27.11.1944
Neðri deild: 82. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1120 í B-deild Alþingistíðinda. (2066)
130. mál, jarðræktar- og húsagerðarsamþykktir í sveitum
Páll Þorsteinsson:
Herra forseti. — Ég hafði ekki ætlað mér að taka til máls í þessu máli, og það, sem fram hefur verið fært í umr. um málið, er í rauninni ekkert nýtt fyrir mér og líklega ekki fyrir neinum þm. Það er jafnan mjög mikið um það talað, þegar rætt er um málefni sveitanna, að samfærsla byggðarinnar sé allsherjar lausnaratriði í þeim vanda, sem að landbúnaðinum lýtur. Í sambandi við umr. um brtt. 494 var rætt nokkuð um það við 2. umr. þessa máls og nú við þessa umr., og sérstaklega að því vikið af flm. þeirrar till. og hv. frsm. landbn., hv. 2. þm. Skagf., að í rauninni fjallaði till. um það að leggja mikinn hluta Austur-Skaftafellssýslu í eyði. Þegar dregin hafa verið fram dæmi í sambandi við þetta mál úr mínu kjördæmi, finnst mér ekki óeðlilegt, að ég segi örfá orð, einkum út af því.
Ég vil taka það fram, að ég tel nauðsynlegt og vel farið að fela Búnaðarfélagi Íslands að rannsaka ásigkomulag jarða í landinu, sérstaklega með tilliti til þess, hvernig haga beri ræktunarstörfum á hverri jörð fyrir sig, því að þess eru mörg dæmi, að framræsla er ekki nógu vel gerð, vegna þess að undirbúning og mælingar hefur vantað. Ég er í þeim efnum sammála hv. flm. till. á þskj. 494. En þó að ég sé að efninu til sammála, tel ég, að sú till. sé alls kostar óþörf og að ófyrirsynju flutt í sambandi við þetta mál, sem hér liggur fyrir. Hv. frsm. landbn. hefur rakið það hér, hvernig ákvæði jarðræktarl. eru um þetta efni, og meiri hl. hv. landbn. hefur tekið það upp í till. sína og vitnar í þetta ákvæði jarðræktarlaganna. Og á það má benda, að bráðabirgðaákvæði jarðræktarl. fjallar um það, að framkvæma skuli ýtarlega rannsókn allra jarða á landinu með tilliti til þess, að þúfnasléttun túnanna verði framkvæmd á 10 árum. Hér er ekki allt talið, mörg fleiri fyrirmæli af Alþ. hálfu eru til í þessum efnum. Þann 9. febr. 1943 samþ. Alþ. þáltill., þar sem Búnaðarfélagi Íslands er falið það verkefni að láta fara fram rannsókn á því, hvar heppilegust skilyrði væru fyrir hendi með tilliti til ræktunar, rafvirkjana og landbúnaðarframleiðslu í ýmsum greinum. Þessi ályktun er enn í gildi, og Búnaðarfélagið hefur tekið hana til framkvæmda að nokkru leyti. Þann 15. des. 1943 samþ. Alþ. þáltill. um það að fela Búnaðarfélagi Íslands að framkvæma rannsóknar- og leiðbeiningarstarf með sérstöku tilliti til þess, að rannsaka skyldi jarðveg í helztu jarðræktarhéruðum landsins. Ýmsar fleiri rannsóknir hafa verið gerðar á þeim stöðum, sem Búnaðarfélag Íslands velur til athugana og hreppabúnaðarfélög æskja rannsókna á fyrir einstaka bændur og búnaðarfélög. Þann 17. des. 1943 var Búnaðarfélaginu falið að rannsaka ásigkomulag jarða með tilliti til stofnunar nýbýla, bæði einstakra býla og býlahverfa í sveitum landsins. Og í þessu frv., sem fyrir liggur nú við 3. umr., fjallar 5. gr. um það, að stjórnir búnaðarsambandanna annist með aðstoð Búnaðarfélags Íslands mælingar og athuganir á hverju svæði, og sérstaklega þessi atriði:
