09.01.1945
Efri deild: 97. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1156 í B-deild Alþingistíðinda. (2187)
233. mál, róðrartími fiskibáta
Samgmrh. (Emil Jónsson):
Herra forseti. Þetta frv. er borið fram vegna þess, að mjög hafa verið takmörkuð svæði þau við Faxaflóa, sem fiskibátar mega róa á, — og er það af ástæðum, sem öllum þm. munu kunnar, — það svæði, sem hverjum bát getur orðið ætlað, og getur það skapað vandræði, ef ekki er girt fyrir það í tíma.
Það segja mér fróðir menn, sem þennan atvinnuveg stunda, fiskveiðar, að bilið milli lóða bátanna sé komið niður í nokkur hundruð metra.
Til þess að hindra, að illa fari vegna þessa, er frv. þetta fram komið. Það á að tryggja, að allir bátarnir rói á sama tíma.
Frv. er samið í samráði við sjómenn á Suðurnesjum og breytt lítils háttar samkvæmt óskum fulltrúa sjómanna á Akranesi.
Frv. fór ágreiningslaust gegnum Nd., og vil ég leyfa mér að vænta, að afgreiðsla þess verði eins hröð hér í þessari hv. deild og mögulegt er, því að til þess getur komið, að bátar þurfi mjög bráðlega að beita þeim ákvæðum, sem hér er gert ráð fyrir.