12.12.1944
Neðri deild: 90. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1144 í B-deild Alþingistíðinda. (2150)
112. mál, kirkju- og manntalsbækur
Sveinbjörn Högnason:
Ég hef leyft mér að bera fram brtt. við þetta frv. á þskj. 637. Ég hef við fyrri umr. málsins lýst, hvaða breyt. ég óska að fá á frv. til að ná því sama og hv. flm. lýsti, að væri aðaláhugamál sitt að tryggja með flutningi þessa frv., en það var, að ætíð væri til heima í héraði og sömuleiðis á aðalsafni landsins nothæft eintak af þessum kirkjubókum. Nú er það sjáanlegt, að eins og frv. er flutt, þá er ekki hægt að ná þessum tilgangi, svo að fullnægjandi sé. Ef frv. er samþ. óbreytt, þá koma þær ekki til safnsins fyrr en a.m.k. nokkrum áratugum eftir, að byrjað er að færa þær heima í héraði. Eftir því sem frv. ætlast til, þá verður bókin ekki til nema í mörgum brotum, sem sé fyrir hverja sókn út af fyrir sig, en ekki prestakallið í heild, hún verður m.ö.o. færð af mörgum mönnum. Yrði þá alltaf að fá menn úr hverri sókn til að vinna þetta starf í staðinn fyrir að taka afrit handa landsbókasafninu og sömuleiðis héraðsbókasafni, ef til er og þau óska eftir. Með brtt. minni næst því fullkomlega það, sem hv. flm. taldi höfuðmarkmið sitt, ef bækurnar eru til fullfærðar á hverjum tíma, bæði í þjóðskjalasafninu og heima í héraði, þar sem þau óska eftir, að það sé gert. Það næst enn fremur, að þau eintök, sem til eru, eru færð af þeim, sem sjálfur gerir skýrsluna, en gengur ekki milli manna og veikist í mörg ár, kannske milli margra heimila, eins og ella mundi. Þetta er því miklu tryggara til að ná höfuðtilgangi frv., en útilokar líka óþarfa umstang við að taka þessi afrit, eins og mundi verða, ef sérstakur maður væri fenginn til að taka afrit fyrir hverja sókn í prestakallinu. Sóknir í prestaköllum eru allt upp í sex, og væru það þá allt að sex menn, sem ættu að afrita þessi litlu brot hver fyrir sig. Við, sem þekkjum til úti um sveitir, vitum, í hvaða lagi það væri, ef margir menn ættu að færa þetta hver fyrir sig.
Ég játa fúslega, að með þessari breyt. er prestunum lögð miklu meiri skylda á herðar, en ég veit, að þeir eru fúsir til að taka hana að sér til þess að hafa bækurnar í lagi, því að ég veit, að þeir óska eftir, að bókhald þeirra og skýrslugerð sé í svo góðu lagi sem unnt er, og vilja heldur leggja á sig aukaerfiði en það sé gert á skotspónum af mörgum í prestakallinu, eins og ætlazt er til í frv. Þá er líka tryggt, að frumbókin yrði send til þjóðskjalasafnsins 50 árum eftir, að hún er útskrifuð, en presti þá afhent aftur afritin, sem hann hefur gert fram til þess tíma, svo að alltaf er til í prestakallssafninu afrit af kirkjubókinni, sem er fullkomlega færð fram til dags „dató“ á hverjum tíma. Þetta álít ég betra fyrir prestinn og margfalt betra og tryggara fyrir þá, sem eiga að nota safn ríkisins á hverjum tíma, að eiga bækurnar færðar fram á síðasta ár og að geta haft heima í prestakallinu bækurnar sjálfar eða afrit af þeim. Ég get því ekki skilið, hvað fyrir hv. n. vakir, ef hún telur sig til neydda að leggjast á móti þessari brtt. við frv. eða þá hv. flm. Ég hygg, að sá mótþrói sé algerlega á misskilningi byggður, því að eftir því sem mér virtist n. og hv. flm. áður líta á þetta mál, þá virtist mér ekkert bera á milli um, að það fyrirkomulag, sem ég sting upp á, sé talsvert betra en það, sem í frv. er.