1. Stærð túna.
2. Stærð túnþýfis að flatarmáli á hverri jörð.
3. Ræktunarástand túnanna.
4. Skilyrði til nýræktar.
5. Framræslu á landi jarðarinnar og hvernig hún skuli unnin (vegna túnanna, fyrirhugaðrar nýræktar, engjaræktar og til hagabóta, ef þess er sérstaklega óskað). Og svo
6. Skilyrði til að gera engi véltæk eða auka þau.
Þetta er bundið inni í sjálfu frv. og verður að lögum, ef sjálft frv. verður samþ., þótt brtt. á þskj. 494 komi ekki til. Það liggur í hlutarins eðli, að þegar þessir sérfróðu menn frá Búnaðarfélagi Íslands ferðast um sveitir landsins eftir þessum margföldu fyrirmælum Alþ., til þess að rannsaka jarðir, sem vitanlega eru allt sömu jarðirnar í sveitum landsins, með tilliti til eins og annars, sem fram er tekið, geta þeir ekki komizt hjá því að athuga um leið það, sem fyrir hv. flm. brtt. vakir. Það er ekki um sérlega marga menn að ræða, sem Búnaðarfélag Íslands hefur í þjónustu sinni til þessara starfa, og ef þeir skilja ekki öll þessi fyrirmæli, sem felast í mörgum lagagreinum og þáltill. frá Alþ., ef þeir skilja ekki, hvað gera eigi samkv. öllum þessum fyrirmælum, fæ ég ekki séð, að þeir skilji það betur, þótt bætt sé við einni lagagrein í viðbót.
Í þessu frv. er fjallað um það einkanlega að koma á félagsskap bænda til áframhaldandi ræktunarstarfa, og vitanlega á þessi félagsskapur bænda að ná til þeirra sömu jarða, sem ákvæði jarðræktarlaganna fjalla um. Hér er því ekkert nýtt á ferð.
Í brtt. þeirri, sem ég geri hér að umtalsefni, segir svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Þegar búnaðarsambandsfundur hefur ákveðið að koma á jarðræktarsamþykkt, skal Búnaðarfélag Íslands láta fara fram nákvæma rannsókn á byggðasvæði sambandsins, er leiði í ljós, hvaða jarðir eru óhæfar til framtíðarábúðar sökum slæmra ræktunarskilyrða, ágangs af völdum náttúruafla, erfiðleika á að komast í samband við vegakerfi, rafveitu og annað, er nauðsynlegt má teljast, svo að hægt sé að reka menningarbúskap, og skulu þær jarðir ekki koma til greina við framkvæmdir, er gerðar verða eftir ákvæðum þessara laga,“ þ.e.a.s. frv. sjálfu, ef það verður að lögum.
Hver eru nú meginákvæði frv.? Þau meginákvæði eru þrjú og þrenns konar. Fyrsta ákvæðið er það, sem felst í 5. gr. og ég las upp áðan, að fela Búnaðarfélagi Íslands að láta fara fram rannsókn á ræktunarskilyrðum jarðanna. Annað meginatriðið er, að komið verði á samþykktum fyrir félagsskap, sem myndaður verði milli bænda í sveitum landsins, og þriðja atriðið er það að heimila að leggja úr framkvæmdasjóði ríkisins 3 millj. króna framlag til styrktar verkfærakaupum fyrir landbúnaðinn.
Auðsætt er, að þær jarðir, sem á að rannsaka og kynnu að teljast óhæfar til framtíðarræktunar, mega ekki vera undanskildar fyrsta meginatriðinu í ákvæðum þessara laga, því að fyrri hluti brtt. fjallar einmitt um það, að hert verði á slíkri rannsókn og komið í veg fyrir, að nokkrar jarðir komist hjá því, að slík rannsókn fari þar fram.
Þá er annað meginatriðið um félagsskap meðal bænda. Þó að sett væri í þetta frv. fyrirmæli um það, að jarðir, sem ekki þættu álitlegar til framtíðarbúrekstrar, mættu ekki koma til greina við félagsstörf heima í sveitunum, tel ég mjög hæpið, að það ákvæði fengi staðizt. Ég held, að það sé ekki á færi Alþ. að setja ákvæði um að banna einstökum bændum, þótt á litlum býlum búi, að taka þátt í félagsskap heima í sveitunum, sem á að hrinda í framkvæmd ræktunarstörfum. Ég held jafnvel, að það ákvæði mundi stappa nærri að brjóta í bága við ákvæði stjórnarskrárinnar um félagsfrelsi manna.
