09.01.1945
Neðri deild: 98. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1155 í B-deild Alþingistíðinda. (2180)
233. mál, róðrartími fiskibáta
Samgmrh. (Emil Jónsson):
Herra forseti. Þetta frv. er samið af fiskimálastjóra ásamt miklum hluta þeirra, sem hér eiga hlut að máli. Þessar breytingar, sem gerðar hafa verið, eru þess efnis, að gerðar verði sömu ráðstafanir fyrir Akranes og aðrar verstöðvar við Faxaflóa, og hef ég síður en svo nokkuð við þær að athuga, enda eru þær og gerðar í samráði við mig. Ég get því fallizt á þessar breytingar.