16.11.1944
Neðri deild: 75. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1141 í B-deild Alþingistíðinda. (2132)

112. mál, kirkju- og manntalsbækur

Sveinbjörn Högnason:

Ég get lýst yfir, að það, sem ég átti við, gerðist, áður en núverandi þjóðskjalavörður tók við, og hann mun ekki hafa gengið eins hart að í þessum efnum og fyrirrennari hans. Hinu verður ekki neitað, að samkv. ákvæðum frv. yrði aðalbókin tekin af prestunum, sem eiga að gefa vottorð úr þeim, og ég hygg satt að segja ekki hægt að treysta því, að þau eintök, sem eiga að geymast á flækingi um sveitina hjá þeim mönnum, sem sóknarnefndir kunna að fela að taka afritin, verði ætíð til mikilla nota. Maður veit, hvernig um þau muni fara á stundum, og ég býð ekki tvo aura í svoleiðis eintak, held það verði engum til gagns.

Ég bjóst við, að n. mundi fara að till. minni, þar sem þá var hvorum tveggja, prestaköllunum og safninu, tryggð hin ákjósanlegasta úrlausn. Nú brást sú von, og mun ég því bera fram um það brtt. fyrir 3. umr.

Hv. frsm. segir, að fólk, sem flutt er frá fæðingarstöðvum sínum, hafi mikil óþægindi af því, ef kirkjubækur komi ekki fljótt á þjóðskjalasafnið. Þá ætti hann að fylgja till. minni, sem bætir langbezt úr því. Annars á þetta helzt við það fólk, sem flyzt til Reykjavíkur og vill flytja kirkjubækurnar með sér til hagræðis, en fólki annars staðar á landi eða vestan hafs er engu verra að skrifa sóknarpresti og biðja um vottorð hans en til þjóðskjalasafns, og hef ég ávallt svarað þeim bréfum undireins og það munu prestar yfirleitt gera, sízt seinna en gert er á þjóðskjalasafninu. Og hinir eru ólíkt fleiri, sem kyrrir sitja. Með minni till. er hvorum tveggja gert jafnhátt undir höfði.