Þá er þriðja meginatriðið um framlag framkvæmdasjóðs til vélakaupa fyrir þessi ræktunarfélög. Nú skulum við setja upp einfalt dæmi. Hugsum okkur hrepp, þar sem eru 50 búendur. Segjum nú, að rannsókn, sem gerð er af hálfu Búnaðarfélagsins leiði það í ljós, að 45 jarðir í hreppnum eru dæmdar hæfar til framtíðarbúrekstrar, en fimm teljist það ekki. Þá getur hreppurinn ekki hætt við að kaupa jarðræktarvélar, þótt þessi býli kynnu að finnast, sem ekki teldust heppileg til búrekstrar. Félagsheildin mundi eftir sem áður kaupa þessi áhöld, og ég fæ ekki séð, að hið opinbera gæti neitað að greiða fullan styrk til þessara kaupa, þótt til kynnu að vera á sambandssvæðinu einhverjar jarðir, sem ekki þættu álitlegar til búskapar. Ákvæðinu um framkvæmdasjóð ríkisins mundi því verða fylgt, hvort sem þessi brtt. á þskj. 494 næði samþykki eða ekki. Og ef slíkar vélar eru komnar á samþykktarsvæðið, er það engan veginn á færi Alþ. að banna einstökum bændum að nota þær og rækta jarðir, þó að býlin þyki ekki álitleg til framtíðarbúrekstrar, ef þeir vilja gera það á sinn eiginn kostnað og með sinni eigin framkvæmd. Hið eina, sem Alþ. getur í þessum efnum, er að hindra það með lagaákvæðum, að styrkur til umbóta á slíkum jörðum sé greiddur. En það er ekki minnzt á það einu orði í þessu frv., sem nú er fjallað um, að greiða styrk, hvorki til smærri né stærri jarða. Þau ákvæði eru í allt öðrum lögum og öðru frv., sem hér liggur ekki fyrir. Ákvæði, sem fjalla um að hindra styrkgreiðslur til afskekktra býla, eiga því ekki erindi inn í þetta frv.
Annar höfuðkafli þessa frv. er um húsagerðarsamþykktir í sveitum. Þar er gert ráð fyrir, að félagsskapur bænda myndi vinnuflokka heima í sveitunum, er framkvæmi húsabyggingarnar, og í 26. gr. frv. er gert ráð fyrir, að búnaðarsamböndin tryggi sér fulla greiðslu fyrir framkvæmdir sínar hjá kostnaðarmanni framkvæmdarinnar áður en vinna hefst. Ef brtt. á þskj. 494 yrði samþ. og þau ákvæði hennar, að jarðir, sem ekki þykja álitlegar til framtíðarbúrekstrar, skuli ekki koma til greina við framkvæmdir, sem gerðar verða eftir ákvæðum þessara laga, liggur þar í fólgið, að þeim einstökum bændum, sem kynnu að búa á lélegum jörðum, væri bannað að hagnýta sér þessa vinnu. Ég fæ ekki séð, hvernig Alþ. getur sett fyrirmæli, sem hindra það, að bændur, þótt smáir séu og búi á afskekktum býlum og vilja byggja sér hús, geti orðið aðnjótandi þeirrar aðstoðar, sem fáanleg er í sveitinni, og fengið vinnuflokka heim til sín, með það fyrir augum að greiða vinnuna sjálfir. Ég fæ ekki séð, hvernig Alþ. getur hindrað það með löggjöf, að þeir geti orðið aðnjótandi þessarar aðstoðar og þær framkvæmdir komið til greina á þeim jörðum eins og öðrum.
En þótt menn vildu teygja ákvæði þessi út yfir það, sem felst í allt öðrum lögum um styrkgreiðslur til framkvæmda í sveitum, rekum við okkur á, að ákvæði jarðræktarlaganna, sem hv. 2. þm. Skagf. las hér upp að nokkru, verða í gildi eftir sem áður, og sjáum við þá, að þessi ákvæði hljóta að fara í bága við núgildandi ákvæði jarðræktarlaganna, sem fjalla um sama efni. Þó sýnist mér, ef til álita kynni að koma, hvorum ákvæðunum ætti fremur að fylgja, það liggja í hlutarins eðli, að sjálfsagt væri að fylgja ákvæðum jarðræktarlaganna, sem beinlínis fjalla um styrkgreiðslur til framkvæmda í sveitum. Ég fæ því ekki séð, að það kæmi að neinum notum, þótt þetta ákvæði yrði fellt inn í þetta frv., og mundi reynast markleysa í framkvæmd, þótt samþ. yrði í sambandi við þetta frv.
