14.12.1944
Efri deild: 88. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1129 í B-deild Alþingistíðinda. (2073)

130. mál, jarðræktar- og húsagerðarsamþykktir í sveitum

Frsm. (Páll Hermannsson):

Herra forseti. Á þingi í fyrra, 1943, var borið fram í Nd. frv. til l. um breytingu á jarðræktarlögunum, en því frv. var vísað frá með dagskrá. Ég nefni þetta sökum þess, að þetta frv., sem nú liggur hér fyrir, er að nokkru leyti ávöxtur af því frv., en þó nokkuð frábrugðið því. Í þessu frv. er fellt burtu ákvæðið um jarðræktarstyrkinn, enda er þetta sjálfstætt frv., en hér er aftur á móti bætt inn í kafla um húsagerðarsamþykktir til þess að ýta undir byggingar. Mþn. í landbúnaðarmálum, sem búnaðarþingið setti; hefur samið þetta frv. Það hefur fengið góðar undirtektir í Nd. og orðið fyrir einungis smávægilegum breytingum. Landbn. hefur haft þetta mál til athugunar og leggur til, að frv. verði samþykkt, og taldi enga slíka annmarka á því, að ástæða væri til að breyta frv. Ég lít svo á, að frv. þetta sé í raun og veru afleiðing af breytingu á jarðræktarl. frá 1943. Eru og meginatriði I. kafla frv. tekin úr jarðræktarlagafrv.

Ég skal nú fara yfir helztu atriði frv. Í 1. gr. frv. er gert ráð fyrir, að búnaðarsamböndin geti gert samþykktir til að flýta fyrir jarðræktarframkvæmdum. — Í 2. og 4. gr. er rætt um, hvernig samþykkt skuli verða til og hvað í henni skuli standa. — Í 5. gr. ræðir um, hvers konar undirbúningur skuli fara fram og hverjir skuli bera kostnað af undirbúningsstarfinu. Í jarðræktarlagafrv. í fyrra var gert ráð fyrir, að kostnaður við undirbúningsstarfið skuli allur greiddur úr ríkissjóði, en hér er lagt til, að ríkissjóður greiði helming kostnaðarins, en hinn hlutinn greiðist að jöfnu af Búnaðarfél. Íslands og hlutaðeigandi búnaðarsambandi. — 8. gr. fjallar um kaup á verkfærum, og er þar tekið fram, að verkfæranefnd ríkisins skuli aðstoða við kaup á vélum og skuli hún í samráði við Búnaðarfélag Íslands ákveða, hvaða vélar skuli njóta styrks, en hann skal einungis veittur til nýrra og vandaðra véla. Gert er og ráð fyrir í 9. gr., að varið skuli úr framkvæmdasjóði ríkisins allt að 3 millj. kr. til greiðslu véla og verkfæra. — 10. og 11. gr. eru um meðferð og viðhald þessara véla, svo og viðurlög við trassaskap. Skal og gert ráð fyrir fyrningu, svo að vélarnar endurnýi sig sjálfar. Þar er jafnvel kveðið svo fast að orði, að ef úr hófi keyri með vanhirðu, geti það varðað sektum og jafnvel endurgreiðslu styrksins. — Í 12. gr. er ákvæði um, að þeir menn einir vinni með þessum tækjum, er kunna á þeim skil.

Ég sé svo eigi ástæðu til að fjölyrða meira um þennan kafla frv. En í öðrum kafla, um húsagerðarsamþykktir, er tekin upp sams konar aðferð og í I. kafla. Tilgangurinn er sá að gera kleift að koma upp vandaðri og hentugri húsum með félagsskap en einstaklingar gætu gert. Þar er gert ráð fyrir, að búnaðarsamböndin sjái um, að vélar, svo sem hrærivélar, og steypumót, séu fyrir hendi. — Í 27. gr. eru fyrirmæli um það, hvaða rétt skuldir, sem af þessum fram,kvæmdum kunna að skapast, skuli hafa, og segir þar svo:

„Skuldir, sem myndast kunna við búnaðarsamband samkvæmt lögum þessum, eru forgangsskuldir, tryggðar með veði í jörð þeirri, er framkvæmdin hefur verið gerð á, næst á eftir þeim lánum, er á jörðinni hvíldu, er framkvæmdin hófst, og víkja aðeins fyrir opinberum gjöldum og fylgifjárkröfu, ef um aðaljarðir er að ræða.“

Mér þykir að lokum rétt að lesa hér upp niðurlagið úr grg. þeirri, sem fylgir frv. þessu og er á þessa leið:

„Kostir þessa skipulags um fram þá starfshætti, er nú tíðkast, eru:

1. Að það ýtir mjög við bændum um land allt að hefjast handa um ræktun og byggingar, strax og tök eru á.

2. Að félagsleg samtök, er ná yfir stór svæði, hafa allajafna meira lánstraust og fjárhagslegt bolmagn til að kaupa stórar vélar og dýrar og starfrækja þær, er eitthvað harðnar í ári.

3. Að allir á hverju samþykktarsvæði eiga þess kost að fá unnið — og þeir fyrst og fremst, er mesta hafa þörfina og skemmst eru á veg komnir.“

Ég skal og geta þess, að í 4. gr., um ræktunarframkvæmdir, og í 15. gr., um húsabyggingar, er gert ráð fyrir, að þeir, sem mesta hafa þörfina, sitji fyrir. —

„4. Að komið er í veg fyrir, að einstök byggðarlög verði einangruð og útundan.

5. Að félagsvinna með fullkomnum og hentugum vélum verði að öllum jafnaði mun ódýrari.

6. Að tryggt er betur en áður, að ýmsar undirbúningsrannsóknir verði gerðar, er tryggja, að verkið verði unnið á réttan hátt.

7. Að viðhald véla og verkfæra, sem keypt eru samkv. ákvæðum frv., verður háð opinberu eftirliti. 8. Að ráðstafanir eru gerðar til að tryggja, að þeir einir fari með vélarnar, sem til þess eru hæfir.

9. Að tryggt er, eftir því sem verða má, að fé það, sem ríkið og félagsheildir leggja fram til vélakaupanna, verði ekki eyðslueyrir, heldur stofnfé, er geri sveitunum fært að endurnýja vélastofninn, jafnóðum og vélarnar ganga úr sér.“

Ég læt þetta svo nægja fyrir hönd landbn. og legg til, að frv. verði samþykkt.