08.01.1945
Efri deild: 93. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1151 í B-deild Alþingistíðinda. (2162)
112. mál, kirkju- og manntalsbækur
Frsm. (Eiríkur Einarsson):
N. hefur orðið sammála um að leggja til, að frv. verði samþ. eins og það er hingað komið frá Nd., að því þó athuguðu, að formsins vegna verður að breyta því ofurlítið vegna þess tíma, sem frv. átti að koma til framkvæmda eftir orðalagi þess. Það raskast því með þann tíma sökum þess, að það var borið fram á þeim hluta þingsins, sem lauk fyrir jól. En það á nú ekki framgangs von fyrr en á þessu ári, 1945. Þetta leiðir til þess, að 6. gr., um gildistökuna, þarf að breyta á þann veg, að tekið sé fram, að hin nýju l. komi til framkvæmda 1. jan. 1945.
Við álitum betra, að þessi breyt. kæmi til framkvæmda um áramót en á miðju ári.