 11 árum verið sú, að lítill hluti jarða tók stórum stakkaskiptum, en mikill meiri hluti engum. Og allmargar jarðir höfðu lagzt í eyði, því að fólkið var að flytja í þéttbýlið. Svo 1936 er aftur gerð breyting og samþykkt jarðræktarl. nýju. Ég hef ekki séð neinar skýrslur um þróunina síðan, en það virðist, sem hún sé sú sama. Og allar þessar tillögur, sem er verið að koma með núna, benda til þess líka, að flm. hafi opin augu fyrir því, að hér stefni ekki í rétta átt, og það tel ég vel farið.
Það, sem við meinum með þessari tillögu, er, að þegar nú sé hafið nýtt átak til þess að koma sveitabúskapnum í betra horf, þurfi sérstaklega að koma í veg fyrir, að þróunin haldi áfram í sömu átt. Skoðun okkar er sú, að þetta ástand sé ekki einungis að kenna of litlum fjárframlögum, heldur landfræðilegum ástæðum, a.m.k. að nokkuð miklu leyti.
Ég vil benda á það, að nú er starfandi milliþinganefnd í skipulagsmálum eftir stríð. Ég hef séð skýrslur, sem gerðar hafa verið yfir byggingar í sveitum. Þar mun hafast við fyllilega þriðjungur af öllum íbúum landsins, og er fjöldi af því fólki í húsnæði, sem gersamlega er óhæft til íbúðar. Þróunin hlýtur að verða sú, að fólkið yfirgefur þetta, og við því duga ekki fjárframlög ein á þeim stöðum, þar sem hin landfræðilega hlið er orsökin. Steinhús eru til í eyði, en þau eru ekki mörg. Og ef rannsókn er gerð, áður en hafizt er meir handa, eins og nú er gert ráð fyrir, þá tryggir rannsóknin, að því fé, sem verður veitt í framtíðinni, verði varið til staða, sem ættu að geta borið sig, en ekki til staða, sem leggjast í eyði hvort sem er.
Viðvíkjandi því, að við sósíalistar viljum flytja fólkið úr sveitinni til kaupstaðanna, þá er það ekki rétt. Aftur á móti er hugmynd okkar sú, að með þessari rannsókn verði valdir þeir staðir, sem líklegastir eru til þess, að byggð geti þétzt á. Ég vil svo benda á, að það eru ýmsir aðrir góðir menn en sósíalistar, sem halda svipaðri skoðun fram. Sjálfur búnaðarmálastjórinn hefur skrifað grein í Búnaðarritið, þar sem hann kemst svo að orði, að hann telji ekki hættulegt, þótt margt býli falli í auðn í dalabyggðum og á útnesjum. Þetta sýnir, að þetta er sú skoðun, sem er að verða allmikið ráðandi hjá mörgu fólki í landinu. Og hvað snertir æðarvarp og önnur hlunnindi, sem hv. 2. þm. Skagf. minntist á, þá er sjálfsagt að nytja þau, eftir því sem kostur er.
Í sambandi við hina mörgu örðugleika, sem bændur hafa við að stríða við búskapinn af völdum óþurrka, vil ég minnast á það, að nú er þegar byrjað að þurrka hey með vélum og gefst vel. Og ef sá háttur væri upp tekinn á t.d. 2/3 hluta af öllum býlum í landinu, en svo komi í ljós, að á hinum hlutanum væri erfitt eða óframkvæmanlegt að koma þessu í framkvæmd vegna kostnaðar, þá hygg ég, að þau býli færu ekki að verða eftirsótt.
Hv. 2. þm. Skagf. lét þá skoðun í ljós, að þessi brtt. væri fram sett af misskilningi og hún útilokaði ýmsa frá þátttöku. Ég skal geta þess, að við komum með hana vegna þess, að við álitum, að þessi setning væri óþarfi, en því fer fjarri, að við mótmælum því, sem hann sagði, að vekti fyrir flm., að einmitt þeir, sem skemmst eru á veg komnir með ræktun, skyldu sitja fyrir vinnu, sé gætt að því, að rannsóknin, sem farið er fram á í brtt. okkar, sé framkvæmd áður.
Þess vegna get ég fallizt á frestun atkvgr. til 3. umr. Ef takast skyldi samkomulag, er orðalagið ekki aðalatriði, ef meiningin er sú sama.