09.01.1945
Efri deild: 97. fundur, 63. löggjafarþing.
Sjá dálk 1156 í B-deild Alþingistíðinda. (2188)
233. mál, róðrartími fiskibáta
Gísli Jónsson:
Herra forseti. — Út af tilmælum hæstv. atvmrh. hef ég boðað fund í sjútvn. í kvöld, ef ályktunarfært verður, og skal nál. verða gefið út í kvöld eða fyrramálið. Ég skal ekki halda því lengi, en hvernig það fellur, veit ég náttúrlega ekki um.