Í sambandi við þetta mál hafa verið færð fram ýmis dæmi úr Skaftafellssýslu, t.d. eitt dæmi fyrir nokkrum dögum um byggðarlag, þar sem rannsókn, sem gerð hefði verið af hálfu Búnaðarfélagsins, hefði leitt í ljós, að land, sem fyrirhugað hafði verið til nýræktunar, hefði reynzt óhæft til þeirra hluta, og í þessu byggðarhverfi væri búið að byggja steinhús og fleira. Ég tel ástæðu til að fara fáeinum orðum um þetta dæmi. Þetta er út af fyrir sig ekki rangt, en fram sett með þeim blæ, að ég hef ástæðu til að ætla, að þeir, sem alls ekki þekkja þarna til, líti á það öðrum augum en vera ber. Þessu er þannig farið, að heima við túnið á stærsta býlinu, þar sem vitnað var til, liggur allstórt landsvæði, sem bændur höfðu fyrirhugað til nýræktar. Þegar sérfræðingur frá Búnaðarfélaginu kom til að athuga það og mæla, kom í ljós, að niðri í jarðlögunum í þessari landspildu er sandlag, einmitt þar sem lokræsið átti að koma. Dæmdi hann því landið óhæft til lokræsagerðar og þar af leiðandi stórgallað til nýræktar. En mér er ekki kunnugt um, að gróðurfar hafi verið lélegt þarna, og ég held, að þetta geti ekki talizt, stórt atriði, að fundizt hefur þarna á einum stað gallað landsvæði.
Hæstv. atvmrh. sagði hér í ræðu fyrir nokkrum dögum, að það gerði ekki mikið til, þótt ræktunarlandið væri allfjarri bústöðum, því að það mundi verða framtíðarlausnin, að bændur hefðu bíla til flutninga, m.a. til að flytja verkafólkið út á teig. Ég tel þetta vel mælt, og þegar nýsköpunin er komin á það stig, held ég, að það komi ekki að sök, þótt um nokkurra kílómetra vegalengdir sé að ræða. Þetta er ekki stórt atriði í þessu máli, en ég vil þó benda á, að þetta sýnir þó, að till., sem ég gerði að umtalsefni, er óþörf, því að þarna er einmitt vitnað í það, að sérfræðingur frá Búnaðarfélaginu er búinn að ferðast um meginhluta Austur-Skaftafellssýslu, búinn að gera athuganir á flestum býlum í a.m.k. 3 hreppum sýslunnar, og það er áreiðanlega óhætt að fullyrða, að sá sérfræðingur, sem þessa rannsókn framkvæmdi, gerði það samkv. heimild laga frá Alþingi.
Inn í þetta mál hafa blandazt ýmis önnur efni, eins og oft vill verða í sambandi við landbúnaðarmál. Þetta mál hefur af öðrum en mér verið fært út á nokkuð víðtækari grundvöll en till. sjálf fjallar um. Út frá því spunnust einkum umr. um það, hvort í þessari till. væri meginatriði að leggja mikinn hluta Austur-Skaftafellssýslu í eyði. Það er ævinlega svo, þegar talað er um þessa samfærslu byggðanna, hvort heldur er í sambandi við þetta mál eða önnur mál, að mjög erfitt er að fá það skýrt fram, hvort átt er við einstök afskekkt býli, heil byggðahverfi eða jafnvel heilar sveitir.
Þá hefur verið drepið á, að skólamál sveitanna væru þannig, að þau krefðust samfærslu, því að börnin í hinum fámennari sveitum væru ekki nógu mörg til að skapa nógu mikið starf fyrir kennara. Ef þessi málfærsla í sambandi við þetta mál og mörg önnur um samfærslu byggðanna felur það í sér einungis, að taka eigi upp einstöku afskekkt býli og færa þau til innan sömu sveitar og setja niður þar, sem þorp finnast í sömu sveit, fæ ég ekki séð, hvaða áhrif það getur haft á barnafjöldann, hvort býlin standa örlítið hvort frá öðru eða eru saman, því að þótt byggðin yrði færð saman á þennan hátt, mun það vaka fyrir öllum, að það eigi að halda boðorðin eftir sem áður. Ég held, að í sambandi við skólamálin hafi það ekki svo mikla þýðingu að færa til einstöku býli. Hitt skil ég betur, ef á að taka upp heil byggðarlög eða heilar sveitir. Annars held ég, að fyrirkomulagið, sem nú er að komast á í skólamálum, leysi til fulls þau vandkvæði, sem kunna að eiga sér stað í sambandi við fámenni í einstöku sveitum.
