20.11.1944
Neðri deild: 77. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1116 í B-deild Alþingistíðinda. (2061)
130. mál, jarðræktar- og húsagerðarsamþykktir í sveitum
Ásmundur Sigurðsson:
Ég vil aðeins fara nokkrum orðum um það, sem hv. frsm. minntist á varðandi Austur-Skaftafellssýslu. Það er satt, að hún hefur við ýmsa erfiðleika að stríða og sérstaklega hvað vegi snertir. En þar er aftur á móti höfn, sem liggur að einhverjum beztu fiskimiðum Austurlands, og mjög sennilegt er, að þar rísi upp stórt þorp, þar sem Austfirðingar eiga heima meira eða minna einhvern tíma ársins, til að sækja þessi fiskimið. Og þá verða líka fyrst verulega góð skilyrði fyrir hendi til að reka blómlegan landbúnað í sveitunum næst Höfn í Hornafirði. Það er þetta atriði, sem um er deilt, hvort eigi að reyna að stöðva eðlilega þróun eða beina henni inn á heppilegar brautir. Í öllum löndum fer þessi þróun fram. Þegar tæknin hefst á atvinnuvegunum, þá myndast þéttbýli. Þessi þróun hlýtur að fara fram hér eins og í öðrum löndum. Og því er það álit okkar, að við eigum ekki að berjast á móti henni, heldur beina henni í heppilegt form.
Ég vil benda á eitt atriði enn í sambandi við, að rannsókn sé nauðsýnleg. Það var á s.l. hausti, að bændur í sveit austur í Skaftafellssýslu fóru fram á það við Búnaðarfélag Íslands, að það léti rannsaka ákveðið svæði, sem bændur gerðu sér miklar vonir um, að heppilegt væri til þéttbýlamyndunar. Sérfræðingur frá Búnaðarfélagi Íslands rannsakaði landið og dæmdi það algerlega óhæft til ræktunar. Þarna eru 5 bæir og túnin liggja öll undir eyðileggingu af skriðuhlaupi. Þetta var landið, sem þeir álitu glæsilegt. Sem betur fer álít ég, að annað land lengra burtu sé miklu betra. En það er búið að byggja þarna 4 steinhús, sem tvímælalaust eiga að standa annars staðar, ef tekið verður fyrir að rækta á öðrum stað en þessum. Þá er byrjað að byggja þarna skólahús, sem hefði verið byggt á öðrum stað, ef rannsóknin hefði verið framkvæmd einu ári fyrr. Það er því ekki að ófyrirsynju, að við viljum láta rannsaka málin, áður en lengra er haldið áfram á þessari braut.
Svo er hér eitt dæmi enn um framleiðsluna í landinu. Nú sem stendur er framleitt alltof lítið af mjólkurvörum í landinu. Aftur á móti verður að selja dilkakjöt fyrir verð, sem skapar framleiðendum ekki sæmilega afkomu. Það var eitt aðalmál búnaðarþings að ræða, hvernig ætti að skipuleggja framleiðsluna, svo að hægt væri að hætta útflutningi á vörum, sem litlar líkur eru til að geti keppt á erlendum markaði, en efla framleiðslu þeirra vara, sem mest þörf er fyrir á innlendum markaði. Til þess að þetta verði gert, þarf byggðin að þéttast á vissum stöðum, sem eru heppilegir til þess. Enn er atriði í þessu máli, það er, að sú sauðfjárrækt, sem þarf að vera, verði ekki stunduð í hinu aukna þéttbýli. Og hins ber að gæta, að búgarðar rísi upp, þar sem fólkið er laust við einangrun afskekktra einyrkjubýla, sem er það óheppilegasta búskaparlag, sem hægt er að hugsa sér á þessu landi.
Þá vil ég minnast á það, sem hv. flm. sagði um ákvæði 6. kafla jarðræktarlaganna. Mér var kunnugt um þau ákvæði, þegar við sömdum þessa brtt., en þau ná ekki yfir nema lítið af því, sem brtt. felur í sér, eða aðeins til þeirra jarða, sem talið er, að liggi fyrir ágangi af völdum náttúruafla, eins og sandfoks og þess háttar. En þessi ákvæði hafa ekki verið annað en pappírsákvæði. Það er svo ákveðið, að það skuli vera trúnaðarmenn Búnaðarfélags Íslands, sem gefi skýrslur um þessar jarðir til búnaðarþings. Það liggur í augum uppi, að þar sem slíkt á að vera byggt á mati margra manna víðs vegar um landið, getur ekki orðið neitt samræmi í því. Í öðru lagi eiga þessir menn að dæma, hver á sínu svæði. Og þeir sjá, að þetta kemur sér illa í bili fyrir þá menn, sem á jörðunum eru, og það er ekki nema mannlegt, að þetta hafi einhver áhrif á dóm þeirra. Og það er víst, að þessi ákvæði hafa ákaflega lítið komið til framkvæmda.
Ég endurtek það, sem ég sagði, að ég get fallizt á að fresta atkvgr. til 3. umr., ef hægt væri að ná, samkomulagi og fá þetta leyst.