15.09.1944
Neðri deild: 50. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1139 í B-deild Alþingistíðinda. (2124)
112. mál, kirkju- og manntalsbækur
Flm. (Jón Sigurðsson):
Ég er hv. þm. V.-Sk. þakklátur fyrir undirtektir hans og skilning á nauðsyn þeirri, sem hér er um að ræða. Það er ekkert atriði í mínum huga, að verk þetta verði unnið á einn einasta veg. Aðalatriðið er öryggið, sem við erum sammála um, að þurfi að tryggja, og í öðru lagi, að héruðin úti um landið hafi hjá sér þessar heimildir í framtíðinni, sem svo geta orðið vísir að safni héraðsfræða, sem varðveitast heima í héraði. Samt vil ég benda á, að nokkur brögð hafa orðið að því, að erfitt sé að fá skýrslur frá einstökum prestum, og það þótt í smærri stíl sé en að afskrifa kirkjubækurnar fyrir árið, en það skildist mér hv. þm. ætlast til. Mér skilst hann vilja taka afrit af kirkjubók og manntalsbók. Prýðilegt væri það, ef það þá fengist gert árlega, en dragist ekki von úr viti, sem ég hygg, því miður, að stöku sinnum hafi átt sér stað. Í því sambandi vil ég benda á, að með því skipulagi, sem er í frv., er dálítil trygging. Það getur alltaf komið fyrir, og þarf ekki að vera af neinu frámunalegu hirðuleysi í embætti, að prestur gleymi að færa inn. Um þetta veit ég dæmi. En með því móti, að í hverri sókn sé maður, sem beri saman við prestinn a.m.k. fyrir árið, mundi vera tilviljun, ef ekki rifjaðist upp fyrir báðum, ef eitthvað hefði gleymzt. Ég geri nú ekki að kappsmáli samt sem áður, hvaða leið er farin, fyrir mér vakir aðeins að ná því marki, sem ég hef lýst.