Þá hafa rafmagnsmálin einnig verið dregin inn í þessar umr. Mér er það fullljóst og okkur öllum, að eðlilegasta og bezta lausnin á rafmagnsmálunum er sú, að koma upp stórum virkjunum og leiða rafmagn frá þeim sem víðast um byggðarlög landsins. En menn mega þó ekki loka augunum fyrir öðrum leiðum, sem líka eru færar í þessum efnum. Rafstöðvar má setja á einstökum bæjum, þótt rafmagnið sé ekki leitt frá stórvirkjunum langar leiðir. Ég geri ráð fyrir, að þótt komið verði upp stórvirkjunum, verði óhjákvæmilegt að fylla einstöku skörð með smávirkjunum fyrir afskekkta bæi. Oft má það e.t.v. með vatnsorku, en það er líka önnur orka, sem kemur hér til greina. Það má t.d. minna á, að nú eru vindrafstöðvar mjög útbreiddar á einstökum býlum. Gallinn er þó enn þá sá, að þær skila of lítilli orku, en þetta er aðeins byrjun, og er svo um alla tækniþróun, að tæknin byrjar smátt, en tekur framförum. Svo getur enginn þingmaður fellt um það fullnaðardóm, að ekki kunni innan mjög langs tíma nýjar vélar að koma til sögunnar, sem skili meiri orku en þessar frumstæðu vélar, sem nú hafa verið teknar í notkun. Mér finnst margt ólíklegra hafa skeð en það. Og enn má á það minna, að nú er verið að gera tilraun með raforku með gufuframleiðslu, og við vitum ekki enn þá, hvaða árangur það kann að bera.
Þegar litið er á þessi mál frá þessum sjónarhól, má segja, að Austur-Skaftafellssýsla sé glöggt og gott dæmi, því að landfræðilegir staðhættir eru auðvitað erfiðir þar og einangrunin allmikil. En þar eru fleiri raflýst býli en jafnvel í nokkurri annarri sveit á Íslandi. Það rafmagn hefur ekki verið tekið frá stórum rafstöðvum, ekki verið leitt langar vegalengdir, heldur framleitt heima fyrir, og ríkissjóður hefur ekki þurft að fórna neinu í sambandi við það.
Þá er því, eins og kunnugt er, mjög misjafnt háttað, hvar er að finna ræktanlegt land. Nú er það kunnugt, að ræktanlegt land getur verið gott, þó að landfræðilegir staðhættir um samgöngur séu erfiðir, og get ég nefnt dæmi um það úr Austur-Skaftafellssýslu. Það hefur líka komið fram í sambandi við þá rannsókn, sem sérfræðingur Búnaðarfélagsins gerði, og vitnað hefur verið til í þessu máli, að gróður í sumum héruðum þar er mjög ákjósanlegur.
