04.12.1944
Neðri deild: 86. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1135 í B-deild Alþingistíðinda. (2103)
201. mál, hafnarlög fyrir Akranes
Flm. (Pétur Ottesen):
Ég þarf ekki að fylgja frv. úr hlaði með mörgum orðum, grg. þess mundi nægja. Með þeim framkvæmdum, sem orðnar eru í hafnargerð Akraness á undanförnum árum, er nærri lokið þeim fjárupphæðum, sem lög til tóku, og nú er búizt til mikilla og dýrra hafnarbóta, sem afla verður fjár til. Ég leyfi mér því í frv. að fara fram á hækkun bæði á þeim hluta kostnaðar, sem er beint framlag ríkissjóðs, og þeirri ábyrgð, sem ríkið á eftir venju og lögum að taka á sig vegna hluta af kostnaði. Upphæðirnar eru miðaðar við áætlanir, sem gerðar hafa verið. Vel getur komið fyrir, að þær reynist of lágar og þurfi að hækka síðar, en það verður ekki á næstu árum.
Af því að svo er áliðið þingtímans, vildi ég mælast til þess við sjútvn., sem eflaust mun fjalla um málið, að hún hraði afgreiðslu þess svo, að það geti komizt gegnum þingið.