Svo er talað um það, að vegna þess að landbúnaðurinn hafi nú orðið minna hlutverki að gegna í atvinnulífi þ jóðarinnar en áður var, þá sé eðlilegt, að samfærsla byggðarinnar komi til. Ef það er svo, að yfirleitt ætli þjóðin sér að hætta að stunda landbúnað með það fyrir augum að selja nokkuð af landbúnaðarafurðum á erlendum markaði, þá er vitanlegt, að það hlýtur að hafa sín áhrif. En nú hef ég bent á það og vildi leggja áherzlu á það, að öll þessi atriði, sem fram eru færð í sambandi við samfærslu byggðanna, geta á mörgum stöðum strítt hvert gegn öðru. Það munu vera fáir staðir, þar sem þetta allt, sem fram er talið, er til staðar, heldur sumt af því öðru fremur og fæst kannske á sumum stöðum flest, þó að landfræðilegir staðhættir orsaki, að erfitt sé þar um framleiðslu vegna samgönguleysis. Og þá komum við aftur að því, sem er í brtt., sem ég ætla að tala örfá orð um að lokum, hvað á að gera að meginatriðum af þessu og hvaða aðili á að meta það í hvert sinn. í l., sem hv. 2. þm. Skagf. las hér upp úr, er ákveðið, að landbrh. meti það hverju sinni, eftir að hafa fengið skýrslu sérfræðings Búnaðarfélags Íslands, hvaða jarðir falli undir það að fá jarðræktarstyrk. En í brtt. á þskj. 494 er ekkert á það minnzt, hvaða aðili á að meta þetta, heldur aðeins sagt, að þegar þessar skýrslur liggi fyrir frá sérfræðingum, þá skuli vissar jarðir ekki koma til greina við framkvæmdir, sem gerðar verði eftir ákvæðum þessara l. — Maður gæti hugsað sér, að þetta ætti að gerast af sjálfu sér. Ákvæði þessarar brtt. og ákvæði jarðræktarl. stangast á. Og ef ætti að beita þessum ákvæðum í brtt., ef samþ. yrði, gagnvart einstökum bændum, gæti það svo farið, að þeir skírskotuðu málum sínum til landbrh. og að þau mundu verða dæmd eftir á eftir jarðræktarl.
Ef menn vilja breyta einhverju í þessu efni, og ég segi ekki, að það komi ekki til greina, þá virðist mér verða að fella breyt. um það beint við jarðræktarl. í þessu efni. En þegar talað er um að færa saman byggðina, að því er tekur til einstakra býla, þá held ég, að það sé nú ekkert nýtt, heldur það, sem oft er að gerast. Og ég held, að það, sem hér hefur verið fram fært til rökstuðnings í þessu máli eftir Steingrími Steinþórssyni búnaðarmálastjóra um þau mál, þá varði það ekkert annað en það, sem er oft að gerast og enginn þytur er gerður út af, að einstök býli leggjast í eyði á landinu og önnur rísa upp á öðrum betri stöðum. Um þetta get ég tilfært dæmi úr Austur-Skaftafellssýslu í einum hreppi, þar sem þrjú býli nærri fjöllum hafa lagzt í eyði á undanförnum árum, en önnur býli hafa svo risið upp í héraðinu á öðrum stöðum. Mér er ekki kunnugt um, að þetta hafi valdið nokkrum ágreiningi eða að nokkur þytur hafi verið gerður út af þeim málum, hvorki í héraðinu né annars staðar og allra sízt lengra í burtu. Enda hefur þetta engin áhrif í því efni, að ríkið þarf eftir sem áður að leggja vegi og síma og leiða rafmagn um sveitirnar o.s.frv.
Af þessu sjáum við það, að þótt þessi stefna verði útfærð í það að eyða nokkrum býlum, þá hefur það ekki svo mikla breyt. í för með sér, frá því sem verið hefur, á þjóðarhag, þótt í þeim mæli sé um að ræða samfærslu byggðanna. Hitt er annað mál, ef á að taka upp heil byggðarlög, heilar sveitir og leggja í eyði, þá hefur það miklu meiri áhrif á þjóðarhag. Og þegar talað er um það frá því sjónarmiði, að það þurfi vegna þjóðarhagsmuna að breyta byggingu landsins, þá verður ekki dregin af því önnur ályktun en sú, að fyrir þeim mönnum, sem því halda fram, vaki það, að þessi stefna verði ráðandi í allríkum mæli og nái út yfir allvíðtæk svæði af landinu. Ef málin falla þannig, að miða eigi byggingu Austur-Skaftafellssýslu við það, að sveitirnar þar framleiði aðeins landbúnaðarafurðir fyrir fiskiþorpið Hornaf jörð, þá hygg ég, að megi til sanns vegar færa orð hv. 2. þm. Skagf. í þessu máli, að þá stefndi að því með mikinn hluta Austur-Skaftafellssýslu að leggja hana í eyði. Og ef það kann að búa á bak við þessa brtt. eða þær umr., sem fallið hafa hér á hæstv. Alþ. í sömu átt, má segja, að þessi brtt. sé þáttur, að vísu mjög ómerkilegur þáttur, í veigamiklu máli.